Herjólfi seinkar vegna veðurs

Herjólfi seinkar í dag vegna veðurs en von er á skipinu til Eyja klukkan 15:30. Áætlaður brottfarartími í síðari ferð skipsins í dag frá Eyjum er klukkan 16:00 en samkvæmt áætlun frá Þorlákshöfn, klukkan 19:15. Farþegar eiga að mæta 30 mínútum fyrir brottför en hægt er að fylgjast með staðsetningu skipsins hér að neðan. (meira…)

Vetrarhátíð Vestmannaeyja í Höllinni 17. mars

Vinsælasti söngvari og poppari Íslands undanfarin rúm 40 ár, sjálfur Björgvin Halldórsson, er á leið til Eyja og skemmtir Eyjamönnum og gestum þeirra í Höllinni þann 17.mars. Björgvin mætir ásamt 6 manna hljómsveit og heldur svipaða tónleika og hann hélt í tilefni sextugs afmælisins á liðnu ári. Ekki nóg með að hann spili rjómann af […]

Ungir sjálfstæðismenn í Eyjum taka undir með formanni flokksins

Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, taka undir þau orð sem fram koma í þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins varðandi afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde. Sérstaklega skal bent á að með niðurstöðu Alþingis í málinu voru mannréttindi Geirs fótum troðin. Illa er farið með réttarríkið og unga lýðveldið okkar þar sem mannréttindi hafa […]

Brotist inn í Íþróttamiðstöð og Berg VE

Tvö innbrot komu inn á borð lögreglunnar í Vestmannaeyjum í vikunni. Að morgni 27. janúar fór dökkklæddur maður inn í Íþróttamiðstöðina en af upptökum í eftirlitsmyndavélum visðist sem styggð hafi komið að manninum þegar öryggiskerfi hússins fór í gang og hann lét sig hverfa. Hins vegar bendir allt til þess að hægt verði að bera […]

Lífshlaupið hefst á miðvikudaginn

1. febrúar næstkomandi hefst Lífshlaupið, verkefni sem heilsu- og hvattningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ísland á iði, stendur fyrir. Um er að ræða vinnustaðakeppni, hvatningarleik fyrir grunnskóla og einstaklingskeppni um allt land sem stendur til 21. febrúar. Meginmarkmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til að hreyfa sig og huga að sinni daglegu hreyfingu í frítíma, […]

Pétur Jóhann og Steini fresta komu til Eyja

Pétur Jóhanna og félagar hafa ákveðið að fresta sýningunni sinn til 9. mars þar sem allt er komið á fullt í vinnu í Eyjum. Sýningin var fyrirhuguð þann 2. febrúar en færist til föstudagskvöldið 9. mars og verður hún í Höllinni Vestmannaeyjum kl 20:30. (meira…)

Eyjamenn töpuðu fyrir Stjörnunni

Karlalið ÍBV í knattspyrnu tapaði fyrir Stjörnunni í dag í Fótbolti.net mótinu en leikur liðanna fór fram í Kórnum í Kópavogi. Lokatölur urðu 2:1 Stjörnunni í vil en staðan í hálfleik var 0:1 ÍBV í vil. Eyjamenn enduðu því mótið með einn sigur og tvö töp og komust ekki í úrslitaleikinn. Mark ÍBV gerði Guðmundur […]

Synirnir

Nokkrir menn voru saman komnir til að spila póker. Meðal þeirra var maður að nafni Guðmundur. Þegar líða tekur á kvöldið fara þeir að tala um syni sína og eru flestir þeirra afar stoltir af sonum sínum. Þegar Guðmundur þarf að skreppa á klósettið byrja félagar hans að pískra. „Aumingja Guðmundur”, segir Halli, „Sonur hans […]

Áætlað að Herjólfur sigli klukkan 16

Áætluð brottför 16:00 frá Eyjum og 19:15 frá Þorlákshöfn. Samkvæmt fréttum frá Vegagerðinni er búið að opnað fyrir umferð milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi. (meira…)

Hittast vegna Færeyjaferðar í kvöld

Blítt og létt hópurinn ætlar að hittast á kaffi Varmó í kvöld föstudag kl. 21:00 Farið verður yfir fyrirhugaða færeyjarferð ásamt því að fulltrúi okkar í Færeyjum verður á staðnum. Endilega látið sjá ykkur bæði þeir sem hafa skráð sig og þeir sem eru að hugsa málið. (meira…)

Seinkun á komu Herjólfs vegna veðurs og sjólags

Seinkun verður á komu Herjólfs til Eyja vegna veðurs og sjólags. Áætluð koma er 15:30. Stefnt er að því að að seinni ferð Herjólfs fari frá Eyjum kl 16:00 og á áætlun frá Þorlákshöfn kl 19:15. Enn er lokað fyrir umferð milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar en unnið er að opnum og samkvæmt fréttum frá Vegagerðinni […]

Er mesta björgun Íslandssögunnar

Á mánudaginn, 23. janúar sl. voru 39 ár frá því að gos hófst á Heimaey þegar upp kom eldur á um tveggja km sprungu sem rifn­aði austan við Helgafell og náði niður í sjó við Urðavita. Næst sprungunni voru Kirkjubæirnir sem fyrstir fóru undir hraun og vikur. Þess nótt urðu 5200 Vestmannaeyingar flóttamenn þegar þeir […]

�?jónusta allt á hjólum

Gylfi Gíslason og Adólf Þórsson hafa keypt Hjólbarðastofuna við Hásteinsveg af Magnúsi Bragasyni og tóku við rekstrinum um síðustu áramót. „Við keyptum verkstæðið með fylgihlutum og erum tveir við þetta,“ sagði Adólf en þeir félagar hafa hug á að bæta við sig verkefnum. (meira…)

Hlutur Íslands 590 þúsund tonn

Hlutur Íslands í þeim heildarafla sem Hafrannsóknastofnun leggur til á yfirstandandi loðnuvertíð er 590 þúsund tonn. Útflutningsverðmæti loðnunnar er um 30 milljarðar króna. Hlutur Færeyja er 30.000 tonn. Þetta kemur fram á vef LÍÚ. (meira…)

Eyjastelpur fengu heimaleik gegn FH

Í hádeginu í dag var dregið í undanúrslitum Eimskipsbikar kvenna en í pottinum voru ÍBV, Valur, Stjarnan og FH. Segja má að Eyjastúlkur hafi dottið í lukkupottinn því liðið fékk heimaleik gegn FH, sem fyrirfram er talið slakasta liðið af þessum fjórum. Í hinni viðureigninni sækir Stjarnan Val heim. (meira…)

Verður Sorpbrennslunni lokað og sorp flutt í burtu?

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja fór á síðasta fundi yfir drög að breytingu á reglugerð umhverfisráðuneytis nr. 739/2002 um brennslu úrgangs frá 19.desember 2011. Helstu breytingar í drögunum eru að viðmiðunarmörk útblástursefna hjá sorpbrennslustöðvum sem fengu starfsleyfi fyrir 28. desember 2002 eru lækkuð til samræmis við þær kröfur sem gerðar eru til nýrra sorpbrennslustöðva. (meira…)

Aðalfundur Félags eldri borgara í kvöld

Aðalfundur félags eldri borgara í Vestmannaeyjum verður í kvöld, fimmtudaginn 26. janúar klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn í Alþýðuhúsinu. Aðalfundarstörf verða samkvæmt félagalögum en auk þess mun Kristján Óskarsson kynna hugmynd að fjölbýlishúsi. (meira…)

Reisa fjölbýlishús við Miðstræti

Steini og Olli ehf. hyggjast byggja fjölbýlishús við Miðstræti með þrettán til fimmtán íbúðum í ýmsum stærðum og í húsinu verður bíla­kjallari og lyfta. (meira…)

Herjólfur siglir klukkan 12

Vegna óveðursins sem nú geysar um allt land, m.a. í Eyjum, sigldi Herjólfur ekki fyrri ferð sína í morgun. Skipið mun hins vegar sigla síðar í dag, eða klukkan 12:00 og 17:00 frá Þorlákshöfn eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Eimskip. Verið er að vinna að því að opna Þrengslin og þess vegna […]

Leita að farþega­bát til að sigla í Landeyjahöfn

Í fréttatilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra og Guð­laugi Friðþórssyni, bæjarfulltrúa eftir fundinn kemur fram að heimamenn hafi velt upp þeim mögu­leika að fá öflugan farþega­bát, með fullt haffæri á tilgreindu hafsvæði, til að veita þjónustu með föstum ferðum í Landeyja­höfn á þeim tíma sem Herjólfur getur eingöngu siglt í Þorláks­höfn, vegna dýpis eða annarra vandamála. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.