Herjólfur siglir klukkan 12

Vegna óveðursins sem nú geysar um allt land, m.a. í Eyjum, sigldi Herjólfur ekki fyrri ferð sína í morgun. Skipið mun hins vegar sigla síðar í dag, eða klukkan 12:00 og 17:00 frá Þorlákshöfn eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Eimskip. Verið er að vinna að því að opna Þrengslin og þess vegna […]
Leita að farþegabát til að sigla í Landeyjahöfn

Í fréttatilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra og Guðlaugi Friðþórssyni, bæjarfulltrúa eftir fundinn kemur fram að heimamenn hafi velt upp þeim möguleika að fá öflugan farþegabát, með fullt haffæri á tilgreindu hafsvæði, til að veita þjónustu með föstum ferðum í Landeyjahöfn á þeim tíma sem Herjólfur getur eingöngu siglt í Þorlákshöfn, vegna dýpis eða annarra vandamála. […]
Landeyjahöfn veiti þjónustu allt árið frá og með árinu 2015

Á seinustu vikum hafa fulltrúar Vestmannaeyjabæjar unnið náið með innanríkisráðherra, sérfræðingum innanríkisráðuneytis, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar með það fyrir augum að vinna siglingar í Landeyjahöfn úr þeim byrjunarvandamálum sem upp hafa komið. Sérstaklega hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið og líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn […]
Sigldi ekki í blíðunni

Rétt fyrir klukkan tíu á þriðjudagsmorguninn hafði samband stýrimaður á Faxa RE, sem þá var staddur við Þrídranga á leið til Reykjavíkur af miðunum fyrir austan með um 1700 tonn af loðnu. Undrunarefnið var; hvers vegna siglir Herjólfur ekki? (meira…)
Áhersla lögð á smíði nýrrar ferju og aðlögun Landeyjahafnar

Nú er í gangi blaðamannafundur í Innanríkisráðuneytinu þar sem umfjöllunarefnið er Landeyjahöfn og ferjusiglingar milli lands og Eyja. Í fréttatilkynning frá ráðuneytinu kemur fram að gert sé ráð fyrir að ný ferja hefji siglingar í síðasta lagið árið 2015 og unnið sé að hugmyndum um stofnun hlutafélags um smíðina. Siglingar milli lands og Eyja verða […]
Kári greip tækifærið

„Ég var ákveðinn í að gera mitt þegar ég fékk tækifærið og er því sáttur við minn leik þótt það hefði gert hann ennþá skemmtilegri ef við hefðum unnið,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins, sem átti góða innkomu í leikinn við Spánverja í gær. Kári skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og vann […]
�?gmundur boðar til fundar um Landeyjahöfn

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra hefur boðað fjölmiðla til fundar í ráðuneytinu í fyrramálið, klukkan 11:00 en fundarefnið er Landeyjahöfn og ferjusiglingar milli lands og Eyja. Auk ráðherra og sérfræðinga ráðuneytisins, verða á fundinum fulltrúar Vestmannaeyjabæjar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar. (meira…)
Er eðlilegt að verkamaður þurfi að vinna í 3 vikur bara til að borga framlag sinnar fjölskyldu til Hörpunnar?

Ríkisstyrkir til reksturs Hörpunnar eru áætlaðir 1.500 milljónir á ári eða 4.710 kr á hvern Íslending. Án þess að ég hafi lagst í mikla rannsóknarvinnu þá rekur mig minni til þess að verkamaður vinni gjarnan um 144 stundir á mánuði og miðað við launaseðilinn hennar móður minnar (hef reyndar bara rúmlega árs gamlan seðil þannig […]
Erum í sama liði, liðinu gegn kynferðisofbeldi

Aðalstjórn ÍBV Íþróttafélags vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri í tilefni af bréfi sem félaginu barst frá 100 karlmönnum varðandi kynferðisbrot og Þjóðhátíð Vestmannaeyja. (meira…)
FÍV steinlá í gær

Lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum steinlá þegar það mætti Kvennaskólanum í Reykjavík í gærkvöldi í spurningakeppninni Gettu betur á Rás 2. Lokatölur urðu 30:5 og eru Eyjamenn því úr leik þetta árið. Kvennaskólinn komst um leið í sjónvarpshluta keppninnar. (meira…)
Frábær byrjun

„Þetta var frábær byrjun hjá mér en það er mikil áskorun fyrir okkur að halda sætinu í deildinni. Við þurfum að byggja ofan á þennan sigur og komast á gott skrið svo sjálfstraustið eflist í liðinu,“ segir Hermann Hreiðarsson á vef Coventry en Hermann lék sinn fyrsta leik með liðinu um nýliðna helgi þegar það […]
Fyrri þriðjudagsferð Herjólfs slegin af

Ákveðið hefur verið að fella niður fyrri ferð Herjólfs þriðjudag vegna óhagsæðar veðurspár og hefur Veðurstofan gefið út stormviðvörun. Haft var samband við alla farþega í dag sem áttu bókað far með fyrri ferð þriðjudag og eru allir búnir að færa sig í aðrar ferðir skipsins. Mun betra útlit er með seinni ferð Herjólfs og […]
Nokkuð um óskoðuð ökutæki í umferð

Það var í ýmis horn að líta hjá lögreglunni í vikunni sem leið án þess þó að alvarleg mál hafi komið upp. Skemmtanahald helgarinnar fór þokkalega fram þrátt fyrir að fjöldi fólks hafi verði að skemmta sér, enda er tími Þorrablótanna runnin upp. Eitthvað var um pústra við skemmtistaði bæjarins án þess þó að það […]
Viðvörun vegna fyrri ferðar Herjólfs á morgun

Viðvörun vegna fyrri ferðar Herjólfs þriðjudag. Veðurspá er óhagstæð og því gæti mögulega þurf að fella niður fyrri ferð Herjólfs þriðjudag. Samkvæmt fyrirliggjandi spá er útlitið mun betra þegar líða ferð á daginn. Ef til þess kemur að fella þurfi niður ferðina verður tilkynning send út á neðangreinda staði og á fjölmiðla um leið á […]
Álsey VE rétt ókomin til Eyja með fullfermi af loðnu

Þessi túr gekk ljómandi líkt og hefur verið í þeim túrum á undan, þó svo að hann hafi farið aðeins hægar af stað. Þá erum við búnir að fylla og erum lagðir af stað á leið heim til Eyja með okkar fyrsta farm þangað á þessari vertíð, rúmlega 1.700 tonn og mun einhver hluti þess […]
Sagði við fólkið mitt að nú skyldum við biðja Guð að hjálpa okkur

Eins og áður hefur komið fram eru í dag 39 ár síðan Heimaeyjargosið hófst. Líklega eru flestir sammála um að það sem standi upp úr þessa fyrstu gosnótt sé hversu giftursamleg björgun íbúa bæjarins tókst til. Fjölmargir rifja upp söguna þegar farið var í bátana við þessi tímamót en Eyjafréttir.is hafa fengið leyfi til að […]
39 ár síðan Heimaeyjargosið hófst

Í dag eru 39 ár síðan Heimaeyjargosið hófst. Rétt eftir miðnætti 23. janúar 1973 opnaðist jörðin austan við Kirkjubæ, sem fóru undir hraun eins og svo fjölmörg önnur hús á næstu vikum og mánuðum. Vel tókst að koma Eyjamönnum frá Heimaey þar sem flotinn var að mestu leyti í landi vegna óveðurs daginn áður en […]
Opnar fjölskylduvænan veitingastað í Magna

Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumaður og fjölskylda hans, vinna nú hörðum höndum að því að opna nýjan veitingastað í Magnahúsinu við Strandveg 76. Húsið hefur staðið að mestu ónotað undanfarna áratugi en Gísli Matthías og fjölskylda sá möguleika í húsinu. Veitingastaðurinn er á annarri hæð hússins, með útsýni yfir höfnina og Heimaklett en fyrirhugað er að […]
Sigur hjá ÍBV í sjö marka leik

Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir ÍBV þegar liðið lagði Selfoss að velli, 4:3 í Fótbolta.net mótinu en leikur liðanna fór fram í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Eyjamenn komust yfir strax á 13. mínútu þegar Gunnar Már Guðmundsson skoraði úr vítaspyrnu en Selfyssingar svöruðu með tveimur mörkum áður en flautað var til leikhlés. (meira…)
ÍBV ekki í vandræðum með Hauka

ÍBV var ekki í vandræðum með Hauka þegar liðin áttust við í 8. umferð N1 deildar kvenna. Lokatölur urðu 38:20 en í hálfleik var staðan 22:8. ÍBV komst í það minnsta tímabundið upp í þriðja sæti deildarinnar en þessa stundina eigast við í Kópavogi HK, sem var í þriðja sæti með tíu stig og FH […]