Seinni ferð Herjólfs fellur niður

Því miður neyðumst við til þess að fella niður seinni ferð laugardag vegna slæmrar veður- og ölduspá. Nú gerir spáin ráð fyrir 28 m/s vindhraða og 6 metra ölduhæð. Mun betra útlit er fyrir sunnudag og er gert ráð fyrir því að Herjólfur sigli samkvæmt áætlun þá. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum […]

�?vissa með seinni ferð Herjólfs í dag

Því miður hefur spáin aftur versnað og því er óvissa með seinni ferð dagsins. Búist er við 28 m/s vindhraða og 6 metra ölduhæð. Við hvetjum farþega okkar til að fylgjast með fréttum af veðri og á vefsíðum okkar. Næstu upplýsingar verða gefnar út kl 13. (meira…)

Stórleikur í Eyjum í dag

Kvennalið ÍBV tekur í dag, klukkan 13:00 á móti Íslandsmeisturum Vals í Eyjum. Valsarar hafa verið í nokkrum sérflokki í N1 deildinni í vetur ásamt Fram en Eyjastúlkur hafa verið að sækja í sig veðrið og gætu mögulega veitt Valsstúlkum verðuga keppni í dag. (meira…)

Réttindalaus, undir áhrifum og með eiturlyf í bílnum

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur eftirlit með komufarþegum Herjólfs í Vestmannaeyjum. Við reglubundið eftirlit í dag, voru höfð afskipti af ökumanni bifreiðar sem var að koma með skipinu. Í ljós kom að ökumaðurinn var sviptur ökuleyfi. Fíkniefnahundurinn Luna var látinn leita í bifreiðinni og fann hundurinn 150 til 200 grömm af maríjúana. Þá reyndist ökumaðurinn, sem […]

�?rslitaleikur í snóker í kvöld

Í kvöld klukkan 19:30 hefst úrslitaleikur Olísmótsins í snóker. Í Olísmótinu mætast sveitir Akóges, Oddfellow og Kiwanis og stigahæsta sveitin ber sigur úr býtum. Í ár urðu Akógesmenn sigurvegarar en það aðeins í annað sinn sem aðrir en Kiwanismenn fagna sigri í mótinu frá upphafi og í bæði skiptin voru það Akógesmenn sem náðu þeim […]

Lögfræðingabrandari

Vel klæddur lögfræðingur fór inn á bar og pantaði martini og sá að við hliðina á honum sat róni sem muldraði og glápti á eitthvað í hendinni á sér. Lögfræðingurinn hallaði sér lengra að honum og heyrði að róninn sagði: „ þetta lítur út eins og plast“, síðan rúllaði hann því á milli fingranna á […]

Tveir danskir leikmenn til reynslu hjá ÍBV

Tveir danskir leikmenn verða til reynslu hjá ÍBV um helgina en þetta eru þeir Kenneth Stenild Nielsen, markvörður og Christian Olsen, sóknarmaður. Nielsen var um tíma til reynslu hjá ensku stórliðunum Arsenal og Manchester United og hefur spilað með öllum yngri landsliðum Danmerkur en varnarmaður ÍBV, hinn danski Rasmus Christiansen mælir sérstaklega með honum. Olsen […]

Landeyjarhöfn, staðan

Mikil umfjöllun um Landeyjarhöfn að undanförnu í Eyjamiðlum, en mig langar að byrja á að þakka Gísla Jónassyni og Sigmund Jóhannessyni fyrir þeirra framlög í síðustu Fréttum. Gísli er reyndar með sömu grein eða svipaða og hann hefur skrifað frá því löngu áður en framkvæmdir við Landeyjarhöfn hófust, en Gísli, eins og svo margir þessir […]

Siggi Sigurjóns á leiðinni til Eyja með Afann

Grín einleikurinn Afinn, með Sigga Sigurjóns í aðalhlutverki, verður sýndur í Höllinni laugardaginn 11. febrúar. Afinn hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og hefur auk þess verður settur upp í Þýskalandi. Forsala miða er hafin í Axel Ó. en miðar verða einnig seldir við innganginn á sýningardegi. Þá ætlar Einsi Kaldi að bjóða upp […]

�?rkoma í janúar aldrei mælst meiri frá upphafi mælinga

Úrkoma á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist 314,4 mm. í janúar. Þar hefur verið mælt samfellt frá 1921 og hefur aldrei mælst meiri úrkoma í janúar en nú. Áður var mælt í kaupstaðnum frá 1881 og þar mældist heldur aldrei meiri úrkoma í janúar en nú. Endanlegt uppgjör liggur ekki fyrir á fleiri veðurstöðvum en svo […]

Hanna Birna opnar blóma­verslun við Bárustíg

Hanna Birna Jóhannsdóttir hefur opnað blómabúð, þar sem Blóma­skerið var áður til húsa við Bárustíg 11 en verslunin hefur fengið nafnið Blómabúð Hönnu. Hanna hefur um áratugaskeið verið viðloðandi blóma­skreytingar og starfaði m.a. lengi með Imbu Johnsen, í blóma­verslun hennar. (meira…)

Hjallastefnan velkomin til Eyja,……en?

Stýrihópur vegna útboðs á rekstri leikskólans Sóla og fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar hafa mælt með því að tilboði Hjallastefnunar í rekstur leikskólans verði tekið. Það er gott og blessað. Það tilboð var lægst og kannski eðlilegt að því skuli tekið. En fleira hangir á spýtunni. Hvar verður yfirstjórn leikskólans og þá væntanlega hæstu launin greidd. […]

Yfirleitt logn á Stórhöfða að undanförnu

Þeir sem leggja við hlustir þegar útvarpað er frá Veðurstofu Íslands kl. 10.10 á morgnana, hafa tekið eftir því að nú að undanförnu hefur yfirleitt verið logn á Stórhöfða. – Ekki þar fyrir að oft er jú logn á Stórhöfða , – en þegar rokhvasst er í Vestmannaeyjabæ, en logn á Stórhöfða, – er eitthvað […]

�?llu starfsfólki sagt upp

„Þar sem núgildandi samningur milli Eimskips og Vegagerðarinnar um rekstur Herjófls rennur út 30. apríl næskomandi neyðumst við til að segja upp öllum samningum sem Eim­skip hefur gert varðandi Herjólf og afgreiðslur hans,“ sagði Gunn­­laugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs í Vestmanna­eyjum. Í allt nær þetta til um 40 starfs­manna. (meira…)

Erfitt að ganga framhjá Bubba

„Dagskrá þjóðhátíðar skiptir máli og er í stöðugri endur­skoðun. Því var lengi vel haldið fram að hún skipti ekki máli. Ég er því algjörlega ósammála. Við vöndum til við dagskrá og teljum að þjóð­hátíð eigi að standa upp úr sem fjölskylduskemmtun,“ sagði Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóhátíðarnefndar, þegar hann spurður um hvort fyrirhugaðar væru breytingar […]

Eyjamenn gætu lagt upp undir níu milljarða til þjóðarbúsins í loðnu

Steingrímur J. Sigfússon, sjávar­útvegsráðherra, hefur ákveðið aflamark í loðnu í samráði við Hafrann­sóknastofnunina sem lagði til að heildaraflamark á vertíðinni verði 765 þúsund tonn. Er það 33 þúsund tonnum umfram þær spár sem lágu til grundvallar bráðabirgðaafla­marki. Hlutdeild Vestmannaeyinga er tæp 170 þúsund tonn sem gæti skilað allt að 10 milljarða verðmæti. Stefnir í að […]

Gengið til samninga við Hjallastefnuna ehf

Á fundi Fræðslu- og menningarráðs í gær var tekin fyrir ályktun stýrihóps vegna útboðs á rekstri leikskólans Sóla. „Eftir að hafa metið tilboðin sem bárust hefur stýrihópur komist að eftirfarandi niðurstöðu: Af þeim þremur tilboðum sem bárust vegna útboðs rekstrar leikskólans Sóla voru tvö sem uppfylltu öll skilyrði sem sett voru í útboðsforsendum. Stýrihópurinn mælir […]

Eyjamenn snöggir að hala inn fyrir Landeyjahöfn og nýrri ferju

Gjaldeyristekjur sem Vestmannaeyingar skapa á tíu vikna loðnuvertíð stefna í að verða álíka miklar og kostnaður við bæði Landeyjahöfn og nýjan Herjólf. Skip Vinnslustöðvarinnar, Sighvatur Bjarnason, sést á myndum Gísla Óskarssonar, sem sýndar voru í fréttum Stöðvar 2, sigla inn til Vestmannaeyja síðastliðið laugardagskvöld með tólfhundruð tonn af loðnu en skipið er síðan aftur væntanlegt […]

Íhuga að flytja út sorp

Vestmannaeyjabær íhugar að flytja sorp til útlanda, til brennslu. Að óbreyttu verða sorpbrennslustöðvar í Eyjum og á Kirkjubæjarklaustri ólöglegar um næstu áramót. Umhverfisráðherra vill fella úr gildi undanþágur eldri sorpbrennslustöðva. (meira…)

Herjólfi seinkar vegna veðurs

Herjólfi seinkar í dag vegna veðurs en von er á skipinu til Eyja klukkan 15:30. Áætlaður brottfarartími í síðari ferð skipsins í dag frá Eyjum er klukkan 16:00 en samkvæmt áætlun frá Þorlákshöfn, klukkan 19:15. Farþegar eiga að mæta 30 mínútum fyrir brottför en hægt er að fylgjast með staðsetningu skipsins hér að neðan. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.