Karlalið ÍBV tryggði sér í dag sæti í úrslitum Íslandsmótsins í Futsal þegar liðið lagði núverandi Íslandsmeistara Fjölni að velli 7:3. Futsalmótið hefur mátt muna sinn fífil fegurri því einungis tíu lið tóku þátt í mótinu, þar af aðeins tvö lið úr Pepsídeildinni, ÍBV og Fylkir. Magnús Gylfason, þjálfari stýrir ÍBV-liðinu í úrslitaleiknum gegn sínu gamla félagi Víkingi frá Ólafsvík, sem lagði Leikni að velli 4:3.