Bingó í Týsheimilinu í kvöld

Krakkarnir í 3. flokki karla og kvenna í fótbolta hjá ÍBV halda bingó í Týsheimilinu í kvöld, þriðjudag klukkan 19:30. Ágóði þess rennur beint í ferðasjóð flokksins en stefnan hefur verið tekin á Svíþjóð næsta sumar. Eins og alltaf verða veglegir vinningar í boði og sjoppa á staðnum. (meira…)
Hver miði á Sinfóníuna er niðurgreiddur um 9400 krónur af skattgreiðendum

Fjárlögin eru fyrir marga hluti athyglisverð. Með því að rýna í þau er hægt að glöggva sig á því hvernig okkar sameiginlegi sjóður er látin niðurgreiða hina og þessa þjónustuna. Ekki er að efast um að nánast öll þau verkefni sem ríkið velur að verja fé til eru af hinu góða. Það breytir því ekki […]
Herjólfur siglir til �?orlákshafnar í dag

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar 13. desember. Ástæðan er dýpi í Landeyjahöfn og að ekki hefur tekist að mæla það með fullnægjandi hætti. Aðstæður geta þó breyst hratt og við þeim munum við bregðast og senda þar að lútandi tilkynningar á neðangreinda staði um leið og einhverjar breytingar verða ákveðnar. (meira…)
Tonny og Abel stóðu sig vel með �?ganda

Á heimasíðu ÍBV er sagt frá þeim félögum Tonny Mawejje og Abel Dhaira en þeir hafa verið að leika með úganska landsliðinu í CECAFA keppninni í Afríku. Þar leika þjóðir frá mið- og austur-Afríku en Úganda sigraði Rúanda í úrslitaleik 3:2. Abel gerði sér lítið fyrir og varði tvær vítaspyrnur í leiknum. (meira…)
Mokið frá ruslatunnunum

Starfsmenn Íslenska Gámafélagsins vilja beina þeim tilmælum til Eyjamanna að moka frá ruslatunnum. Starfsmenn fyrirtækisins hafa lítið getað sinnt sorphirðu síðustu daga en fóru af stað í morgun við afar erfiðar aðstæður. Þá vilja starsfmenn tryggingafélagsins Sjóvá benda húseigendum á að kanna niðurföll við heimili sín. (meira…)
Brunninn strengur olli rafmagnsleysi í morgun

Rúmlega níu í morgun sló út öllu rafmagni í Vestmannaeyjum og var rafmagnslaust í öllum bænum í tæplega eina og hálfa klukkustund. Ástæða bilunarinnar var brunninn strengur við kyndistöðina við Kirkjuveg en fleiri bilanir urðu til þess að rafmagnleysið varði svo lengi. (meira…)
Laun í Eyjum hafa hækkað um 31% frá 2007

Á vef mbl.is er sagt frá því að launaþróun hafi verið afar misjöfn eftir landsvæðum. Í Vestmannaeyjum hafi t.d. laun hækkað um 31% frá árinu 2007 til 2010 en á sama tíma lækkuðu þau um 1% í Reykjavík. Þetta kemur fram í 43. tölublaði Vísbendingar, tímarits um viðskipti og efnahagsmál. (meira…)
Glæpatíðni langhæst í Eyjum

Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því á forsíðu blaðsins að fjöldi skráðra glæpa, miðað við íbúatölu, hafi verið mestur í Vestmannaeyjum á síðasta ári. Þjóðhátíð skýri að einhverju leyti þessa niðurstöðu en Karl Gauti Hjaltason segir hátíðina ekki skýra stöðuna að öllu leyti. Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur sinnt flestum líkamsárásarmálum, fíkniefnabrotum, áfengislagabrotum og […]
Bjóða Eyjamönnum á aðventutónleika

Hjónin Kitty Kovács, píanóleikari og Balázs Stankowsky, fiðluleikari hafa ákveðið að bjóða Eyjamönnum á aðventutónleika í Safnaðarheimili Landakirkju í dag klukkan 17:00. Tónleikarnir koma í stað þeirra sem áttu að vera í Stafkirkjunni á sama tíma en hætt var við þá þar sem færð er varasöm í dag og aðgengi auðveldara að Safnaðarheimilinu. (meira…)
27 milljónir til Eyja

Tveir vinningshafar skiptu með sér sexföldum potti í Lottó í gærkvöldi en annar vinningsmiðinn var keyptur á Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum. Hvor vinningshafinn um sig fær heilar 27 milljónir í sinn hlut en hinn vinningsmiðinn var í áskrift. (meira…)
Tónleikarnir í Stafkirkjunni falla niður

Aðventutónleikar Stafkirkjunnar, sem vera áttu með Kitty og Balacs sunnudaginn 11. kl. 17, falli niður af óviðráðanlegum orsökum (aðallega ófærð). Stafkirkjan mun efna til tónleika á næsta ári með þessu frábæra tónlistarfólki. (meira…)
Blindbylur og erfið færð í Eyjum

Í dag, laugardag hefur vetur konungur sýnt allar sínar verstu hliðar í Eyjum. Þannig hefur verið blindbylur í allan dag og færð á vegum er afar erfið. Starfsmenn Vestmannaeyjabæjar hafa þó unnið sleitulaust í allan dag við að ryðja vegi en jafn harðan skefur ofan í þá að nýju. Björgunarfélag Vestmannaeyja var ræst út um […]
Eyjamenn lögðu Fjölni að velli

Eyjamenn lögðu í dag Fjölni að velli í síðasta leik 2. umferðar í 1. deild karla. Lokatölur urðu 23:27 en staðan í hálfleik var 10:12. Eyjamönnum gekk ill að hrista fríska Fjölnismenn af sér en þó var sigur Eyjamanna ekki í hættu í síðari hálfleik. (meira…)
Eyjamenn úr leik eftir stórt tap gegn �?ór Akureyri

Körfuknattleikslið ÍBV er úr leik í Poweradebikarkeppninni eftir tap gegn Þór frá Akureyri í Eyjum í dag í 32ja liða úrslitum keppninnar. Lokatölur urðu harla óvenjulegar, 47:153 en Eyjamenn réðu ekkert við pressuvörn Akureyringa, sem gáfu ekkert eftir og hreinlega völtuðu yfir unga og reynslulitla Eyjamenn. Staðan í hálfleik var 24:83. (meira…)
Sýning á Ronju Ræningjadóttur fellur niður

Vegna veikinda verður Leikfélag Vestmannaeyja að aflýsa sýningum um helgina. Leikfélagið mun þó halda áfram sýningum á Ronju helgina 16.-18. desember. (meira…)
Niður með grýlukertin

Glöggur vegfarandi kom við á ritstjórn Eyjafrétta.is nú síðdegist og vildi koma á framfæri ábendingu til Eyjamanna. Nú er kalt í veðri og snjóþungt en fylgifiskur veðurfarsins eru grýlukerti, sem hanga neðan úr þökum húsa. Grýlukertin eru sum hver mjög stór og getur skapast veruleg hætta ef þau falla til jarðar og á gangandi vegfarendur. […]
�??Auðvitað spila ég�??

Það hefur varla farið framhjá lesendum Eyjafrétta.is síðustu daga að í kvöld klukkan 19:00 tekur B-lið ÍBV á móti aðalliði HK í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Leikurinn fer fram í Eyjum en svo skemmtilega vill til að Erlingur Richardsson, Eyjamaður og leikmaður B-liðsins, er jafnframt annar af tveimur þjálfurum HK. Hinn þjálfarinn, Kristinn Guðmundsson tengist Eyjunum […]
Pálmi genginn í raðir HK

Pálmi Harðarson, aðstoðaraðstoðarþjálfari B-liðs ÍBV í handbolta, er genginn í raðir HK. Liðin tvö mætast einmitt í Eimskipsbikarnum í kvöld en samkvæmt heimildum Eyjafrétta.is eru kaup HK á Pálma, liður í leikmannaskiptum félaganna. Þannig mun Erlingur Richardsson, þjálfari HK spila með B-liðinu og Pálmi með HK. (meira…)
Verkefnalausir sorphirðumenn bjóðast til að moka frá tunnum bæjarbúa

Þeir dóu ekki ráðalausir drengirnir í sorphirðunni hjá Íslenska Gámafélaginu. Nú er færð þannig að ekki er hægt að sinna sorphirðunni og voru drengirnir því sendir heim, enda verkefnalausir. Í stað þess að setja tærnar upp í loft, þá sáu þeir sóknarfæri í stöðunni og bjóða nú fram krafta sína við að moka frá sorptunnum, […]
Apple, Microsoft, Virgin Airlines og Boeing styrkja B-liðið

Í morgun var undirritaður samningur milli B-liðs ÍBV og alþjóðs tölvurisans Apple um að fyrirtækið styrki gömlu karlana í handboltaliðinu á þessu tímabili. Fyrir höfðu forráðamenn liðsins náð samningum við Microsoft, Virgin Airlines og Boeing en Daði Pálsson segir að ekki sé tjaldað til einnar nætur hjá B-liðinu. (meira…)