Lundaveiði bönnuð næstu fimm árin?
Svo gæti farið að lundaveiði verði bönnuð næstu fimm árin um allt land. Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra skipaði í september um verndun og endurreisn svartfuglastofna leggur til að fimm tegundir sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin en þetta eru álka, langvía, stuttnefja, lundi og teista. Málið var tekið fyrir á fundi ríkisstjórnar í morgun og var samþykkt að umhverfisráðherra undirbúi frumvarp til breytinga á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.