Málinu eingöngu vísað frá á grundvelli formsatriða

Þann 6. febrúar sl. vísaði Héraðsdómur Suðurlands frá dómi kröfu Stillu útgerðar ehf. o.fl. um að lagt verði lögbann við sameiningu Vinnslustöðvarinnar hf. og Ufsabergs-Útgerðar ehf. Ákvörðun um sameiningu var tekin á hluthafafundi í Vinnslustöðinni hf. þann 21. september sl. og telja umbjóðendur mínir, sem eiga rúmlega 30% hlutafjár í Vinnslustöðinni, að ákvörðunin sé ólögmæt. […]
�?yrla sótti veikan 14 mánaða dreng til Vestmanneyja

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gærkvöldi 14 mánaða veikan dreng til Vestmannaeyja og var hann fluttur á barnaspítala Hringsins. Upphaflega átti að sækja hann á venjulegri sjúkraflugvél, en veður var of slæmt fyrir hana í Eyjum þannig að kallað var á þyrlu. Ferðin gekk vel þrátt fyrir vont veður. (meira…)
Minni vinna búin en búist var við

Vinna við kvótafrumvarpið var ekki jafn langt komin og búast hefði mátt við sagði Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á opnum fundi í Vestmannaeyjum í kvöld. Steingrímur fór þar yfir stöðu mála síðan hann tók við frumvarpsgerð úr höndum Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, um áramót. (meira…)
Fengu fjóra hvali í nótina í tveimur köstum

Uppsjávarskipið Álsey VE er á landleið með um 1.400 tonn af loðnu sem veiddist í nótt og fyrrinótt. Veiðin gekk ekki sem best því tveir hvalir flæktust inn í nótina hjá Álsey í fyrra kastinu og eftir talsvert basl og tilfæringar, tókst loks að ná hvölunum úr nótinni. En þar með var raunum áhafnarinnar ekki […]
Seinkun á komu til Eyja og engin seinni ferð

Herjólfur er á leið til Eyja en vegna veðurs seinkar komu hans til kl 15:30. Staðfest hefur verið að seinni ferð dagsins verður farin og er áætluð brottför aftur frá Eyjum er 16:00. Farþegar þurfa að gera ráð fyrir töluverðum veltingi. UPPFÆRT: Seinni ferð Herjólfs fellur niður. (meira…)
�?að má ferðast drjúgt fyrir 1600 milljónir

Íslendingar eru tæplega 320 þúsund. Á þingi sitja 63 fulltrúar þessarar fámennu þjóðar. 40 þeirra nýttu 64 milljónir til að ferðast til útlanda á seinasta ári. Ráðherrar og starfsmenn ráðuneyta telja hér ekki með enda kostnaður vegna ferða þeirra skráður á viðkomandi ráðuneyti. Burtséð frá því hvar kostnaður er skráður þá greiðum við þetta allt […]
Viðvörun �?? óvissa með seinni ferð þriðjudag

Vegna veður- og ölduspá sendum við út viðvörun vegna seinni ferðar í dag, þriðjudag. Gert er ráð fyrir allt að 20m/s vindhraða og 7-8 metra ölduhæð og hefur Veðurstofan sent frá sér viðvörun. Næstu upplýsingar verða gefnar út fyrir kl 14. (meira…)
Stelpurnar mínar taka þetta

Eins og áður hefur komið fram leikur kvennalið ÍBV gegn FH í undanúrslitum bikarkeppninnar í dag klukkan 18. Liðin eru átta ár frá því að ÍBV varð síðast bikarmeistari en 2004 hafði ÍBV betur gegn Haukum í Laugardalshöllinni 35:32 í stórskemmtilegum úrslitaleik. ÍBV var reyndar langbesta liðið þetta árið, vann allt og komst í undanúrslit […]
Svavar Knútur heldur tónleika á fimmtudaginn

Tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Svavar Knútur heldur tónleika á Kaffi Kró næstkomandi fimmtudag klukkan 21:00. Svavar Knútur hefur verið iðinn við kolann undanfarin misseri og komið víða fram, bæði hérlendis og erlendis. Auk tónleikana á Kaffi Kró, mun Svavar Knútur koma fram í Grunnskóla Vestmannaeyja og á Hraunbúðum. (meira…)
Hemmi Hreiðars þarf í aðgerð

Hermann Hreiðarsson verður líklega frá í einhvern tíma en hann þarf að fara í aðgerð. Frá þessu greindi hann í viðtali við Sportrásina á Rás 2 í gærkvöldi. „Ég lenti asnalega á hendinni og skall á öxlinni svo eitthvað fór í sundur. Það er líklegt að ég þurfi að fara í einhverja aðgerð vegna þess, […]
Stal lunda og fór með hann á Lundann

Um helgina var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt að uppstoppuðum lunda hafi verið stolið af skemmtistaðnum Conero. Vitað var hver var þar að verki og fóru lögreglumenn á stúfana og höfðu uppi á manninum á skemmtistaðnum Lundanum, með lundann. Lundinn, það er að segja sá uppstoppaði, hafði eitthvað skemmst í flutningunum en maðurinn kvaðst tilbúinn að […]
Smurstöðin fallin

Um síðustu helgina voru þeir hjá Laurel & Hardy að brjóta niður Smurstöðina við Græðisbraut. Þetta hús átti sögu en kannski ekki mjög merka sögu. Byggð til að þjóna miklum fjölda vörubíla sem hér voru, trogbílarnir voru reyndar lengst af á síðustu öld miklu fleiri en minni einkabílar hér í Eyjum. Eftir að Bílastöðin hætti […]
Stórleikur hjá stelpunum á morgun

Kvennalið ÍBV á fyrir höndum afar mikilvægan leik á morgun, þriðjudag klukkan 18, þegar liðið tekur á móti FH í undanúrslitum Eimskipsbikarkeppninnar. Liðin hafa einu sinni mæst í vetur en þá unnu Eyjastúlkur stórsigur, 24:10 en staðan í hálfleik var 11:6. FH er í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig eftir 10 leiki en ÍBV […]
Opinn fundur VG og Samfylkingar á morgun

Þriðjudaginn 7. feb. kl. 20:00, halda Vinstrihreyfingin- grænt framboð og Samfylkingin sameiginlegan opinn fund í Alþýðuhúsinu. Á fundinn mæta frá Vinstri grænum: Ráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir og þingmaðurinn Björn Valur Gíslason. Frá Samfylkingunni: Þingmennirnir Róbert Marshall og Björgvin G. Sigurðsson. Landsmálin almennt verða til umræðu, ekki síst sjávarútvegsmál, atvinnumál, byggðamál, ESB mál […]
Breytingar á akstri Strætó á Suðurlandi

Frá og með 12. febrúar verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. (meira…)
Áhöfnin á Herjólfi gerir grín að stöðunni

Um helgina var árshátíð Eimskips haldin í Laugardalshöll og var margt um manninn enda fjölmargir sem starfa hjá fyrirtækinu. Boðið var upp á ýmis skemmtiatriði en eitt atriðið vakti verðskuldaða athygli. Áhöfnin á Herjólfi fór þá upp á svið og flutti frumsaminn texta við lagið Lífið er lotterí en textann sömdu þeir Gunnar Heiðar Gunnarsson, […]
Elísa æfir með Potsdam

Elísa Viðarsdóttir, varnarmaður í knattspyrnuliði ÍBV æfir þessa dagana með einu besta liði Evrópu, Potsdam. Elísa er í heimsókn hjá systur sinni, Margréti Láru sem er leikmaður liðsins en Elísu var boðið að æfa með liðinu í heimsókninni. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV, www.ibvsport.is. (meira…)
Markaveisla í leik ÍBV og ÍA

Knattspyrnulið ÍBV sótti ÍA heim upp á Akranes í dag en liðin léku þar um fimmta sætið í Fótbolti.net mótinu. Eyjamenn byrjuðu mjög vel í leiknum, komust í 0:3 en þá kom upp kæruleysi í leik ÍBV sem varð til þess að Skagamenn unnu sig inn í leikinn og lokatölur urðu 5:5 í ótrúlegum markaleik. […]
Slæmt tap hjá strákunum í dag

Svo virðist sem karlalið ÍBV sé að missa af efsta sætinu í 1. deild en strákarnir sóttu í dag Selfoss heim. Eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfeik, 7:10, voru það heimamenn í Selfossi sem voru sterkari í síðari hálfleik og fögnuðu eins marks sigri, 21:20. Þegar átta umferðir eru eftir, eru Eyjamenn […]
Herslumuninn vantar enn

Valur fór með sigur af hólmi í Eyjum í dag þegar liðið sótti ÍBV heim í N1 deild kvenna. Lokatölur urðu 32:39 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18:21. Munurinn í leikslok gefur þó ekki rétta mynd af gangi leiksins því Eyjastúlkur veittu Íslandsmeisturunum verðuga keppni en vantaði herslumuninn til að jafna metin. (meira…)