Allt á floti í Týsheimilinu í morgun

Þegar starfsmenn ÍBV-íþróttafélags mættu til vinnu í morgun í Týsheimilinu blasti við þeim heldur ófögur sjón. Þar var allt á floti en vatn hafði lekið inn um stóra hurð í íþróttasal hússins og yfir alla kjallarahæðina. Þannig var vatn komið inn í lyftingasal og geymslur og var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað til að hreinsa upp vatnið. […]

Herjólfur til �?orlákshafnar út janúar

Vegna dýpis í Landeyjahöfn og viðgerðar á dýpkunarskipinu Skandía, auk óhagstæðar ölduspár mun Herjólfur sigla til til Þorlákshafnar út janúar 2012. Aðstæður geta þó breyst á þessum tíma og við þeim munum við bregðast eins og fram kemur hér að neðan. (meira…)

Nokkrar ábendingar fyrir kvöldið

Í kvöld koma Grýla, leppalúði og allt þeirra hyski niður úr fjöllunum til að kveðja jólin með okkur. Við viljum koma á framfæri nokkrum ábendingum til þeirra sem mæta á gleðina í kvöld. (meira…)

Jólasveinar, álfar, tröll um víðan völl

Álfar, tröll og jólasveinar verða að venju fyrirferðamikil á þrettándagleðinni í ár en fleira verður til skemmtunar. Grímuball Eyverja verður á sínum stað í Höllinni eins og hin glæsilega Þrettándagleði ÍBV sem slær flest út. Þá verður myndlistarsýning í Einarsstofu í Safnahússinu, Eyjakvöld og ball í Höllinni svo fátt eitt sé nefnt. (meira…)

Blítt og létt stefnir á Færeyjar í vor

Fyrsta Eyjakvöldið á nýju ári verður haldið í Kaffi Kró í kvöld, fimmtu­daginn 5. janúar. Eyjakvöldin hafa notið mikilla vinsælda en nú hyggja meðlimir Blítt og létt hópsins á útrás því í vor verður haldið til Færeyja til að leika þar fyrir þessa frændur okkar Íslendinga. (meira…)

Býður upp málverk til styrktar Steingrími

Eins og áður hefur komið fram, glímir knattspyrnukappinn Steingrímur Jóhannesson við krabbamein. Fjölmargir hafa lagt honum og fjölskyldu hans lið með einum eða öðrum hætti, félög, einstaklingar og fyrirtæki. Fyrrum félagi Steingríms í ÍBV, Kristján Georgsson býður upp málverk þar sem allur ágóðinn rennur til Steingríms og fjölskyldu. (meira…)

Miðsala í forsölu mætti vera meiri

„Við erum að undirbúa tónleikana Bjartar vonir vakna af fullum krafti og stefnum á að telja í fyrsta lag klukkan átta á sunnudags­kvöldið. Þetta er stærsta verkefni sem ég hef komið að og hingað koma alls hátt í 30 manns í tengslum við tónleikana,“ sagði Bjarni Ólafur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hallarinnar sem er þó tvístígandi því […]

Skuldir Golfklúbbs Vestmannaeyja lækka mikið

Aðalfundur Golfklúbbs Vestmannaeyja fór fram 29. desember síðastliðinn. Helgi Bragason var endurkjörinn sem formaður og aðeins varð ein breyting á stjórn þegar Ragnar Baldvinsson hætti en í hans stað kemur Hörður Orri Grettisson. Daglegur rekstur klúbbsins gekk vel og hækkuðu tekjur um 15 % á milli ára. Hagnaður var af rekstri klúbbsins upp á tæpar […]

Steini Pési og Gaur á Trommu til Eyja!

Pétur Jóhann Sigfússon og Þorsteinn Guðmundsson, sem löngu eru orðnir landsþekktir fyrir sjónvarpsþætti sína og kvikmyndir, slá nú saman í uppistandsveislu í Eyjum í byrjun febrúar. Með þeim verður tónlistarmaðurinn Helgi Svavar Helgason sem mun halda taktinum gangandi á milli atriða og lífga upp á sýninguna með þokka sínum og persónutöfrum. Þeir félagar verða í […]

Íslendingar þekkja að friðun er fall­eg hugsun en ekki alltaf gáfuleg

„Það er athyglisvert hversu mikill viðkomubresturinn er hjá lund­anum, 75% og að bresturinn skuli koma fram svona víða um landið, eingöngu Norðurland heldur sínu,“ sagði Páll Scheving, bæjarfulltrúi og lundakarl um hugmyndir um friðun lundans og fjögurra annarra svart­fuglstegunda næstu fimm árin. Það er starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra skipaði í september um verndun og […]

Rannsaka þarf ástandið

„Þessar tillögur starfshópsins umhverfisráðherra koma mér ekkert á óvart. Lundinn og fleiri sjófuglategundir hafa átt í miklum erfiðleikum sl. ár. Það var þess vegna sem við komumst að þess­ari niðurstöðu í fyrra. Þá árétt­uðum við einnig að þessi ákvörðun væri á forræði bæjar­yfir­valda og tókum þá ákveðið forystu í málinu,“ sagði Gunnlaugur Grettisson, formaður umhverfis […]

�?refalt fleiri 2003 og 2004 en 2011

Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum hefur tekið saman tölur um nauðungarsölur í Vest­mannaeyjum síðastliðin ár en þær sýna að staðan í Vestmannaeyjum er skárri nú en árin fyrir hrun ef tekið er tillit til fjölda beiðna um nauð­ungarsölu og fjölda beiðna í loka­sölu. „Það er eftirtektarvert að fjöldi beiðna og lokasölur í Vestmannaeyjum hafa […]

�?trúlegir loftfimleikar í fjöllunum

Tómas Einarsson, tvítugur Eyjamaður er flugáhugamaður sem á fjórar fjarstýrðar flugvélar. Hann kom svokallaðri GoPro myndavél fyrir á einni flugvélinni og flaug yfir Heimaey og í fjöllunum þar. Flugferðina má finna hér að neðan en flug- og lofthræddir eru varaðir við að horfa á myndbandið. Þeir sem þora, sjá hins vegar ekki eftir því þar […]

Búningar boðnir upp til styrktar Steingrími

Nú er í gangi búningauppboð til stuðnings Steingrími Jóhannessyni sem berst við krabbamein. Okkur áskotnuðust áritaðir notaðir keppnisbúningar frá nokkrum af stærstu stjörnum handboltans, þ.e. þeim Ólafi Stefánssyni og Guðjóni Val Sigurðssyni hjá AG Köbenhavn og Kára Kristjáni Kristjánssyni okkar manni hjá Wetzlar. Þessir flottu búningar verða boðnir upp og seldir hæstbjóðenda en áhugasamir geta […]

Komnir í úrslit í Futsal

Karlalið ÍBV er komið í úrslitakeppnina í Futsal. Strákarnir léku í C-riðli ásamt Leikni, Afríku og Sindra en aðeins tíu félög sáu sér fært að senda lið til keppni í Íslandsmótinu í Futsal. ÍBV vann riðilinn nokkuð sannfærandi en úrslitakeppnin verður haldin um næstu helgi í Laugardalshöllinni. (meira…)

Lundaveiði bönnuð næstu fimm árin?

Svo gæti farið að lundaveiði verði bönnuð næstu fimm árin um allt land. Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra skipaði í september um verndun og endurreisn svartfuglastofna leggur til að fimm tegundir sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin en þetta eru álka, langvía, stuttnefja, lundi og teista. Málið var […]

Wetzlar vill halda Kára

Þýska handknattleiksliðið Wetzlar vill halda Kára Kristjáni Kristjánssyni línumanni áfram í herbúðum sínum. Þetta staðfesti Kári í samtali við Morgunblaðið í gær. Núverandi samningur hans rennur út um mitt þetta ár. (meira…)

Fríir prufutímar í Metabolic í vikunni

Metabolic námskeiðin hafa slegið í gegn í Eyjum en Íris Sæmundsdóttir sá um námskeiðin fyrir áramót í Týsheimilinu. Fjölmargir Eyjamenn létu slag standa og árangurinn lét ekki á sér standa. Nú er Íris að fara af stað aftur og ætlar að bjóða í fría prufutíma í þessari viku. Á morgun, þriðjudag verður tími klukkan 12:00, […]

Áramótin fóru ágætlega fram

Áramótin fóru ágætlega fram og lítið um útköll hjá lögreglu. Töluverður fjöldi var að skemmta sér á skemmtistöðum bæjarins í tilefni áramóta en skemmtunin fór ágætlega fram. Lögreglan þurfti samt sem áður að aðstoða nokkra einstaklinga til síns heima sökum ölvunarástands þeirra. (meira…)

Krefjast bóta vegna afnáms sjómannaafsláttarins

Félagsfundur Sjómannafélagsins Jötuns mótmælir harðlega niðurfellingu sjómannaafsláttarins. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skerða sjómannaafsláttinn í áföngum og að lokum leggja hann alveg af. Hlutur sjómanna í endurreisn íslensks efnahagslífs er mjög mikill. Sjómenn fara á mis við ýmsa opinbera þjónustu og njóta menningar síður en aðrir landsmenn. Það er skýlaus krafa félagsfundar Sjómannafélagsins Jötuns að sjómenn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.