Vinningsnúmer í húsnúmerahappadrætti knattspyrnudeildar

Búið er að draga í Húsnúmerahappadrætti knattspyrnudeildar ÍBV. Sjaldan hafa sést jafn glæsilegir vinningar í húsnúmerahappadrættinu og í ár. Knattspyrnudeild vill þakka fyrir stuðninginn á liðnu ári og óska um leið öllum Eyjamönnum og ÍBV-urum gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári. Hægt er að sjá vinningsnúmerin með því að ýta á meira. (meira…)
Vindhraði í 50 metra í mestu hviðunum

Hvert óveðrið á fætur öðru hefur gengið yfir landið undanfarna daga með tilheyrandi erfiðleikum í samgöngum vegna snjóa og ófærðar. Sjómenn hafa fengið að finna fyrir veðrinu. Bergey VE frá Vestmannaeyjum var dregin stjórnvana til Eskifjarðar aðfaranótt þriðjudags en skipið fékk veiðarfæri í skrúfuna á mánudag. Vestmannaey VE tók Bergey í tog og ferðin gekk […]
FÍV komið í aðra umferð Gettu betur

Lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum komst í gærkvöldi í aðra umferð spurningakeppninnar vinsælu Gettu betur hjá RÚV. FÍV sigraði lið Flensborgarskólans í Hafnarfirði í 1. umferð með 8 stigum gegn 5. Bæði lið fengu fimm stig úr hraðaspurningunum en Eyjamenn bættu við þremur stigum í bjölluspurningunum og tryggðu sér um leið sigurinn. (meira…)
Mawejje til reynslu í S-Afríku

Úganski landsliðsmaðurinn Tonny Mawejje er nú til reynslu hjá suður-afríska liðinu Golden Arrows. Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar, staðfesti þetta í samtali við Eyjafréttir.is. „Hann fór til þeirra 6. janúar og verður til 18. Ein hugmyndin var að Golden Arrows myndi leigja Tonny fram á vor með kauprétti. Ég er búinn að heyra aðeins í […]
Sigmund Eyjamaður ársins 2011

Sigmund Jóhannsson, teiknari og uppfinningamaður er Eyjamaður ársins 2011 að mati ritstjórnar vikublaðsins Frétta. Afhendingin á Fréttapýramídanum, viðurkenningum blaðsins fyrir afrek síðasta árs fór fram í hádeginu en Sigmund hefur í gegnum árin verið frumkvöðull í öryggismálum sjómanna, auk þess sem hann var samviska þjóðarinnar um áratugaskeið í gegnum skopmyndir í Morgunblaðinu. (meira…)
Seinni ferð Herjólfs fellur einnig niður

Seinni ferð Herjólfs þriðjudaginn 10. janúar fellur niður vegna veðurs og sjólags. Farþegar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í síma 481-2800 til að breyta pöntunum sínum. (meira…)
Dregin til Eskifjarðar

Togarinn Bergey frá Vestmannaeyjum var dreginn til Eskifjarðar í nótt, en skipið fékk veiðarfæri í skrúfuna í gær. Óhappið átti sér stað um kl. 3 í gær. Togarinn Vestmannaey tók Bergey í tog. Ferðin gekk vel, en mjög hvasst var þó í Reyðarfirði um miðnætti og fór veðurhæðin upp í 70 hnúta. (meira…)
Búist við stormi í nótt og á morgun

Veðurstofa Íslands varar við stormi víða um land í nótt, m.a. í Vestmannaeyjum. Samkvæmt veðurspánni byrjar að hvessa í kvöld og í nótt á að vera 20 til 24 metrar á sekúndu. Vindhraðinn á svo að ná hámarki um hádegisbil þegar Veðurstofan spáir 27 metra meðalvindhraða á Stórhöfða. Ofankomu er spáð með þessum mikla vindi […]
Sjófuglar í Vestmannaeyjum

Formaður Fuglaverndunarsamtaka Íslands (man ekki nafnið á honum) tjáði sig í vikunni og lýsti þeirri skoðun sinni, að réttast væri að friða veiðar á öllum sjófuglum á Íslandi. Í fyrstu hélt ég að þetta væri einhvers konar grín, eða að hann væri náinn ættinig sjálfsmenntaðs lundasérfræðings Vestmanneyja, Erps Snæs Hanssonar, en ég þekki það bara […]
Ein líkamsárás í heimahúsi í vikunni

Vikan var á rólegri nótunum hjá lögreglu nema hvað það voru nokkur útköll vegna slysa þar sem fólk var að renna í hálku og voru einhver dæmi um beinbrot. Þá slasaðist maður sem var að skjóta upp skoteldum á Þrettándanum þegar skoteldur sprakk og lenti hluti hans í hönd og höfði mannsins. Hann mun hins […]
Dósasöfnun handboltans í kvöld

Í kvöld kl. 18.00 ætla leikmenn og velunnarar handknattleiksdeildar ÍBV að fara um bæinn og safna dósum. Móttökur bæjarbúa hafa alltaf verið frábærar og þökkum við stuðninginn í gegnum tíðina. Þeir sem ekki verða heima á meðan söfnun stendur geta sett pokann við útidyrnar eða haft samband við Jóa Grettis í síma 694-2656 eða Daða […]
Herjólfur fór seinni ferðina

Herjólfur sigldi síðari ferðina í dag en skipið hélt úr höfn rétt áðan klukkan 15:30. Brottför úr Þorlákshöfn verður 19:15 en rekstraraðili skipsins, Eimskip varaði farþega sína sérstaklega við töluverðum veltingi í ferðinni. Hins vegar er útlitið slæmt varðandi morgundaginn og hugsanlega þarf að fella niður ferð eða ferðir. (meira…)
Fyrsti titillinn í höfn

Karlalið ÍBV í knattspyrnu hampaði í gær sínum fyrsta titli í ár þegar liðið vann Íslandsmótið í Futsal. Í úrslitaleik mætti ÍBV Víkingi frá Ólafsvík en úrslitaleikurinn fór fram í Laugardalshöll. Yfirburðir Eyjamanna voru talsverðir í leiknum enda vann ÍBV leikinn 5:0 og það þrátt fyrir að Tryggvi Guðmundsson hafi fengið að líta rauða spjaldið […]
Fyrri ferð mánudag fellur niður

Fyrri ferð Herjólfs mánudaginn 9. janúar fellur niður vegna öldu- og veðurspá. Gert er ráð fyrir 7-10 m ölduhæð og 16-20 m vindhraða. Farþegar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við afgreiðslu herjólfs í síma 481-2800 til að breyta pöntunum sínum. (meira…)
Stórtónleikar í Höllinni í kvöld

Þrettándahátíðinni í Eyjum lýkur í kvöld með afar vönduðum og góðum tónleikum þar sem nokkrir af bestu tónlistarmönnum landsins koma saman til að leika lög Oddgeirs Kristjánssonar. Þetta eru sömu tónleikar og voru í Hörpunni í nóvember á síðasta ári en þeir tónleikar fengu einróma lof. Forsala miða heldur áfram í dag, sunnudag í versluninni […]
Slæm ölduspá fyrir mánudag og þriðjudag

Forsvarsmenn Herjólfs sendu nú í morgun frá sér viðvörun vegna ferða skipsins mánudag og þriðjudag. Ölduspá fyrir þessa tvo daga er slæm og því gæti farið svo að fella verði niður einhverjar, og hugsanlega allar ferðir skipsins til Þorlákshafnar þessa daga. Mjög slæm færð er á þjóðvegum hringinn í kringum landið, m.a. á Hellisheiði og […]
Eyjamenn í úrslit í Futsal

Karlalið ÍBV tryggði sér í dag sæti í úrslitum Íslandsmótsins í Futsal þegar liðið lagði núverandi Íslandsmeistara Fjölni að velli 7:3. Futsalmótið hefur mátt muna sinn fífil fegurri því einungis tíu lið tóku þátt í mótinu, þar af aðeins tvö lið úr Pepsídeildinni, ÍBV og Fylkir. Magnús Gylfason, þjálfari stýrir ÍBV-liðinu í úrslitaleiknum gegn sínu […]
�?rettándinn fór vel af stað

Þrettándinn er sannkölluð bæjarhátíð í Eyjum en hátíðahöldin hófust síðastliðinn fimmtudag. Þótt um sé að ræða fjögurra daga bæjarhátíð, þá náði hún hámarki sínu í gær, föstudag á hinum eiginlega þrettánda degi jóla þegar Þrettándagleði ÍBV fór fram. Hún hófst með blysför frá Hásteini eftir myndarlega flugeldasýningu og var gengið fylktu liðið upp á malarvöll […]
Kári skoraði fjögur og tryggði jafntefli

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tekur nú þátt í fjögurra þjóða móti, Total Kredit Cup í Danmörku en þátttakan er liður í undirbúningi liðsins fyrir EM í Serbíu. Í gærkvöldi lék íslenska liðið gegn Póllandi og endaði leikurinn 31:31 jafntefli. Það var Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson sem skoraði jöfnunarmarkið í síðustu sókn Íslands af miklu harðfylgi. […]
Um 400 krakkar á Grímuballi Eyverja

Klukkan 14:00 í dag hófst hið árlega Diskó-grímuball Eyverja en eins og undanfarin ár var ballið haldið í Höllinni. Um 400 börn mættu í ballið í allskonar búningum. Flottasti búningurinn var strumpastelpa á strumpabíl en strumpastelpan sjálf var Clara Björt Kristjánsdóttir. (meira…)