Eins og áður hefur komið fram, glímir knattspyrnukappinn Steingrímur Jóhannesson við krabbamein. Fjölmargir hafa lagt honum og fjölskyldu hans lið með einum eða öðrum hætti, félög, einstaklingar og fyrirtæki. Fyrrum félagi Steingríms í ÍBV, Kristján Georgsson býður upp málverk þar sem allur ágóðinn rennur til Steingríms og fjölskyldu.