Seinkun verður á komu Herjólfs til Eyja vegna veðurs og sjólags. Áætluð koma er 15:30. Stefnt er að því að að seinni ferð Herjólfs fari frá Eyjum kl 16:00 og á áætlun frá Þorlákshöfn kl 19:15. Enn er lokað fyrir umferð milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar en unnið er að opnum og samkvæmt fréttum frá Vegagerðinni styttist í að hægt verði að opna veginn fyrir almennri umferð.