Uppsjávarskipið Álsey VE er á landleið með um 1.400 tonn af loðnu sem veiddist í nótt og fyrrinótt. Veiðin gekk ekki sem best því tveir hvalir flæktust inn í nótina hjá Álsey í fyrra kastinu og eftir talsvert basl og tilfæringar, tókst loks að ná hvölunum úr nótinni. En þar með var raunum áhafnarinnar ekki lokið því í næsta kasti, komu aftur tveir hvalir í nótina, ótrúleg óheppni og enn og aftur þurfti áhöfnin að taka sér nál í hönd og bæta í það sem hvalirnir rifu.