Gylfi Gíslason og Adólf Þórsson hafa keypt Hjólbarðastofuna við Hásteinsveg af Magnúsi Bragasyni og tóku við rekstrinum um síðustu áramót. „Við keyptum verkstæðið með fylgihlutum og erum tveir við þetta,“ sagði Adólf en þeir félagar hafa hug á að bæta við sig verkefnum.