Fimm ungir Eyjapeyjar með jólalag

Fimm ungir Eyjapeyjar, þeir Sindri Freyr Guðjónsson, Aron Valtýsson, Birgir Davíð Óskarsson, Guðmundur Aron Þórisson og Marteinn Sigurbjörnsson tóku sig til, tóku upp jólalag og settu á www.youtube.com. Hægt er að hlusta á lagið hér að neðan en um er að ræða ábreiðu lagsins Mistletoe með Justin Bieber en strákarnir sömdu nýjan texta við lagið, […]

Gríðarleg áhrif 27% veiðigjalds á sjávarbyggðir

Gangi áform stjórnvalda eftir um 27% veiðigjald af vergri framlegð (EBITDA) fiskiskipaflotans munu útgerðir í Vestmannaeyjum greiða 1.245 milljónir króna á ári m.v. fyrirliggjandi forsendur á þessu fiskveiðiári. Þetta má leiða út úr svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Einars Kr Guðfinnssonar alþingismanns. Til þess að setja þessa skattgreiðslu í samhengi við áþreifanlegt dæmi, þá […]

Gunnar Már til liðs við ÍBV

„Ég hef ekki skrifað undir samning ennþá en eins og staðan er núna þá eru yfir níutíu prósent líkur á að ég gangi til liðs við ÍBV á næstu dögum,“ sagði knattspyrnumaðurinn Gunnar Már Guðmundsson í samtali við Morgunblaðið í gær. Gunnar, sem var leigður til Þórs á Akureyri frá FH á síðustu leiktíð Pepsi-deildarinnar […]

Meistari Mugison á �?jóðhátíð 2012

Vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag, Mugison, hélt tónleika í Höllinni í gær. Eyjamenn létu ekki á sér standa og voru tæplega 800 manns á tónleikunum, stútfullt út að dyrum og var orðið nánast fullt þegar enn var hálftími í tónleikana. Meistari Mugison stóð undir væntingum, var einn með kassagítarinn en náði að heilla gesti tónleikana […]

Eitthvað um hálkuslys

Vikan var öllu rólegri en síðasta vika en þó hafði lögreglan í nógu að snúast við að aðstoða borgarana í þeirri ófærði sem verið hefur á götum bæjarins að undanförnu. Eitthvað var um hálkuslys og aðstoðaði lögreglan fólk sem dottið hafi sökum hálku. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en eitthvað var um útköll í heimahús […]

Allt að verða klárt fyrir Mugison

Vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag, Örn Elías Guðmundsson eða Mugison heldur tónleika í Höllinni í Eyjum í kvöld. Bjarni Ólafur Guðmundsson í Höllinni var í óða önn að raða upp fyrir tónleikana en húsið opnar klukkan 19 og tónleikarnir hefjast 20. Frítt er á tónleikana. (meira…)

Herjólfur í �?orlákshöfn fram yfir jól

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fram yfir jól, eða til mánudagsins 26. desember í það minnsta. Ölduspá fyrir Landeyjahöfn er óhagstæð næstu daga og því verður að sigla til Þorlákshafnar. Herjólfur siglir tvær ferðir á dag, frá Eyjum 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn 11:45 og 15:30. Vakin er athygli á því að aðeins verður ein […]

Sofnar í tíma og ótíma og missir allan mátt þegar hún hlær

Berglind Dúna Sigurðardóttir, 17 ára Eyjastúlka er með tveir tegundir af svefnsýki. Annars vegar sofnar hún í tíma og ótíma og hins vegar lamast allir vöðvar í líkamanum þegar hún hlær. Berglind Dúna segir í samtali við Pressuna að hún telji sig hafa smitast þegar hún var sprautuð gegn svínaflensu. (meira…)

Dýpkað fyrir 560 milljónir

Heildarkostnaður við dýpkun í Landeyjahöfn verður að ári kominn í um 560 milljónir króna, gangi áætlanir Siglingastofnunar eftir. Frá því að höfnin var tekin í notkun í júlí 2010 hefur kostnaður við dýpkun hafnarinnar verið um 345 milljónir króna. (meira…)

Herjólfur til �?orlákshafnar næstu daga

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar mánudag til fimmtudags, 19.-22. dessember. Vegna mjög óhagstæðar ölduspár fyrir Landeyjahöfn neyðumst við til að setja inn siglingar til Þorlákshafnar næstu daga. Brottför frá Vestmannaeyjum kl 8:00 og 15:30 og brottför frá Þorlákshöfn kl 11:45 og 19:15. Bókunum farþega hefur verið breytt til samræmis við það. (meira…)

Fjör á balli með Ingó og Veðurguðunum

Próflokaball var haldið í Höllinni í gærkvöldi en þar léku Ingó og Veðurguðirnir fyrir dansi. Eyjamenn á öllum aldri mættu að sjálfsögðu á ballið og skemmtu sér langt fram á nótt. Ljósmyndari Eyjafrétta.is kíkti við og má sjá myndir frá ballinu hér að neðan. (meira…)

�?rjár ferðir Herjólfs í dag

Gert er ráð fyrir því að Herjóflur sigli þrjár ferðir milli Eyja og Landeyjahafnar á morgun sunnudag. Brottför frá Eyjum 8:00, 11:30 og 15:30 en brottför frá Landeyjahöfn 10:00, 13:00 og 19:00. Aðstæður geta þó breyst hratt og við þeim munum við bregðast og senda þar að lútandi tilkynningar á neðangreinda staði um leið og […]

Kári markahæstur í tapleik

Kári Kristjánsson var markahæstur í liði Wetzlar er liðið tapaði með einu marki á útivelli fyrir Hamburg, 25:24. Róbert Gunnarsson kom ekkert við sögu í leik RN Löwen er liðið tapaði fyrir Flensburg á útivelli. Hamburg var með undirtökin á heimavelli en Kári og félagar gáfust aldrei upp og náðu að jafna og síðustu mínúturnar […]

Ingó spilar fyrir krakkana í Höllinni

Hinn eini sanni Ingó úr Veðurguðunum mun leika á barnaskemmtun í Höllinni í dag milli 18 og 19. Ingó er kominn til Eyja en hann og hljómsveit hans munu jafnframt spila á Próflokaballi í Höllinni í kvöld. Aðgangseyrir á barnaskemmtunina er 500 krónur en kappinn gaf út geisladisk fyrir jólin og gráupplagt að fá hann […]

ÍR-ingar einfaldlega betri

Eins og staðan er í dag, virðist sæti í úrvalsdeild vera fjarlægjast hjá karlaliði ÍBV því gengi liðsins undanfarnar vikur hefur verið hræðilegt. Flestum þótti nóg um þegar liðið steinlá fyrir Stjörnunni á heimavelli á dögunum en í dag, gegn toppliði ÍR, buðu leikmenn ÍBV upp á svipaða frammistöðu og gegn Garðbæingum. Það þurfti því […]

Góður sigur á Keflavík í æfingaleik

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék í morgun æfingaleik gegn Keflavík en leikur liðanna fór fram í Reykjaneshöllinni. Eyjamenn unnu leikinn 3:1 en mörk ÍBV gerðu þeir Tryggvi Guðmundsson og bandarískur sóknarmaður, Charlie, sem hefur æft með ÍBV og Val undanfarnar vikur. Í gær léku Eyjamenn gegn Leikni í Íslandsmótinu í Futsal og höfðu sigur, 11:5. […]

Styrktarmót fyrir markahrók

Föstudaginn 30. desember hyggst smíðaklúbburinn Þumalputtar, ásamt ÍBV-íþróttafélagi halda styrktarmót í knattspyrnu fyrir markahrókinn Steingrím Jóhannesson. Öll innkoma af mótinu rennur óskipt til Steingríms, sem berst við krabbamein. Keppt verður í Eimskipshöllinni en salnum verður skipt í fjóra velli. Fimm eru inn á í einu og leiktíminn er 1×10 mínútur. Mótið hefst klukkan 17:00 en […]

�?rlátur bæjarráðsfundur

Á fundi bæjarráðs í vikunni lá fyrir samkomulag milli ÍBV íþróttafélags og Vestmannaeyjabæjar um 15 milljón króna styrk frá bænum til byggingar á áhorfendastúku við Hásteinsvöll. Einnig lá fyrir samkomulag við Golfklúbb Vestmannaeyja, þar sem fram kom að bærinn veitir Golfklúbbnum 10 milljón króna aukastyrk til endurfjármögnunar klúbbsins. (meira…)

Markmannsnámskeið í knattspyrnu

Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður og markvörður Pepsi deildar liðs FH verður með markvarðarnámskeið í Vestmannaeyjum 21. desember. Æfingarnar verða fjórar yfir daginn í knattspyrnuhúsinu. Fyrsta æfingin er frá kl.11.30-12.20. Æfing tvö verður frá kl.14-14.50. Æfing 3 og 4 verða frá 17.00-18.40 með 10 mínútna pásu á milli. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.