Riðlaskipting í 3. deild klár

Í morgun var birt riðlaskipting í 3. deild karla en Eyjaliðið KFS leikur í A-riðli í sumar ásamt Árborg, Berserkjum, Ísbirninum, Sindra, Stálúlfi, Vængjum Júpiters og Ægi. Þá var dregið í fyrstu umerðir bikarkeppninnar en KFS leikur í 1. umferð gegn Ármanni sunnudaginn 6. maí næstkomandi á Helgafellsvelli. Ef liðið leggur Ármann að velli, þá […]

Loðnufrysting framundan í Eyjum

Allt bendir til þess að frysting á loðnu til manneldis hefjist á næstu dögum, bæði hjá Vinnslustöð og Ísfélagi. Eitthvað hefur verið fryst hjá Ísfélaginu en stefnt er að því að hefja frystingu á næstu dögum. Hjá Vinnslustöðinni var svipað uppi á teningnum en til þessa hefur nánast allur loðnuaflinn farið í bræðslu. (meira…)

Rífandi gangur í loðnuveiðum

Nú er góður gangur í loðnuveiðum en Álsey VE landaði í gær fullfermi, eða 1.800 tonnum eftir tveggja daga túr en aflinn fór í bræðslu. Skipverjar á Álsey voru ekkert að tvínóna við hlutina, fóru strax út á miðin aftur og fengu tæplega 700 tonna kast nú í morgunsárið. Þetta kemur fram á bloggsíðu skipsins, […]

Hvað er að frétta Vestmannaeyjabær?

Er það virkilega þannig að bærinn minn treystir sér ekki til að reka leikskólann Sóla lengur? Hvað bull er þetta, af hverju á eitthvert fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu að vera betur til þess fallið að reka skólann heldur en bærinn okkar? Ef þetta snýst um sparnað þá finnst mér það hlægilegt. Um daginn las ég að […]

ÍBV fékk háttvísis- og grasrótarverðlaun

Ársþing KSÍ sem nú fer fram í 66. skipti var sett í morgun klukkan 11.00 og stendur enn yfir. Þar hlaut ÍBV háttvísisverðlaunin í Pepsi-deild kvenna. Einnig voru HK/Víkingur og Völsungur heiðruð fyrir háttvísi í 1. deild kvenna. (meira…)

Sálin í kvöld í Höllinni

Vinsælasta hljómsveit landsins síðustu 20 árin, Sálin hans Jóns míns, kemur til Eyja á laugardag og skemmtir í Höllinni í kvöld, laugardag. Þeir félagar hafa ekki komið í tæp 2 ár til Eyja og því löngu kominn tími á alvöru Sálardansleik í Eyjum. Að sögn Stefáns Hilmarssonar, söngvara og forsprakka sveitarinnar, er tilhlökkun í peyjunum, […]

Slakur sóknarleikur var Eyjamönnum að falli í dag

Arfaslakur sóknarleikur varð ÍBV að falli gegn Víkingum í Eyjum í dag en lokatölur urðu 21:22 fyrir gestunum, eftir að staðan í hálfleik var 8:9. Þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum höfðu heimamenn aðeins skorað tvö mörk, þar af annað úr vítakasti, sem segir ýmislegt um sóknarleik liðsins þessa dagana. Sigurður Bragason náði að hífa […]

Til styrktar Gunnari Karli

Á morgun, laguardag er leikur Liverpool og Man. Utd kl. 12:45. Verður leikurinn sýndur í Hallarlundi og munu Einsi kaldi og Höllin verða með sælkera­borg­ara og bjór eða gos á 2000 kr. eða frjálst framlag. Allur ágóði af sölunni mun síðan renna til Gunnars Karls Haraldssonar, sem hefur átt í erfiðum veikindum. (meira…)

Afinn færður til 18. maí

Vegna óviðráðanlegra orsaka verður að færa sýninguna á Afanum til föstudagsins 18. maí en sýna átti einleikinn bráðskemmtilega nú á laugardagskvöldið. Bæði Sigurði Sigurjónssyni og Björgvini Þór Rúnarssyni, sem flytur sýninguna, til Eyja þykir miður að þurfa grípa til þessa ráðs en ákvörðunin var sameiginleg. (meira…)

Íbúar sjávarbyggða hafa verið blekktir

Eftir að að hafa hlustað á erindi þitt í Valhöll s.l. haust, þar sem þú fórst yfir breytingartillögur ríkisstjórnarinnar um fiskveiðistjórn, þá komst ég að því að hagsmunir meirihluta íbúa sjávarbyggða eru langt í frá ofarlega í ykkar huga. Það sem ég tel að þið séuð að gera með því að halda uppi stanslausum hatursáróðri […]

�?órarinn Ingi og Gunnar Heiðar spila gegn Japönum

Eyjamennirnir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson munu leika með íslenska karlalandsliðinu gegn Japönum, í Japan 24. febrúar næstkomandi. Gunnar Heiðar hefur lengi verið viðloðandi íslenska landsliðið en Þórarinn Ingi er í fyrsta sinn í leikmannahópi A-landsliðsins. (meira…)

Hátíðarmynd Páls Steingrímssonar sýnd á laugardag

Sagnheimar, byggðasafn er opið í vetur á laugardögum kl. 13-16. Undanfarna laugardaga hafa verið sýndar nokkrar myndir úr frábæru heimildamyndasafni Páls Steingrímssonar (KVIK kvikmyndagerð). Laugardaginn 11. febrúar er komið að síðustu myndinni í þessari syrpu, myndinni Hátíð, þar sem fjallað er um Þjóðhátíð og mannlíf í Vestmannaeyjum á árunum 1980-1990. Myndin verður sýnd kl. 13:30 […]

Tilgangur lífsins að verða afi

Einleikurinn Afinn verður sýndur í Höllinni á morgun, laugardag. Það er enginn annar en gamanleikarinn góðkunni, Sigurður Sigur­jónsson, sem fer með aðalhlutverkið í verkinu en leikstjórn var í höndum Bjarna Hauks Þórssonar, sem einnig samdi verkið í samstarfi við Sigurð. Þeir félagar hafa áður unnið saman, bæði að Hellisbúanum og einleiknum Pabbinn en ákváðu að […]

Svavar Knútur með tónleika í kvöld á Kaffi Kró

Tónlistarmaðurinn og söngvaskáldið Svavar Knútur verður með tónleika á Kaffi Kró í kvöld klukkan 21:00. Svavar hefur nýtt daginn vel í Eyjum en í morgun lék hann fyrir nemendur Grunnskóla Vestmannaeyja og á eftir mun hann koma við á Hraunbúðum. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hann spilað fyrir grunnskólakrakkana. (meira…)

Umsóknarfrestur um styrki Menningaráðs Suðurlands að renna út

Umsóknarfrestur til að sækja um styrki til Menningarráðs Suðurlands er til og með 11. febrúar nk. Allir þeir, sem hafa áætlanir um áhugaverð menningarverkefni eru hvattir til að sækja um styrk til sjóðsins. Nánari upplýsingar um sjóðinn, sem og ráðleggingar um gerð umsókna veitir Dorothee Lubecki menningarfulltrúi Suðurlands. (meira…)

Harma aðferðir umhverfisráðuneytis

Bjargveiðimannafélag Vestmanna­eyja hélt fund í Svölukoti síðasta laug­ardag. Þar voru mættir um fjörutíu félagar úr úteyjaveiðifé­lög­um til að ræða tillögur svartfugla­nefndarinnar svonefndu. Hlöðver Guðnason, formaður Veiðifélags Bjarnareyinga og Bjargveiðimannafélags Vestmanna­eyja, hélt erindi á fundinum. (meira…)

Slysavarnaskólinn átti örugglega þátt í því að hann lifði þetta af

Viðtalið við Eirík Inga Jóhannsson, skipverjann sem bjargaðist þegar skuttogarinn Hallgrímur SI fórst á siglingu til Noregs, í Kastljósi í síðustu viku, hefur vakið mikla athygli. „Mér fannst átakanlegt að heyra viðtalið en það var greinilegt að þessi maður vissi hvað hann var að gera og hafði verið þjálfaður til að takast á við ýmsar […]

ÍBV í úrslit bikarkeppninnar

Kvennalið ÍBV er komið í úrslitaleik Eimskipsbikarsins eftir sannfærandi sigur á FH í kvöld. Fyrirfram var búist við öruggum sigri ÍBV og það rættist því þrátt fyrir að ÍBV hafi ekki sýnst sparihliðarnar í kvöld, þá var sigurinn í raun og veru aldrei í hættu. Florentina Stanciu var í banastuði í marki ÍBV og varði […]

Bæjarráð vill fá Hjallastefnuna til Eyja

Á fundi bæjarráðs í gærdag segir að bæjarráð fagni þeim tækifærum sem samningur um rekstur leikskólans Sóla gefur til skólaþróunar í Vestmannaeyjum. Fræðslu- og menningarráð hafði áður samþykkt að ganga til samninga við Hjallastefnuna um rekstur leikskólans. Og í samræmi við þá ákvörðun ráðsins samþykkti bæjarráð að ganga til samninga við Hjallastefnuna sem bauð lægst […]

Hækkun lífeyris hefur haldið

„Stærsti hluti af fjármálakerfi Íslands hrundi á örfáum sólar­hringum haustið 2008 og síðar mörg af stórfyrirtækjum landsins. Við slíkar aðstæður lætur ýmislegt undan og kom höggið niður á fólki, fyrirtækjum, ríki, sveitarfélögum og lífeyrissjóðum,“ sagði Haukur Jónsson, framkvæmda­stjóri Lífeyrissjóðs Vestmanna­eyja, um skýrslu um stöðu líf­eyrissjóða á Íslandi sem kom út í síðustu viku. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.