Sjö mörk Kára dugðu skammt

Kári Kristján Kristjánsson skoraði sjö mörk fyrir Wetzlar í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Þau dugðu þó skammt því liðið tapaði fyrir Björgvini Páli Gústavssyni og félögum hans í Magdeburg, 31:25. (meira…)
Eitthvað um tjón í óveðrinu

Vikan fór að mestu leiti ágætlega fram hjá lögreglu og fá mál sem komu upp. Hins vegar var í nógu að snúast hjá lögreglu og björgunarsveitum við að aðstoða fólk vegna óveðursins sem gekk yfir landið á aðfangadag. Eitthvað tjón varð í óveðrinu en þakplötur losnuðu á nokkrum stöðum auk þess sem lausamunir voru að […]
Gáfu bæði humar og saltsíld

Vinnslustöðin færði Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur á mánudaginn að gjöf humar og saltsíld til dreifingar fyrir jólin, alls 2000 450 gr. poka af humri og 2.000 eins lítra fötur af síld. Landflutningar-Samskip fluttu vörurnar til Reykjavíkur endurgjaldslaust. Þær eru geymdar hjá Samskipum og verða fluttar til dreifingar að Fiskislóð 14. (meira…)
Spá slæmu veðri í dag

Það hefur gengið á ýmsu veðurfarslega séð um jólahátíðina og ekkert útlit fyrir að því ljúki í dag. Þannig spáir Veðurstofa Íslands austan roki í Eyjum, 24 metrum á sekúndu og ofankomu í dag, mánudag en hitastig verður við frostmark. Næstu daga er hins vegar spáð hæglætisveðri þar sem hitastig fer hæst upp í fjórar […]
Helgistund í Kirkjugarði aflýst

Vegna veðurs hefur helgistund, sem átti að vera í dag klukkan 14:00 í Kirkjugarði Vestmannaeyja, verið aflýst. Klukkan 10:00 í morgun var 32 metra meðalvindhraði á Stórhöfða en vindhraðinn fór upp í 40 metra á sekúndu í mestu hviðunum. Kirkjuhald á aðfangadag heldur sér hins vegar að öðru leyti en hér að neðan má sjá […]
�?akkir vegna jólaaðstoðar

Prestar Landakirkju vilja þakka gefendum fyrir að hugsa til þeirra sem hafa leitað til kirkjunnar fyrir þessi jól. Það er óhætt að segja að öll hin mörgu framlög hafa komið að notum. Útgerð og áhöfn Hugins VE gaf 500 þús til styrktarsjóðs prestakallsins og Barnahags Vestmannaeyja, Ísfélag Vestmannaeyja gaf 500 þús til Hjálparstarfs kirkjunnar og […]
�?órarinn Ingi og Eiður heilsuðu upp á nafna sína

Fótboltakapparnir Eiður Aron Sigurbjörnsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson heimsóttu á dögunum nafna sína, langvíuungann Eið Aron og lundapysjan Þórarinn Ingi. Langvíuunginn kom á safnið sama dag og Eiður Aron skrifaði undir samning við sænska liðið Örebro og fékk því nafn fótboltakappans. Pysjan kom nokkrum dögum fyrr en þá skoraði Þórarinn Ingi sigurmark ÍBV. Það lá […]
Herjólfur siglir ekki aðfangadag

Í samræmi við viðvörun Veðurstofu Íslands og fyrirliggjandi veðurspá eru ferðir Herjólfs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar á morgun, aðfangadag, felldar niður. Gert er ráð fyrir stormi á landinu og því ekkert ferðaveður. (meira…)
Mandal, bókaútgefendur, �?ytur og Fréttir fengu styrk

Nú rétt í þessu lauk afhendingu úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja en sjóðurinn var á sínum tíma stofnaður til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson, fyrrum sparisjóðsstjóra. Afhendingin fór fram í fundarsal Sparisjóðsins en þetta er í 24. sinn sem afhent er úr sjóðnum. Í ár fengu þjóðlagasveitin Mandal, ritnefnd vegna útgáfu bókar með ritverka- […]
Nýir eigendur Hótels �?órshamars

Hjónin Magnús Bragason og Adda Jóhanna Sigurðardóttir hafa keypt Hótel Þórshamar af hjónunum Gísla Val Einarssyni og Björgu Guðjónsdóttur, sem hefur rekið hótelið í um áratug. Þau Magnús og Adda taka við rekstri hótelsins eftir áramót en auk aðalbyggingarinnar, kaupa þau einnig tvö önnur hús í næsta nágrenni sem hafa verið notuð sem gistiheimili með […]
Eyjamenn hvattir til að huga að lausum munum utandyra

Lögreglan í Vestmannaeyjum vill vekja athygli íbúa í Vestmannaeyjum á slæmri veðurspá frá Veðurstofu Íslands. Á morgun aðfangadag er búist við að veður byrji að versna þegar líður á nóttina. Spáð allt að 40 m/s í hviðum á morgun. Íbúar eru hvattir til að huga að lausum munum og öðru því sem gæti fokið. Veður […]
Gríðarlega öflugt uppeldisstarf unnið hjá ÍBV

ÍBV-íþróttafélag fær góða dóma hjá KSÍ fyrir uppeldisstarf félagsins í knattspyrnunni. Þeir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ og Dagur Sveinn Dagbjartsson, starfsmaður fræðsludeildar heimsóttu félagið á dögunum og tóku út knattspyrnuhlutann í starfi féalgsins. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags en hægt er að sjá niðurstöðu þeirra félaga hér að neðan. (meira…)
Guð hjálpi Íslandi

Það var reyndar ætlunin að skrifa litla jólasögu um þetta leytið, en ákvarðanir ríkistjórnarinnar í sjávarútvegsmálum sem hafa birst okkur í vikunni gera það að verkum að ekkert annað kemst að. Þar á meðal á ég við þá fáránlegu ákvörðun um að banna lúðuveiðar með öllu frá og með áramótum, en skylda menn sem veiða […]
Hátíðlegir jólatónleikar fyrir alla fjölskylduna

Tónleikarnir Heima um jólin verða haldnir í Höllinni í kvöld, fimmtudaignn 22. desember klukkan 20:00. Það eru hjónin Óskar Sigurðsson og Gunnlaug Sigurðardóttir sem halda tónleikana en fjölmargir tónlistamenn frá Eyjum koma fram. Meðal þeirra má nefna Sæþór Vídó, Jórunni Lilju, Þórarin Ólason, Sigurbjörgu Líf, Sindra Frey, Sísí Ástþórsdóttur, Möggu Hjálmars, Silju Elsabetu og fleiri. […]
�?tflutningsálag dæmt löglegt

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum um að viðurkennt verði með dómi, að sjávarútvegsráðherra hafi verið óheimilt að leggja á útflutningsálag á fisk. Útflutningsálag er álag sem lagt er á afla sem fluttur hefur verið á markað erlendis, án þess að hann hafi verið vigtaður áður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu. (meira…)
Við gerum okkar besta og þið einnig þannig gengur þetta best

Undanfarið hefur verið unnið að snjóruðningi og hálkueyðingu meðal annars á vegum Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyja. Við höfum engan veginn undan, ekki síst vegna mjög breytilegs tíðafars og finnst mörgum þeir og þeirra gata verði útundan, og er það vel skiljanlegt þar sem við höfum orðið að láta stofnbrautir og götur að öllum skólum á vegum Vestmannaeyjabæjar, […]
Kári áfram í landsliðshópnum og skoraði átta í gær

Guðmundur Guðmundsson tilkynnti 21 leikmannahóp íslenska karlalandsliðsins í handbolta en landsliðsþjálfarinn skar hópinn niður um átta sjö leikmenn. Kári Kristján Kristjánsson, línumaðurinn sterki heldur sæti sínu í hópnum en annar Eyjamaður, Birkir Ívar Guðmundsson hlaut ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfarans. (meira…)
Glæsileg dagskrá um �?rettándahelgi

Nú liggur fyrir dagskrá um Þrettándahelgina dagana 5. til 8. janúar á næsta ári en formleg dagskrá hefst á fimmtudegi og lýkur ekki fyrr en á sunnudagskvöldið. Sem fyrr verður hápunkturinn þegar jólasveinarnir, Grýla, Leppalúði og allt þeirra hyski kemur niður úr fjöllum til að kveðja menn og málleysingja á Þrettándanum en dagskránna má sjá […]
Gunnar Már og Ragnar búnir að skrifa undir

Leikmennirnir Gunnar Már Guðmundsson og Ragnar Leósson skrifuðu í kvöld undir samning hjá ÍBV. Gunnar Már er keyptur frá FH en leikmaðurinn lék með Þór Akureyri síðasta sumar. Gunnar gerir þriggja ára samning við ÍBV en honum er m.a. ætlað að fylla það skarð sem brotthvarf Finns Ólafssonar skildi eftir sig. (meira…)
Jólaperlur í kvöld

Jólaperlur, árlegir tónleikar til styrktar Æskulýðsfélagi Landakirkju verða í kvöld, þriðjudag kl. 20:00 í Safnaðarheimili Landakirkju. Tónleikarnir verða með sama sniði og í fyrra en fjöldi nýrra söngvara munu koma fram ásamt Jólatríoinu og Leikhúsbandinu. Þar má nefna Unu Þorvaldsdóttur, sem gerði frábæra hluti í Jólastjörnunni á Stöð 2 fyrir stuttu, Rakel Hlynsdóttur og Berglindi […]