Áætla 3.300 milljónir í tekjur

Fjárhagsáætlun samstæðu Vestmannaeyja 2012 gerir ráð að tekjur verði alls 3.300 milljónir króna og gjöld kr. 3.205 milljónir. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði verður jákvæð upp á 94 milljónir, fjármunatekjur, fjármagnsgjöld, verða 86,4 milljónir. Rekstrarniðurstaða verður jákvæð um 180,7 milljónir og veltufé frá rekstri verður 406,6 milljónir. Afborganir langtímalána eru áætlaðar kr. 121,3 milljónir króna og handbært […]
Rakel valin í U-20 ára landsliðið

Rakel Hlynsdóttir hefur verið valin í úrtakshóp U-20 ára landsliðs Íslands í handbolta. Alls voru 31 leikmaður valinn í fyrstu atrennu en þjálfari liðsins, Guðmundur Karlsson hefur kallað leikmennina í mælingu. Þegar niðurstöður mælinganna liggja fyrir, þá verður fyrst valið í æfingahóp sem æfir milli jóla og nýárs. (meira…)
Aðventutónleikar í Landakirkju í kvöld

Árlegir aðventutónleikar Kórs Landakirkju verða í kvöld, fimmtudagskvöld, og hefjast klukkan 20.00. Tónleikar kórsins á aðventu eru í hugum margra Eyjamanna einn liðurinn í að komast í hið eina sanna jólaskap. Einsöngvarar með kórnum eru Sólveig Unnur Ragnarsdóttir og Jóhannes Freyr Baldursson. Þetta verða fyrstu jólatónleikarnir undir stjórn Kitty Kovács sem tók við stjórninni í […]
Jólaperlur haldnar á ný þann 20. desember næstkomandi

Jólaperlur, árlegir tónleikar til styrktar Æskulýðsfélagi Landakirkju verða haldnir aftur í ár þann 20. desember kl 20:00 í Safnaðarheimili Landakirkju. Tónleikarnir voru áður auglýstir þann 19. en hafa verið fluttir vegna annara viðburða í Eyjum á sama tíma. Tónleikarnir verða með sama sniði og í fyrra en fjöldi nýrra söngvara munu koma fram ásamt Jólatríoinu […]
Valur Smári ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar

Valur Smári Heimisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV. Hann tekur við af Trausta Hjaltasyni sem gegnt hefur starfinu síðustu tvö ár en Trausti hættir um áramót. Valur Smári, sem er 24 ára gamall, er ekki ókunnur íslenskri knattspyrnu þar sem hann hefur skrifað um leiki ÍBV í Eyjum fyrir Vísi.is og Fréttablaðið. Undanfarið hefur […]
Fjórar ferðir á morgun í Landeyjahöfn

Herjólfur mun sigla fjórar ferðir milli Eyja og Landeyjahafnar föstudaginn 16. og laugardaginn 17. desember. Brottför frá Eyjum klukkan 8:00,11:30, 15:30 og 20:30 en brottför frá Landeyjahöfn 10:00, 13:00, 19:00 og 21:30. Búið er að opna fyrir sölu í þessar fjórar ferðir til og frá Eyjum. (meira…)
Kom færandi hendi

Slysavarnafélaginu Landsbjörg hefur borist góð gjöf frá Grími kokki ehf en um er að ræða hálft tonn af framleiðsluvörum fyrirtækisins. Vörurnar skulu nýttar í stærri aðgerðum, leitum, æfingum, fundum eða hvenær sem björgunarsveitafólk þarf á hollri og góðri næringu að halda. Helstu framleiðsluvörur Gríms eru plokkfiskur og humarsúpa. Með gjöfinni vill Grímur kokkur og hans […]
Vestmannaeyjar eiga met í skráðum lögbrotum á síðasta ári!!!

Hverju skyldi það nú sæta að við Vestamannaeyingar skulum þurfa að lesa eða hlusta á alla fréttamiðla þessa lands um að hér sé hæðsta glæpatíðni á öllu landinu. Mín skoðun er sú að ef okkar eigin vefmiðlar (þá á ég við eyjafréttir.is og eyjar.net) myndu slaka aðeins á í umfjöllun á því hvaða útköllum lögreglan […]
Frábær skemmtun hjá Eyverjum

Í gærkvöldi stóðu ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum, Eyverjar, fyrir kvöldskemmtun í Höllinni. Aðalnúmer kvöldsins var uppistandarinn Ari Eldjárn, sem fór einfaldlega á kostum þannig að tæplega 300 áhorfendur veltust um af hlátri. En auk Ara, komu fram ungir tónlistarmenn í Eyjum, þau Una Þorvaldsdóttir, Sindri Freyr Guðjónsson og Patrick Rittmüller og stóðu sig mjög vel. […]
Hvort er mikilvægara skógrækt eða heilbrigðissþjónusta, tré eða veikt fólk?

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eins og það lá fyrir þarf Sjúkrahúsið á Akureyri að hagræða um sextíu og níu milljónir. Heilsugæslan í Grindavík er skorin niður um tuttugu og fimm milljónir, Heilbrigðisstofnun Austurlands um sjötíu og eina milljón og Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki um sextíu og tvær komma átta milljónir. Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja er gert að skera niður um […]
Verð að kíkja á vini mína í Vestmannaeyjum og þakka stuðninginn

„Ég er spenntur, ég kom síðast 2007 og var í Höllinni í rokkham. Það verður eitthvað meira, kósý núna,“ sagði Mugison sem býður öllum Vestmannaeyingum á tónleika í Höllinni á mánudagskvöld. „Ég spila fyrst og fremst efni af nýja diskinum en blanda þessu eitthvað saman.“ (meira…)
Steini Pési og Gaur á Trommu

Pétur Jóhann Sigfússon og Þorsteinn Guðmundsson, sem löngu eru orðnir landsþekktir fyrir sjónvarpsþætti sína og kvikmyndir, slá nú saman í uppistandsveislu í Eyjum snemma á næsta ári. Með þeim verður tónlistarmaðurinn Helgi Svavar Helgason sem mun halda taktinum gangandi á milli atriða og lífga upp á sýninguna með þokka sínum og persónutöfrum. (meira…)
Ari Eldjárn í kvöld í Höllinni

Ari Eldjárn verður með uppistand í Höllinni í kvöld. Það eru ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum, Eyverjar, sem fá kappann til Eyja en allur ágóði kvöldsins rennur óskertur til Krabbavarna Vestmannaeyja. Ari var einmitt á vegum Eyverja í Eyjum fyrir ári síðan og komust færri að en vildu. (meira…)
Sandur Landeyjahafnar til sölu í Vöruval

Vöruval selur nú sand úr Landeyjahöfn en allur ágóði rennur til Siglingamálastofnunar. Ingimar Georgsson, kaupmaður, segir sandinn henta vel í hálkunni og í raun fela í sér gjaldeyrissparnað, hann komi í stað hálkueyðandi efnis. (meira…)
Eiður Aron gengur til liðs við Eyverja

Þann 30. desember hafa félagar Steingríms Jóhannessonar skipulagt mót í knattspyrnu til styrktar honum og fjölskyldu hans. Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, styðja að sjálfsögðu við bakið á þeim og taka þátt í mótinu. Málefnið er gott en því fylgir þó líka einhver alvara. Líkt og Steingrímur gerði á sínum knattspyrnuferli, þá fara Eyverjar […]
Jólatónleikar Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja í dag

Í dag miðvikudaginn 14.desember kl17:30 mun Skólalúðrasveit Vestmannaeyja verða með jólatónleika í Hvítasunnukirkjunni við Vestmannabraut. Fram koma yngri og eldri deild Skólalúðrasveitarinnar (pínu og mini-lú) ásamt því að Lúðrasveit Vestmannaeyja mun verða krökkunum til aðstoðar í nokkrum laganna. (meira…)
Umræða um fiskveiðistjórnun í stað glasastorms í stjórnarráðinu

Nærri þrjár vikur eru nú liðnar síðan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti birti á vefsíðu sinni tillögur starfshóps að breytingum á lögum um fiskveiðistjórnun. Líklega hefur engin birting á vef Stjórnarráðsins fengið viðlíka auglýsingu eins og hér varð þegar hæstvirtur forsætisráðherra kynnti málið fyrir alþjóð í sunnudagshádeginu 27. nóvember. (meira…)
Hundur ók aftan á kyrrstæðan bíl

Bíl var ekið aftan á annan, kyrrstæðan bíl við verslunina Vöruval í dag. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þegar að var komið, sat hundur við stýrið á bílnum sem ók aftan á hinn. Eigandi bílsins, sem ekið var á, hafði farið inn í verslun Vöruvals til að […]
Landflutningar-Samskip styrkja ÍBV

Starfsfólk Landflutninga-Samskip í Eyjum er sannarlega í jólaskapi. Fyrirtækið ætlar að styrkja barna- og unglingastarf hjá ÍBV-íþróttafélagi með því að gefa andvirði pakkasendinga fyrir jólin, til félagsins. Stuðningsmenn félagsins ættu því að hafa það hugfast þegar kemur að því að senda jólapakkana upp á land. (meira…)
Alvarleg líkamsárás í heimahúsi

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og fór töluverður tími í að aðstoða borgarana vegna þeirrar ófærðar sem voru á götum bæjarins enda töluverð ofankoma og skafrenningur sem gengið hefur yfir Eyjarnar undanfarna daga. Þá var töluvert að gera í kringum skemmtanahald helgarinnar og nokkuð um pústra. (meira…)