ÍBV ekki í vandræðum með Hauka

ÍBV var ekki í vandræðum með Hauka þegar liðin áttust við í 8. umferð N1 deildar kvenna. Lokatölur urðu 38:20 en í hálfleik var staðan 22:8. ÍBV komst í það minnsta tímabundið upp í þriðja sæti deildarinnar en þessa stundina eigast við í Kópavogi HK, sem var í þriðja sæti með tíu stig og FH […]

Stelpurnar taka á móti Haukum í dag

Í dag klukkan 13:00 mun kvennalið ÍBV taka á móti Haukum í N1 deildinni í handbolta. ÍBV byrjaði árið mjög vel og lagði Stjörnuna að velli í Garðabæ en ÍBV er nú í fjórða sæti deildarinnar með átta stig, eins og Stjarnan og tveimur stigum á eftir HK. Haukar eru hins vegar í sjötta sæti […]

Goslokanna minnst í Einarsstofu

Mánudaginn 23. janúar opnum við í Einarsstofu í Safnahúsinu sýningu um eldgosið sem við nefnum Eldgos – aflvaki sagna og sigra. Á sýningunni getur að líta margvíslegar heimildir úr Bóka-, Skjala- og Byggðasafni um örlagadaga Vestmannaeyja. Jafnframt höfum við tekið saman listaverk eftir ýmsa listamenn úr Eyjum er grunlausir mála svæði er síðar varð horfinn […]

Tengdasonur með viðskiptavit

Pétur átti eina dóttur sem hann elskaði mjög mikið. Pétur átti líka stórt og arðbært fyrirtæki. Pétri líkaði ekki alskostar vel við nýja tengdasoninn en fann líka að dóttir hans tók það nærri sér. Hann ákvað því að brjóta odd af oflæti sínu og taka unga manninn inn í fjölskylduna með stæl. Hann biður unga […]

Sólvangur rifinn á mánudaginn

Ef veður leyfir, næsta mánudagsmorgun, 23. janúar og spáin tekur breytingum til hins betra fyrir þriðjudaginn, munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyja freista þess að hefja niðurrif á húseigninni Sólvangi að Kirkjuvegi 29. Fyrir nokkrum misserum uppgötvuðust veggjatítlur í húsinu og var húsið í framhaldi af því talið óbúðarhæft og dæmt ónýtt. (meira…)

Kvikmyndaveisla í Safnahúsinu

Næstu fjórar helgar ætla Sagnheimar, byggðasafn að sýna valdar myndir úr frábæru heimildamyndasafni Páls Steingrímssonar (KVIK kvikmyndagerð). Myndirnar verða sýndar á laugardögum kl. 13:30 og 14:30. 21. janúar: 5000 óboðnir gestir. Heimaeyjargosið 1973. 28. janúar: Tvö eyjasamfélög í Norður-Atlantshaf og ginklofinn. Ginklofinn, eða stífkrampinn, lagði að velli flest ungabörn sem fæddust í Vestmannaeyjum á öldum […]

Leitin að Ungfrú Suðurland hafin

Nú fer að líða að því að undirbúningur fyrir keppnina Ungfrú Suðurland 2012 hefjist. Keppnin hefur undanfarin ár verið haldin á Hótel Selfossi en sem fyrr er það Eyjakonan Anna Svala Árnadóttir sem er framkvæmdastjóri keppninnar. Hún óskar eftir ábendingum fyrir keppnina. (meira…)

Furðuleg árás á �?jóðhátíð í Eyjum

Smáfuglarnir lásu frétt um að 100 karlmenn hefðu saman sent embættismönnum í Vestmannaeyjum bréf þar sem m.a. er spurt hversu margar nauðganir þurfi til svo að hátíðin verði lögð niður. Hópur manna vill leggja af þjóðhátíð í Vestmannaeyjum til þess að lagfæra tölfræði. Allir eru sammála um að útrýma nauðgunum enda hefur tekist frábærlega til […]

�?ynging Hæstaréttar fordæmisgefandi

Þynging Hæstaréttar á dómi yfir manni sem níddist á þremur telpum í Vestmannaeyjum er fordæmisgefandi, að mati lögmanns þeirra. Maðurinn var dæmdur í átta ára fangelsi. Í september á síðasta ári dæmdi héraðsdómur manninn í sjö ára fangelsi. Páley Borgþórsdóttir lögmaður, sem var réttargæslumaður telpnanna fyrir héraðsdómi, taldi þann dóm of vægan. Hún benti meðal […]

Tryggvi Guðmundsson Íþróttamaður ársins í Vestmannaeyjum

Tryggvi Guðmundsson var í kvöld útnefndur Íþróttamaður ársins í Vestmannaeyjum árið 2011. Tryggvi hefur verið lykilmaður í knattspyrnuliði ÍBV sem hefur verið eitt af bestu liðum Íslands og fagnaði m.a. sigri á Íslandsmótinu í futsal á dögunum. Tryggvi jafnaði auk þess markamet Inga Björns Albertssonar í sumar og mun sjálfsagt bæta það næsta sumar. Þá […]

Enn einu sinni svíkur ríkis­stjórnin

„Enn einu sinni er íslenskt launa­fólk svikið af ríkisstjórn er kennir sig við félagshyggju, jöfnuð og réttlæti,“ segir í ályktun félagsfundar Drífanda stéttarfélags á þriðjudaginn og lýsir fundurinn yfir algjöru vantrausti á ríkis­stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. (meira…)

Ekki búið að selja Tonny

Í morgun birtist frétt á vefmiðlinum Fótbolti.net að ÍBV hefði selt úganska miðjumanninn Tonny Mawejje til s-afríska liðsins Golden Arrows. Það er ekki alveg rétt, því Tonny hefur verið leigður til s-afríska liðsins sem fær um leið forkaupsrétt á honum, eins og fram kom í Fréttum sem komu út í gær. (meira…)

Hjallastefnan ehf. lægst

Á föstudaginn voru opnuð tilboð í rekstur leikskólans Sóla en þrjú tilboð bárust í reksturinn. Óstofnað hlutafélag í eigu Elfu Ágústu Magnúsdóttur og Lóu Skarphéðins­dóttur bauð dvalargildi fyrir 14.440 krónur á mánuði. Hjallastefnan ehf. bauð dvalargildi fyrir 11.905 krónur á mánuði og Skólar ehf. Aðaltilboð bauð dvalargildi fyrir 12.449 krónur á mánuði. (meira…)

Tonny Mawejje til Golden Arrows

Golden Arrows í Suður-Afríku hefur gengið frá kaupum á Tony Mawejje frá Eyjamönnum. Mawejje, sem er 25 ára gamall hefur verið lykilmaður í liði ÍBV undanfarin þrjú ár en hann hefur skorað sex mörk í 71 deildar og bikarleik með liðinu. Hann fór til reynslu hjá Golden Arrows í síðustu viku, en félagið hreifst af […]

Strangari öryggiskröfur þjóðhátíðar

Ef kynferðisofbeldi eykst á þjóðhátíð verður leyfi hátíðarinnar tekið til endurskoðunar, segir sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum. Hann vill bæta lýsingu á hátíðarsvæðinu og efla þar gæslu. Viðræður eru hafnar við forsvarsmenn hátíðarinnar um strangari öryggiskröfur. Þetta kom fram á www.ruv.is. (meira…)

�?jóðhátíðin er fjölskylduhátíð Eyjamanna

„Bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum þakka bréfriturum þann áhuga sem þeir hafa á öryggismálum á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum. Þeir segja það samfélagslega ábyrgð okkar allra að hindra að ofbeldisverk séu framin. Því erum við sammála,“ segir í svari bæjarstjórnar Vestmannaeyja til 100 karlmanna sem skrifuðu undir bréf til bæjarstjórnar vegna þjóðhátíðar. (meira…)

Í ljósi fjölda tilkynntra nauðgana á þjóðhátíð 2011, verður þjóðhátíð 2012?

Fréttir hafa undir höndum bréf til ÍBV-íþróttafélgas þar sem því er beint til framkvæmdastjóra hvort eigi að halda þjóðhátíð í ár vegna fjölda nauðgana á síðustu þjóðhátíð. Í öðru lagi af hverju engu af inn­komu hátíðarinnar er varið til áróðurs gegn nauðgunum. Í þriðja lagi hvort ÍBV muni greiða þeim sem urðu fyrir kynferðisárás á […]

Skeggið fer ef við skorum ekki í dag

Línumennirnir Róbert Gunnarsson og Kári Kristján Kristjánsson skarta báðir ansi vígalegu skeggi. Vísi lék forvitni á að vita hvort eitthvað sérstakt lægi þar að baki. Þeir félagar segjast ekki vera í neinni keppni en leggja skeggið undir takist þeim ekki að skora í dag gegn Noregi. Hvorugur þeirra náði að skora gegn Króatíu. (meira…)

Síðari ferð Herjólfs miðvikudag fellur einnig niður

Vegna storms sem nú gengur yfir suðurströndina neyðumst við til að fella einnig niður seinni ferð Herjófs í dag, miðvikudag. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi. Nánari uppýsingar í síma 481-2800. Við viljum góðfúslega benda farþegum okkar á að nú getur verið hálka […]

Fyrri ferð fellur niður vegna storms

Fyrri ferð Herjólfs í dag, miðvikudag fellur niður vegna storms sem nú gengur yfir suðurströndina. Athugun með síðari ferð dagsins verður klukkan 13:00 en klukkan 6:00 í morgun var 27 metra meðalvindhraði á Stórhöfða. Þá var ölduhæð á Surtseyjardufli rúmir átta metrar í morgun. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.