Grímur kokkur leitar að húsnæði

Forsvarsmenn Gríms kokks leita nú að nýju húsnæði undir framleiðsluna en fyrirtækið hefur verið með framleiðsluna að Eiði 14. „Já, það er búið að selja húsnæðið, Vinnslustöðin er að kaupa,“ sagði Grímur Gíslason, kokkur þegar hann var spurður út í málið. (meira…)

Lifandi loðna á Fiskasafninu

Í gær kom áhöfnin á Álsey VE færandi hendi þegar þeir komu með um 300 lifandi loðnur á Fiskasafnið. Loðnunum var komið fyrir í þremur af búrum safnsins og eru þær greinilega aðeins kvekktar yfir vistaskiptunum því að þær synda í þéttum hópum og halda sig niður við botn. Þær vita greinilega ekki að félagar […]

Heimaey afhent í næsta mánuði

Nýtt uppsjávarskip Ísfélagsins, Heimaey VE 1 verður afhent félaginu í lok marsmánaðar. Skipið hefur verið í smíðum hjá skipasmíðastöðinni ASMAR í Chile. Í samtali við Fiskifréttir, segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins að engar ákvarðarnir hafi verið teknar með rekstur skipsins eða framtíð og tengist það óvissunni vegna þeirra breytinga sem boðaðar hafa verið á fiskveiðistjórnunarkerfinu. […]

Aðalfundur �?ðins í kvöld

Aðalfundur Ungmennafélagsins Óðins verður haldinn í kvöld í fundarsal Íþróttamiðstöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og eru venjuleg aðalfundarstörf á dagskrá. Áhugamenn um frjálsar íþróttir í Vestmannaeyjum eru hvattir til að mæta á fundinn. (meira…)

Hver getur gleymt þjóðhátíðinni 1982?

Annað kvöld, föstudaginn 24. febrúar mun Stuðmaðurinn og Spilverkarinn Valgeir Guðjónsson halda tónleika í Höllinni ásamt fríðu föruneyti vaskra tónlistarmanna sem hafa flestir unnið með Valgeiri á einum eða öðrum tíma á ferlinum. Valgeir á margar minningar frá Eyjum en í viðtali í Fréttum rifjar hann upp þessa tíma. (meira…)

Vil vinna fyrir fólkið með fólkinu

Eftir vandlega umhugsun og mikla hvatningu víða að hef ég tekið ákvörðun um að gefa kost á mér sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Ég hef starfað í grasrót Sjálfstæðisflokksins frá unga aldri og eignast þar marga af mínum bestu vinum. Þann tíma sem ég starfaði sem yfirmaður í lögreglunni valdi ég að halda mér frá öllu […]

Einkarekinn Sóli

Undanfarið hefur skapast töluverð umræða um skólamál. Umræða sem er af hinu góða og umræða sem ég tel að við ættum að taka mikið oftar. Sitthvað hefur verið rætt og m.a. hvers vegna Vestmannaeyjabær telur rekstri Sóla betur borgið án aðkomu sveitarfélagsins. (meira…)

Ný gögn og rannsóknir benda til sakleysis

Ísland í dag var með ítarlega umfjöllun um mál Sigurðar Guðmundssonar á Stöð 2 á mánudagskvöld. Fyrir níu árum var Sigurður dæmdur í átján mánaða fangelsi í Hæstarétti fyrir að valda dauða níu mánaða drengs með hristingi. Barnið var þá í daggæslu sem Sigurður og fyrri kona hans ráku í Kópavogi. Sigurður hefur alla tíð […]

Margrét Lára í byrjunarliði Potsdam

Margrét Lára Viðarsdóttir er í byrjunarliði þýska stórliðsins Turbine Potsdam en liðið hóf leik gegn Hamburg klukkan 14 í þýsku deildinni. Þetta er fyrsti leikur Margrétar með Potsdam en hún gekk í raðir félagsins í haust frá Kristianstad. (meira…)

Stefnir í rétta átt

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari skaust stuttan loðnutúr með Ísleifi VE. Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Ísleifi hefur verið á loðnuvertíð síðan 1995 og jafnvel lengur en það en Óskar Pétur tók við hann sjónvarpsviðtal í miðjum túr. Jón Atli segir vertíðina góða og eitthvað í líkingu við það sem áður gerðist þegar stofninn var stór. […]

Skráningu í hópferð ÍBV lýkur á morgun

Eins og flestum ætti að vera kunnugt um, spilar kvennalið ÍBV til úrslita í Eimskipsbikarnum í Laugardalshöll á laugardaginn. ÍBV-íþróttafélag býður upp á hópferð á leikinn á ótrúlegu verði, aðeins 3.000 krónur fyrir far fram og til baka með Herjólfi, rútu til og frá Þorlákshöfn og miða á leikinn. Þá er frítt fyrir 13 ára […]

Tónlist U2 í Landakirkju 4. mars

Sunnudaginn 4. mars er Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar haldinn hátíðlegur. Í ár verður af því tilefni, haldin poppmessu í Landakirkju þar sem aðeins verða leikin lög með stærstu hljómsveit veraldarinnar, U2. Leikhúsbandið sér um flutning ásamt því að Birkir Högnason, Sísí Ástþórsdóttir og Jórunn Lilja Jónasdóttir ljá lögunum raddir sínar. (meira…)

Köttur í Vestamannaeyjum elskaði að láta ryksuga sig

„Hann vildi það, já,“ segir Helena Pálsdóttir, frá Vestmannaeyjum í samtali við DV.is en kötturinn hennar, Forrest elskaði að láta ryksuga sig á meðan hann var á lífi. Myndband af tilburðunum má finna hér að neðan en þegar askan úr Eyjafjallajökli náði til Eyja varð að hreinsa köttinn, sem var utandyra þegar askan var sem […]

�?flugir sjálfboðaliðar Rauða krossins í Eyjum

Sjálfboðaliðar Rauða kross Íslands um land allt prjóna, sauma, hekla og safna notuðum fatnaði til að senda í kuldann og neyðina í Hvíta Rússlandi. Fatnaðinum er dreift til fjölskyldna í Hvíta Rússlandi sem eiga um sárt að binda. Í flestum tilvikum er um að ræða barnmargar fjölskyldur sem þurfa að hafa mikið fyrir lífinu og […]

Uppsveifla í framkvæmdum í Eyjum

Mikið er um byggingarframkvæmdir á Heimaey um þessar mundir að sögn Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. Að hans sögn hefur árað vel í bænum á síðustu misserum. Þannig sé lítið atvinnuleysi þarog tekjur íbúanna háar. Því fari bæði einstaklingar og fyrirtæki frekar út í framkvæmdir en ella. Þetta kemur fram á www.mbl.is. (meira…)

�??�?g leyfi mér smá von�??

Hermann Hreiðarsson gengst á morgun undir aðgerð á öxl og líkast til spilar Eyjamaðurinn sterki ekki meira með á tímabilinu. Hermann var lánaður til Coventry frá Portsmouth í síðasta mánuði og í öðrum leik sínum með liðinu, gegn Blackpool, varð hann fyrir meiðslum á síðustu mínútu leiksins. (meira…)

Fundu fíkniefni við rannsókn á bílþjófnaði

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni vegna hinna ýmsu mála sem upp komu. Helgin fór ágætlega fram og lítið um útköll lögreglu á skemmtistaði bæjarins. Að morgni 20. febrúar var lögreglunni tilkynnt um að bifreið hafi verið stolið þar sem hún stóð við Kirkjuveg 57. Skömmu síðar fannst bifreiðin á Smáragötu og í […]

Eyjasystur í landsliðshópi kvenna

Systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur eru báðar í íslenska A-landsliðshópnum sem tekur þátt í Algarve Cup í Portúgal í lok mánaðarins. Margrét Lára er einn sterkasti og reynslumesti leikmaður liðsins en Elísa er nýliði í hópnum. Alls valdi Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari 21 leikmann að þessu sinni en Elísa er annar tveggja nýliða í […]

Meira um skólamál

Þar sem Páley Borgþórsdóttir var að segja í grein sinni að ég væri að fara með rangt mál langar mig að færa rök fyrir máli mínu. • Í lok síðustu aldar unnu tveir talmeinafræðingar við grunnskóla bæjarins þ.e. við Hamarsskóla og Barnaskóla. Þessir fræðingar voru í hlutastarfi en eins og fróðir menn muna, þá voru […]

Loðnuvertíðin á fullu

Loðnuflotinn nálgast nú Vestmannaeyjar en flotinn er nú við veiðar rétt austan við Landeyjahöfn. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari er um borð í uppsjávarskipinu Ísleifi VE, skipi Vinnslustöðvarinnar. Ísleifur er eitt af elstu skipum í uppsjávarflotanum en skipið var smíðað í Færeyjum 1976. Skipið er eingöngu notað þegar mikið liggur við, eins og nú þegar loðnuvertíðin […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.