Framlög til Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja dregist saman um 17% á árunum 2008 til 2010

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gær var m.a. fjallað um stöðu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Í fundargerð ráðsins kemur fram að það taki undir áhyggjur framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands en erindi um málið barst bæjarráði. „Stærsta breytingin er sú að skurðstofan er nú lokuð í sex vikur á ári. Þá hefur verið dregið mikið úr göngudeildarstarfsemi og úr […]
Spilar Pálmi Harðarson með HK?

Eins og komið hefur fram ríkir mikil örvænting í herbúðum HK liðsins fyrir leikinn gegn feikna sterku liði B(etra)-liði ÍBV en liðin mætast í kvöld í 8 liða úrslitum í Eimskipabikardeildinni. Meðal þess sem orðið hefur að ágreiningi er þátttaka hins gríðarlega sterka leikmanns Erlings Richardssonar en auk þess að spila með ÍBV þjálfar Erlingur […]
Stefnt á að mæla dýpi í Landeyjahöfn í dag

Eins og undanfarnar vikur, siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í dag og mun halda því áfram fram á mánudag í það minnsta. Ekki hefur verið siglt til Landeyjahafnar síðan 7. nóvember síðastliðinn en unnið er að dýpkunarframkvæmdum við höfnina og eru bæði Skandia og Perland að störfum þar. (meira…)
Stalla-Hú mætir á svæðið

Jarl Sigurgeirsson hafði samband við ritstjórn og vildi koma á framfæri áríðandi fréttatilkynningu fyrir leik ársins í kvöld milli B-liðs ÍBV og HK í Eimskipsbikarnum. Stalla-Hú mun mæta á svæðið og styðja við lélegt bakið á feitu körlunum í ÍBV. Jarl hvetur þá sem eiga hljóðfæri að mæta með þau á svæðið og leika með […]
Appledagur í Tölvun á föstudaginn

Apple dagurinn verður haldinn hátíðlegur hjá Tölvun með kynningum á Apple vörum í Framhaldsskólanum og á Café Varmó á morgun, föstudaginn 9. desember. Apple-sérfræðingurinn Guðjón Pétursson verður með kynningu á Apple vörunum og öllu þeim tengdu á Café Varmó í hádeginu frá 12:00 til 13:00. (meira…)
Vegna meiðsla og ellikruma verður ekki tekin æfing fyrir leikinn annað kvöld gegn HK

Þar sem meiðsli og ellikrum hafa hrjáð leikmenn B-etra) liðs ÍBV hefur verið tekin ákvörðun um sleppa alfarið æfingum fyrir leikinn í gegn HK annað kvöld. Þess í stað eru leikmenn beðnir um að kynna sér vandlega meðfylgjandi myndband en þar koma fram einfaldar útgáfur af þeim kerfum og aðferðum sem lagt verður upp með […]
Vestmannaeyjabær tekur ekki að sér að moka úr innkeyrslum

Byrjað var að ryðja snjó af götum bæjarins fyrir kl. 6 í morgun og eru öll tæki Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyja úti sem og tæki frá Íslenska gámafélaginu og Gröfuþjónustu Brinks. Í tilkynningu frá Þjónustumiðstöðinni segir að „þeir, sem vilja vita hvenær rutt verður hjá „mér“ þá getum við ekki svarað því frekar en aðrir, þar sem […]
Dýpkunarkostnaðurinn fari í að lækka fargjöld með Herjólfi

Hún Landeyjahöfn var mikil samgöngubót, þegar hún var tekin í notkun í júli árið 2010 og er það enn, – þegar hún virkar. En nú er ég farinn að efast um að það sé réttlætanlegt að halda áfram á sömu braut, – að hafa tvö dýpkunarskip að störfum, yfir þennan árstíma, þegar ein lægð getur […]
Skandia fékk gat á stefnið

Skandia lenti í hremmingum þegar hún var við dýpkun í Landeyjarhöfn á laugardagsmorgun. Skipið var á leið inn í höfnina þegar það fékk á sig brot bakborðsmegin með þeim afleiðingum að það kastaðist á hafnargarðinn og gat kom á stefni skipsins, stjórnborðsmegin. (meira…)
Bjartar vonir �?? Eyjalögin öðlast nýtt líf

Ný hljómsveit sem nefnist Tríó Glóðir hefur nú stigið fram í sviðsljósið sem með blíðum tónum Oddgeirs Kristjánssonar kemur öllum í rétta stemningu. Tríóið hefur nú gefið út sína fyrstu breiðskífu, Bjartar vonir. Á plötunni eru margar af þekktustu perlum Oddgeirs, eins og Ég veit þú kemur og Ágústnótt, í bland við minna þekkt lög. […]
Veiðigjald útgerða hækkað úr 650 milljónum í 9 milljarða á sjö árum

Veiðigjald, sem lagt er á útgerðir landsins, hefur fimmfaldast á undanförnum árum, úr 649 milljónum króna fiskveiðiárið 2005-2006 í rúmlega 3 milljarða króna fiskveiðiárið 2010-2011. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi á yfirstandandi fiskveiðiári hækki um 50% frá því síðasta og verði um 4,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn […]
Leikmeður Selfoss hyggst kæra

Atli Kristinsson, skytta í handknattleiksliði Selfoss hyggst kæra Davíð Þór Óskarsson, leikmann ÍBV fyrir líkamsárás. Þetta er haft eftir Atla á www.visir.is en aganefnd Handknattleikssambands Íslands komst að þeirri niðurstöðu að nefndin ætti ekki að dæma eftir myndbandsupptöku af atvikinu. Dómarapar leiksins missti af atvikinu þannig að Davíð Þór fékk enga refsingu í leiknum, né […]
Verður Sjúkrahús Vestmannaeyja lagt niður?

Það hefur verið yfirlýst markmið velferðarráðherra að bæta eigi aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að sérfræðilæknisþjónustu. Þetta hefur margoft komið fram í gögnum frá ráðuneytinu og viðræðum ráðherra við lækna. Því kom það verulega á óvart í vikunni að heyra fréttir af því að leggja ætti Sjúkrahús Vestmannaeyja niður. (meira…)
Aganefnd HSÍ dæmdi ekki eftir myndbandsupptöku

Aganefnd Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) tók fyrir á fundi sínum erindi frá stjórn HSÍ vegna atviks sem átti sér stað í leik ÍBV og Selfoss í 1. deild karla. Af myndbandsupptöku virtist Davíð Þór Óskarsson slá viljandi til leikmanns Selfoss en dómarapar leiksins sá ekki leikbrotið. Alla jafna er ekki dæmt eftir myndbandsupptökum eftir að leik […]
Tónleikar Frostrósa verða kl. 20.00 í Höllinni

Frostrósir verða sem kunnugt er, með tónleika í Eyjum á morgun. Upphaflega áttu tónleikarnir að vera kl. 18.00 í Höllinni. Þeim hefur nú verið seinkað til kl. 20.00. (meira…)
Boða til fjölskyldusleðaferðar í Herjólfsdal

Hjónin Geir Reynisson og Sigþóra Guðmundsdóttir fengu góða hugmynd á dögunum. Þau vilja fá fjölskyldur í Eyjum til að sameinast í sleðaferð í Herjólfsdal, þar sem brekkan verður lýst upp og boðið verður upp á létt lög í Dalnum. Geir og Sigþóra gerðu gott betur en að fá hugmyndina, því þau eru búinn að hrinda […]
Herjólfur siglir til �?orlákshafnar fram til 12. desember

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fram til mánudagsins 12. desember en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip. Ástæðan er dýpi í Landeyjahöfn en ekki hefur verið siglt þangað síðan mánudaginn 7. nóvember. Siglt verður áfram samkvæmt áætlun í Þorlákshöfn þar sem brottför frá Eyjum er klukkan 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn 11:45 og 19:15. […]
Spilar Erlingur með B-liðinu?

Nú bendir allt til þess að Erlingur Birgir Richarsson, lykilmaður í B-liði ÍBV í handbolta, muni ekki leika með liðinu gegn liði sínu HK. Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá spilar Erlingur með B-liði ÍBV en þjálfar HK við annan mann. Hinn þjálfarinn er enginn annar en Kristinn Guðmundsson, sem einmitt þjálfaði ÍBV með […]
Frostrósir í Eyjum á morgun

Tónleikar Frostrósa fara víða um þessar mundir en m.a. var farið til Færeyja. Næsti viðkomustaður eru hins vegar Vestmannaeyjar en á morgun, miðvikudaginn 7. desember munu Frostrósir mæta í Höllina. Hringferð Frostrósa er viðameiri en nokkru sinni fyrr í tilefni 10 ára afmælistónleikanna. Glæsilegir jólatónleikar Frostrósa verða að vanda settir upp í hátíðlegri og veglegri […]
�?vissa hjá Kára Kristjáni

Nokkur óvissa mun ríkja um hvort Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins, fær endurnýjaðan samning hjá þýska 1. deildar liðinu Wetzlar þegar núverandi samningur rennur út á komandi vori. (meira…)