Hópferð á bikarúrslitin

ÍBV-íþróttafélag er búið að skipuleggja hópferð á bikarúrslitaleik ÍBV og Vals í kvennaflokki næstkomandi laugardag. Innifalið eru ferðir með Herjólfi, rútuferðir til og frá Þorlákshöfn og miði á leikinn fyrir aðeins þrjú þúsund krónur. Dagskrá hópferðarinnar má sjá hér að neðan. (meira…)

Tryggvi skoraði tvö gegn ÍR

Tryggvi Guðmundsson skoraði í dag tvö mörk í 4:2 sigri ÍBV á ÍR í fyrsta leik liðanna í Lengjubikarnum. Hin mörkin gerðu þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson og enski framherjinn Aaron Spear. ÍBV komst í 4:1 en ÍR-ingar náðu að minnka muninn. (meira…)

Stelpurnar upp í þriðja sætið

Kvennalið ÍBV vann í dag laglegan sigur á HK í Íslandsmótinu í Eyjum en lokatölur urðu 29:26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16:11 ÍBV í vil. Eyjastúlkur voru allan tímann með yfirhöndina en náðu mjög góðum leikkafla undir lok fyrri hálfleiks þar sem þær náðu sex marka forystu en HK náði að minnka […]

Allt loft úr Eyjamönnum

Svo virðist sem allt loft sé úr karlaliði ÍBV. Eyjamenn, sem töpuðu ekki leik til að byrja með í Íslandsmótinu, hafa nú tapað fyrstu þremur leikjum sínum eftir áramót, nú síðast gegn Stjörnunni í dag í Garðabænum. Lokatölur urðu 37:30 fyrir Garðbæinga en staðan er nú þannig að ÍBV er í harðri baráttu við Selfoss […]

Stórleikur hjá stelpunum í dag

Í dag verður sannkallaður stórleikur í N1 deild kvenna þegar ÍBV tekur á móti HK í Eyjum en leikur liðanna hefst klukkan 13:00. Liðin berjast um þriðja sæti deildarinnar ásamt Stjörnunni en HK er í þriðja sæti með 14 stig eftir 11 leiki, ÍBV er í fjórða sæti með 12 stig eftir 10 leiki og […]

Sverrir Garðarsson í ÍBV

Varnarmaðurinn Sverrir Garðarsson er genginn til liðs við ÍBV og hefur þegar fengið leikheimild með sínu nýja félagi. Eyjamenn hafa ekki gefið út um samning við leikmanninn en þó fengið félagaskiptin staðfest hjá KSÍ. Hann hafði æft með liðinu í vikunni. Sverrir er með leikheimild og má spila með ÍBV þegar liðið mætir ÍR í […]

Ekki nýtt að menn rísi upp gegn orðum predikara og postula

„Ég segi allt gott, okkur líður ágætlega en þetta er merkileg reynsla,“ sagði Snorri í Betel þegar Fréttir slógu á þráðinn til hans en hann stendur í ströngu þessa dagana. Snorri hefur nú verið leystur tímabundið frá störfum sem kennari við Brekkuskóla vegna ummæla sem hann viðhafði á heimasíðu sinni um samkynhneigð. Mun Snorri því […]

Skandia aftur á flot

Grafskipið Skandia er nú komið aftur á flot eftir umfangsmiklar viðgerðir á botni skipsins. Talsverðar skemmdir voru á skipinu eftir átökin við sjávaröflin í Landeyjahöfn en viðgerð hefur staðið yfir síðustu vikur. Nú er unnið að því að gera skipið sjóklárt en m.a. þurfti að taka dælurör utan af skipinu, svo hægt væri að taka […]

Tvær sveitir sett stefnuna á Músíktilraunir

Á fundi Fræðslu- og menningarráðs á dögunum lagði menningarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, Kristín Jó­hannsdóttir, fram samning milli fulltrúa ungra tónlistarmanna og Vestmannaeyjabæjar. Í samningnum kemur fram að Vestmanna­eyjabær styrkir unga tónlistarmenn í Eyjum um afnot af húsnæði við Skildingaveg með því skilyrði að Vestmannaeyjabær geti nýtt krafta tónlistarmanna við menningar­tengda viðburði í bænum. (meira…)

Brúarfoss á leið til Eyja eftir sjávarháska

Gámaflutningaskipið Brúarfoss, sem er í eigu Eimskipa, lenti í sjávarháska við Reykjanes í nótt þegar það missti vélaraflið og rak að landi. Togarinn Höfrungur 3 hélt samstundis á staðinn og auk þess varðskipið Ægir og þyrla Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu. Þegar verið var að undirbúa að skjóta línu milli Brúarfoss og Höfrungs, tókst vélstjórum […]

Julie Nelson skoraði fyrir N-Írland

Besti leikmaður kvennaliðs ÍBV síðasta sumar, Julie Nelson skoraði fyrir N-Írland gegn Belgíu í undankeppni Heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu. Nelson jafnaði metin 2:2 en leikurinn fór fram í Belgíu. Úrslitin eru hagstæð fyrir íslenska landsliðið sem leikur í sama riðli. (meira…)

Frysting komin á fullt

„Við erum á fullu að frysta og bræða. Loðnan veiðist nú við Ingólfshöfða og skipin eru þetta 10 til 12 tíma á miðin. Sighvatur VE og Kap VE veiða í frystingu og Ísleifur VE og Kap II VE í mjöl og lýsi. Þetta er fínasta loðna, Sighvatur var að koma með nýjan farm og það […]

Fasteignagjöld felld niður hjá íbúum 70 ára og eldri

Á fundi bæjarráðs á mánudag var samþykkt að fella niður fasteignagjöld fyrir íbúa í Vestmannaeyjum 70 ára og eldri. Í fundargerð bæjarráðs kemur m.a. fram að sterkur staða bæjarsjóðs geri það að verkum að hægt sé að lækka álögur á eldri borgara með það fyrir augum að gera þeim kleift að búa sem lengst í […]

Loðnuveiðar kapphlaup við tímann

Búast má við að tugum þúsunda tonna verði bætt við loðnukvótann á næstunni. Vertíðin er að ná hámarki og víða er frysting hafin. Búið er að veiða tæplega helming kvótans.Loðnufrysting hófst í Vestmannaeyjum í nótt. Eftir því sem loðnan gengur sunnar með landinu er styttra á miðin fyrir Eyjaskipin. Heimsiglingin nú tekur um tólf tíma […]

Réttur Snorra til rangra skoðana?

Ég hef hikað við að tjá mig um orð Snorra Óskarssonar og viðbrögð bæjaryfirvalda á Akureyri við þeim. Ástæðan er ekki að ég hafi ekki skoðanir á þeim, heldur vegna þess hversu eldfimt þetta mál er. Ég hef verið hrædd við að skoðanir mínir séu hugsanlega ekki í samræmi við pólitískan rétttrúnað. (meira…)

Af hverju útboð á rekstri Sóla?

Með stolti segi ég að Vestmannaeyjabær veitir börnum afburða góða þjónustu. Rekstur leikskóla er hluti af því sem bærinn sinnir fyrir íbúa sína og ef þessi þjónusta á að vera eins og við viljum hafa hana kostar hún mikið. Bærinn greiðir langstærstan hluta þessa kostnaðar fyrir hvert barn eða um það bil 1,2 milljónir króna […]

Loðnufrysting hafin

Loðnufrysting hófst í Vestmannaeyjum í nótt eftir að tvö loðnuskip lönduðu þar. Kap, skip Vinnslustöðvarinnar, kom með rúm 800 tonn að landi á þriðja tímanum. Rétt eftir miðnætti sigldi Ólafur Einarsson, skipstjóri á Álsey, skipi Ísfélagsins til hafnar með um 1500 tonn. Ólafur segir að heimsiglingin hafi tekið rúma tólf tíma í nokkuð stífri vestanátt. […]

�?lvaður maður réðist inn í heimahús og heimtaði pening

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram nema hvað, eins og svo oft áður, var eitthvað um pústra en engar kærur liggja fyrir, enn sem komið er. Óskað var eftir aðstoð lögreglu laust eftir miðnætti þann 7. febrúar sl. í heimahús en þarna […]

Eyjakonan Sara Sigurðardóttir formaður Stúdentaráðs HÍ

Eyjakonan Sara Sigurðardóttir tók í dag við formennsku Stúdentaráðs Háskóla Íslands en Sara er oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Vaka vann meirihluta í Stúdentaráði í kosningum í byrjun febrúar en Sara er í grunnámi við stjórnmálafræðideild. Sara sat í Stúdentaráði á síðasta starfsári. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.