Stórtónleikar í Höllinni á sunnudaginn

Stórtónleikarnir Bjartar vonir vakna verða í Höllinni næstkomandi sunnudag, 8. janúar klukkan 20:00. Sjaldan hafa jafn vandaðir tónleikar rekið á fjörur Eyjamanna en þetta eru sömu tónleikar og voru í Hörpunni miðvikudaginn 16. nóvember og fengu ákaflega góðar viðtökur og dóma. Forsala miða fer fram í versluninni La Tienda við Strandveg og er hægt að […]
Gaf út disk og safnaði fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja

Ragnar Þór Jóhannsson gaf út geisladisk fyrir jólin 2010 undir listamannsnafninu Fabio en á disknum voru 10 jólalög og fóru upptökur fram í Island Studios. Allt upplag disksins seldist upp og á Gamlársdag afhenti Ragnar Þór Krabbavörn Vestmannaeyja fé sem safnaðist við útgáfu disksins, alls 103 þúsund krónur. Ragnar Þór gaf féð til minningar um […]
Fyrsta útkall ársins strax fyrstu nóttina

Slökkvilið Vestmannaeyja fór í sitt fyrsta útkall á árinu þegar aðeins rétt rúmar fimm klukkustundir voru liðnar af því. Klukkan rúmlega 5 aðfaranótt Nýársdags var slökkviliðið kallað að Illugagötu en þar logaði glatt í flugeldaafgöngum, sem hafði verið safnað saman í fiskikör. (meira…)
Friðrik Ásmundsson sæmdur fálkaorðunni

Venju samkvæmt afhenti forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson fálkaorðuna á Nýársdag. Í ár fengu ellefu Íslendingar fálkaorðuna. Þar af einn Eyjamaður en það var Friðrik Ásmundsson, fyrrum skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum en orðuna hlaut Friðrik fyrir framlag sitt til öryggismála og menntunar skipstjórnarmanna, og er vel að því kominn. (meira…)
Rúmlega tvö hundruð þátttakendur á Styrktarmóti

Þátttakan á Styrktarmóti fyrir Steingrím Jóhannesson, knattspyrnukappa, fór fram úr björtustu vonum þeirra sem að mótinu stóðu því þátttakendur voru rúmlega 200 talsins, líklega hátt í 250. Þá voru fjölmargir áhorfendur á mótinu og styrktu söfnunina með því að leggja til fé í sérstakan styrktarbauk. Þá var boðið upp á vöfflur og fleira góðgæti í […]
Skákmót til styrktar Steingrími Jóhannessyni

Árlegt Volcano skákmót, á vegum Skákfélags Vestmannaeyja, fer fram á Gamlársdag kl. 13:00 á veitingastaðnum Volcano við Strandveg. Allir hjartanlega velkomnir. Mótið verður á léttu nótunum og verða tefldar 5 mínútna skákir, 7, 9 eða 11 umferðir eftir þátttöku. (meira…)
Helsærð kind aflífuð

„Ég kom að fjárhúsinu upp úr hádegi og þar lá hún ein með opið sár á hálsi. Hún var á lífi en var að blæða út, er haft eftir Ólafi Tý Guðjónssyni á Vísi.is en hann kom að helsærðri á þegar hann var að fara gefa í gær. Lögreglan var kölluð á staðinn og kindin […]
Herjólfur siglir til �?orlákshafnar til 4. janúar

Vegna ölduspár og dýpis í Landeyjahöfn mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar amk til miðvikudagsins 4. janúar 2012. Brottför frá Vestmannaeyjum kl 8:00 og 15:30. Brottför frá Þorlákshöfn kl 11:45 og 19:15. (meira…)
Með Strætó í og úr Herjólfi

Frá og með 2. janúar verður hægt að ferðast um Suðurland með strætó, allt frá Reykjavík og austur á Höfn í Hornafirði. Þetta er liður í stórfelldri stækkun þjónustusvæðis Strætó bs. í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Eitt samtengt leiðakerfi verður allt frá Höfn í Hornafirði og til Reykjavíkur, um uppsveitir Árnessýslu, niður í […]
Frábær þátttaka í Styrktarmótinu fyrir Steingrím

Styrktarmótið fyrir Steingrím Jóhannesson, markahrók hefur heldur betur slegið í gegn í Eyjum því alls eru 29 lið skráð til leiks í mótinu. Þátttakendur eru líklega á annað hundrað manns enda flest lið með einhverja varamenn. Allur ágóði mótsins rennur til Steingríms og fjölskyldu en Steingrímur glímir við krabbamein. (meira…)
Vinsælustu fréttir ársins 2011

Ritstjórn Eyjafrétta.is hefur tekið saman vinsælustu fréttir vefsins á árinu sem nú er að ljúka. Vinsælasta frétt ársins birtist strax í upphafi árs, eða 10. janúar síðastliðinn og snerist um starfsmann fyrirtækisins. Sá hafði verið að mynda á Þrettándahátíðinni þegar óvættir úr fjöllum Eyjanna réðust á hann fyrirvaralaust. Frétt um málið birtist undir fyrirsögninni „Ráðist […]
Risaflugeldabingó handboltans í kvöld

Risa flugeldabingó Handknattleiksdeildar ÍBV – íþróttafélags verður íkvöld, fimmtudaginn 29. des. kl. 20:11 í Höllinni. Spilaðar verða 10 umferðir en vinningarnir verða glæsilegri enn nokkru sinni áður. Hinir frábæru bingóstjórar undanfarinna ára fara á kostum að venju. Fjölmennum og styrkjum íþróttastarfið í Vestmannaeyjum. (meira…)
Tónleikar í minningu Oddgeirs Kristjáns.

Í dag, fimmtudaginn, 29. desember, kl.18.00 mun Lúðrasveit Vestmannaeyja bjóða bæjarbúum og gestum á stutta tónleika í Akogeshúsinu við Hilmisgötu. Tónleikarnir eru helgaðir minningu Oddgeirs Kristjánssonar, en í ár eru eins og flestum er orðið kunnugt 100 ár frá fæðingu hans. (meira…)
Eru full bjartsýni

Á gamlársdag taka nýir eigendur við Hótel Þórshamri, Hótel Mömmu og Sunnuhóli þegar hjónin Adda Sigurðardóttir og Magnús Bragason taka við lyklunum úr hendi Bjargar Guðjónsdóttur og Gísla Vals Einarssonar. Um leið fær hótelið nýtt nafn, heitir Hótel Vestmannaeyjar frá og með áramótum. Er nafnabreytingin liður í að markaðssetja það sem þau hafa upp á […]
Víðir aftur í raðir ÍBV

Víðir Þorvarðarson, 19 ára knattspyrnumaður gekk í dag í raðir ÍBV. Víðir er Eyjapeyi í húð og hár, sonur Þorvarðar Þorvaldssonar og Guðrúnar Ragnarsdóttur en Víðir lék upp í gegnum alla yngri flokka með ÍBV. Hann lék nokkra leiki með KFS áður en hann gekk í raðir Stjörnunnar fyrir sumarið 2009. Hjá Stjörnunni á hann […]
Leyfi fyrir einni brennu en fjör í flugeldum

Aðeins hefur verið sótt um leyfi fyrir eina áramótabrennu í ár en það er ÍBV-íþróttafélag sem verður með sína árlegu áramótabrennu og í kjölfarið mun Björgunarfélag Vestmannaeyja halda flugeldasýningu. Ragnar Baldvinsson, slökkviliðsstjóri sagði í samtali við Fréttir að annað hvort væri aðeins ein brenna, eða menn séu að flaska á því að sækja um leyfi. […]
Gætið varúðar í hálkunni

„Í tíðarfari eins og verið hefur síðustu daga og vikur er mjög erfitt að hreinsa bæði götur og gangstéttar eins og þarf. En það er reynt og þegar snjóar mikið eru öll tæki í bænum, bæði sem bærinn á og í eigu einkafyrirtækja, send út. Eru þá allt upp í tólf til fjórtán tæki að […]
�?ökkum aðstoðina

Núna í desember heimsótti fulltrúi Hjálparstarfs aðventista – ADRA bæjarbúa til að taka við framlögum til þróunar- og líknarstarfs líkt og undanfarin ár. Söfnunarféð í þetta sinn rennur til að sporna gegn mansali í Kambódíu. Margir landsmenn muna eftir heimildarmyndinni „Börn til sölu“ sem var gerð af starfsfólki RÚV (Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur og Guðmundi Bergkvist […]
Varúð! það er mikil hálka á götum bæjarins

Bæjarbúum er bent á að það er mikil hálka á götum bæjarins og mikil slysahætta bæði fyrir akandi og sérstaklega gangandi. Best væri að sem fæstir væru á ferð við þessar aðstæður og enginn hreyfi farartæki nema að vera á mjög góðum negldum vetrardekkjum, eða hreinlega á keðjum. Gangandi er bent á að notast við […]
Eiður Aron og �?órarinn Ingi í A-landsliðið

Eyjapeyjarnir Eiður Aron Sigurbjörnsson, leikmaður Örebro og Þórarinn Ingi Valdimarsson, sem leikur með ÍBV, hafa báðir verið valdir í fyrsta landsliðshóp nýs landsliðsþjálfara, Lars Lagerbäck. Þjálfarinn hefur boðað 28 leikmenn til æfinga 12. til 14. janúar næstkomandi en æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi. Einungis voru valdir leikmenn sem leika á Íslandi og á […]