Getraunastarfið að hefjast að nýju

Getraunastarf knattspyrnudeildar ÍBV hefst að nýju eftir jólafrí 21. janúar næstkomandi. Getraunastarfið eftir áramót verður með hefðbundnu sniði en getraunastarfið hefur verið vinsælt hjá knattspyrnusérfræðingum Eyjanna, og víðar reyndar og mikil keppni á milli spekinganna. (meira…)
Stöðvuð með fíkniefni við komuna til Eyja

Það voru ýmis mál sem lögreglan þurfti að sinna í vikunni sem leið. Í byrjun vikunnar hafði lögreglan í nógu að snúast vegna óveðurs sem gekk yfir og komu nokkrar tilkynningar um að járnplötur væru að fjúka. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en eitthvað var reyndar um stympingar án þess að þeim fylgdi alvarlegir áverkar. […]
Hætt við að verið sé að skattleggja flug af markaðnum

Flug skiptir Eyjamenn og marga aðra íbúa á landsbyggðinni miklu. Gjöld og skattar á þessa undirstöðuþjónustu eru hinsvegar á góðri leið með að ganga af henni dauðri. Þetta skrifar Elliði Vignisson á bloggsíðu sína, www.ellidi.is en greinina má lesa í heild sinni hér að neðan. (meira…)
Markvörður ÍBV úr leik?

Birna Berg Haraldsdóttir, sem varði mark kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu, meiddist illa í leik með liði sínu, Fram í handknattleik á laugardaginn. Liðband í hnénu er slitið en í dag kemur í ljós hvort krossband hafi sömuleiðis slitnað. Vegna meiðslanna er ekki víst að Birna verji mark ÍBV næsta sumar en hún verður þrjá til […]
�??Tek þrjá mánuði í einu�??

Hermann Hreiðarsson, knattspyrnukappi skrifar undir lánssamning hjá enska B-deildarliðinu Coventry í dag en Hermann hefur fengið fá tækifæri hjá B-deildarliðinu Portsmouth í vetur. Coventry er í neðsta sæti deildarinnar og því ærið verkefni framundan. „Þetta leggst stórvel í mig enda fæ ég að spila fótbolta og það er það sem málið snýst um, að fá […]
Klaufar í Eyjum um helgina

Í tilefni þess að Klaufar undirbúa nú stíft útgáfu nýrrar plötu, verður sveitin í Vestmannaeyjum helgina 20.-21. janúar nk. Og heldur alvöru Hlöðuball á Volcano Café föstudagskvöldið 20. janúar. Á laugardagskvöldið spila Klaufar í einkasamkvæmi og þess á milli á æfingum. (meira…)
Stelpurnar líka Íslandsmeistarar

Kvennalið ÍBV varð í dag Íslandsmeistari í Futsal, innanhússknattspyrnu. Síðari helmingur Íslandsmótsins fór fram í dag en þá lék ÍBV gegn Þrótti og Fylki en áður hafði liðið unnið Fjölni og HK/Víking. Fylkir og ÍBV voru jöfn að stigum með sex stig eftir fyrri hlutann en ÍBV hafði betur í viðureign liðanna 2:3. Stelpurnar tryggðu […]
Arnar og Margrét áttu jólahúsið í ár

Eins og undanfarin ár velja HS-Orka og Lionsklúbbur Vestmannaeyja það hús sem þeir telja best skreytt um jólin. Jólahúsið í ár er Hrauntún 16 sem er í eigu Arnars Ingólfssonar og Margrétar Steinunnar Jónsdóttur sem eru mikil jólabörn. (meira…)
Eyjamenn töpuðu fyrir Grindavík í dag

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék fyrsta leik sinn í Fótbolta.net mótinu sem hófst í dag þegar liðið mætti Grindavík í Kórnum í Kópavogi. Tryggvi Guðmundsson kom ÍBV yfir eftir laglegt samspil við Gunnar Már Guðmundsson strax á 6. mínútu og var staðan í hálfleik 1:0 ÍBV í vil. Grindvíkingar svöruðu hins vegar með tveimur mörkum […]
Hermann Hreiðarsson á leið til Coventry

Michael Appleton, knattspyrnustjóri Portsmouth, hefur staðfest að íslenski varnarmaðurinn Hermann Hreiðarsson sé á leið til Coventry. Gengið verður frá félagaskiptunum um helgina. Hermann er gríðarlega reyndur og hefur leikið með Charlton, Ipswich, Wimbledon, Brentford og Crystal Palace í enska boltanum. (meira…)
Rakel valinn í U-20 ára landsliðið

Hin unga og efnilega íþróttakona Rakel Hlynsdóttir hefur verið valin í íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Liðið mun leika gegn FH á sunnudaginn en alls voru 18 leikmen valdir í hópinn að þessu sinni. Í apríl mun liðið svo fara til Tyrklands þar sem fram fer undanriðill fyrir næsta stórmót. (meira…)
Frábær sigur hjá stelpunum

Kvennalið ÍBV gerði góða ferð í Garðabæinn í kvöld þegar liðið mætti Stjörnunni. Leikurinn var afar mikilvægur þar sem liðin berjast um þriðja sæti deildarinnar ásamt HK. Skemmst er frá því að segja að ÍBV hafði betur 24:26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12:14. (meira…)
Grímuball Eyverja 40 ára hefð

Vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur á samskiptamiðlum eftir umfjöllun DV um grímuball Eyverja vill stjórn Eyverja koma eftirfarandi á framfæri: Grímuball Eyverja á sér um 40 ára hefð í Vestmannaeyjum. Að því standa ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum og er ballið er einn af mörgum föstum liðum í starfi félagsins. Enginn ágóði er af ballinu […]
�?ú mátt eiga rjúpuna

Lögfræðingur nokkur frá Reykjavík ákvað að skreppa á rjúpu. Hann fór upp í Borgarfjörð og fann góðan stað nokkuð frá sveitabæ. Hann var búinn að veiða nokkrar rjúpur og var að enda við að skjóta eina í viðbót og er að sækja hana er bóndi kemur að honum. Þeir heilsast og tala saman en eftir […]
Íþróttaakademía fyrir 9. og 10. bekk Grunnskólans sett á stofn

Stýrihópur á vegum fræðslu- og menningarráðs leggur til að farið verði í þróunarverkefni á vorönn 2012, þar sem sett verður á fót íþróttaakademía við Grunnskólann, 9. og 10. bekk. Allir nemendur 9. og 10. bekkjar sem hafa íþróttir í vali munu eiga möguleika á að velja íþróttaakademíuna sem valgrein. Þeir nemendur sem innritast í íþróttaakademíuna […]
Hugur í byggingafyrirtækjum

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni, lá fyrir umsókn frá Val Andersen fh. Geldungs ehf., um lóð og byggingaleyfi að Strandvegi 74 (vestan við Eyjabúð). Ráðið afgreiðir erindið að lokinni grenndarkynningu. Einnig lá fyrirspurn frá Magnúsi Sigurðssyni, fh. Steina og Olla ehf. um afstöðu ráðsins til fyrirætlana um byggingu fjölbýlishúss við Miðstræti 20. (þ.e. […]
Dans á rósum leikur á SPOT um Helgina!

Gleðigjafarnir í Hljómsveitinni Dans á rósum verða á ferð og flugi um helgina og ætla að leggja leið sína í Kópavoginn. Hljómsveitin mun troða upp á SPOT, einu glæsilegasta danshúsi landsins, bæði föstudags og laugardagskvöld 13. og 14. janúar. Lofa félagarnir góðu stuði og hvetja alla dansþyrsta til að mæta. (meira…)
Í allt 2000 blöð og 30.000 síður

Við afhendingu Fréttapýramídanna á þriðjudaginn skrifuðu Gísli Valtýsson, framkvæmdastjóri Eyjasýnar, sem gefur út Fréttir og Elliði Vignisson, bæjarstjóri, undir samstarfssamning milli Vestmannaeyjabæjar og Eyjasýnar um að koma öllum Fréttum frá upphafi í tölvutækt form. (meira…)
Uppistand færist upp í Höll

Uppistand þeirra Péturs Jóhanns Sigfússonar og Þorsteins Guðmundssonar, Steini, Pési og gaur á trommu, mun fara fram í Höllinni, en ekki Kiwanis eins og áður var auglýst. Þetta er gert vegna mikilla eftirspurnar eftir miðum en salurinn í Kiwanis tekur aðeins 200 manns í sæti á meðan í Höllinni komast auðveldlega fyrir 500 áhorfendur. (meira…)
Vinningsnúmer í húsnúmerahappadrætti knattspyrnudeildar

Búið er að draga í Húsnúmerahappadrætti knattspyrnudeildar ÍBV. Sjaldan hafa sést jafn glæsilegir vinningar í húsnúmerahappadrættinu og í ár. Knattspyrnudeild vill þakka fyrir stuðninginn á liðnu ári og óska um leið öllum Eyjamönnum og ÍBV-urum gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári. Hægt er að sjá vinningsnúmerin með því að ýta á meira. (meira…)