Á mánudaginn, 23. janúar sl. voru 39 ár frá því að gos hófst á Heimaey þegar upp kom eldur á um tveggja km sprungu sem rifnaði austan við Helgafell og náði niður í sjó við Urðavita. Næst sprungunni voru Kirkjubæirnir sem fyrstir fóru undir hraun og vikur. Þess nótt urðu 5200 Vestmannaeyingar flóttamenn þegar þeir flýðu heimkynni sín með skipum og bátum til Þorlákshafnar og með flugi.