Ráðist á næturvörð á Hótel �?órshamri

Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið, eins og fram kemur hér að neðan. Skemmtanahald helgarinnar fór að mestu ágætlega fram en þó var nokkuð um stympingar við og á skemmtistöðum. Einungis ein kæra liggur fyrir vegna líkamsárásar. Þá var nokkuð kvartað yfir hávaða í heimahúsum vegna gleðskapar. (meira…)
Selfyssingar sjá um endurbætur á sjúkrahúsinu

Smíðandi á Selfossi átti lægsta tilboðið í viðhaldsvinnu við sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum. Þetta kom fram í Dagskrá á Selfossi en framkvæmdir hefjast nú um mánaðarmótin og á að ljúka í maí 2012. Samkvæmt blaðinu munu um 15-20 starfsemann fyrirtækisins koma að verkinu. (meira…)
Birkir Ívar vill mæta B-liði ÍBV í undanúrslitum

Birkir Ívar Guðmundsson átti góðan leik þegar Haukar lögðu Val að velli í 8- liða úrslitum Eimskipsbikarnum í gær. Birkir Ívar lék einnig með Haukum, sem lögðu ÍBV að velli í 16 liða úrslitum. Hann á sér óskamótherja í undanúrslitum, B-lið ÍBV. B-liðið mætir einmitt úrvalsdeildarliði HK á föstudagskvöld en þessi tvö lið mættust einmitt […]
�?tgerðir í Vestmannaeyjum greiða mest

Í Morgunblaðinu í dag er greint frá svari Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinssonar á Alþingi varðandi hækkun veiðigjalds. Heildargreiðslur veiðigjaldsins fiskveiðiárið 2012-2013 er 9,1 milljarða króna. Í svari ráðherra kemur fram að útgerðir í Vestmannaeyjum greiði mest eða ríflega 421 milljón króna. Veiðigjaldið hækkar úr 13,3% í 27% á milli fiskveiðiára. Veiðigjaldið […]
Eymundsson opnar 12 í dag

Verslunin Eymundsson opnar í dag klukkan 12:00 á nýjum stað við Faxastíg, við hliðna á Tvistinum. Nýjar og ferskar vörur hafa borist til Eyja með methraða en Ingþór Ásgeirsson hjá Eymundsson, segir að ekki hefði verið hægt að opna nýja verslun svo fljótt, nema með miklum velvilja og aðstoð Vestmannaeyinga sem hafi aðstoðað með öllum […]
Getur verið?

Landsmenn hafa að undanförnu sárlega fundið fyrir niðurskurði á ýmis konar opinberri þjónustu. Einkum hefur þetta komið fram í heilbrigðisþjónustunni og ýmsum öðrum velferðarmálum. Af skiljanlegum ástæðum er fólk ekki sátt við niðurskurðinn og reynir með ýmsum hætti að telja stjórnvöld á að falla frá honum. Stjórnvöld hafa á móti bent á að niðurskurðurinn sé […]
Sigur á Fjölni í æfingaleik

Strákarnir léku æfingaleik í borginni í gær (laugardag) og héldu upp á skóflustunguna að nýrri stúku með góðum sigri á Fjölni. Leikurinn fór 2-0 fyrir ÍBV og skoraði Tryggvi Guðmundsson annað markanna og fiskaði vítaspyrnu sem Eyþór Helgi skoraði úr. Athygli vakti að Jónas Bergsteinsson og Hilmar Ragnarsson léku í vörn ÍBV í þessum leik […]
Um Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, að gefnu tilefni

Velferðarráðuneytið vill koma á framfæri leiðréttingum vegna frétta Eyjafrétta og ummæla bæjarstjórans í Vestmannaeyjum þess efnis að til standi að loka starfsemi heilbrigðisstofnunarinnar í bænum. Ráðuneytið vill koma því á framfæri að engin áform eru uppi um slíkt né er gert ráð fyrir að breytingar verði á þjónustustigi við íbúa Vestmannaeyja. Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum er […]
Einn í haldi lögreglu eftir slagsmál

Karlmaður um tvítugt situr í varðhaldi hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum eftir að lögreglumenn höfðu ekið fram á tvo menn takast á um sjöleytið í morgun. Lögreglumennirnir stöðvuðu átökin og handtóku annan manninn í kjölfarið. Hinn var með mar á höfði en taldi sig ekki þurfa á aðstoð lækna að halda og hélt því til síns […]
Mikilvægur leikur hjá strákunum í dag

Eyjamenn leika mikilvægan leik í 1. deildinni í dag þegar liðið tekur á móti Stjörnunni úr Garðabæ. Eyjamenn hafa tapað síðustu þremur leikjum af fjórum í deild og bikar, og vilja sjálfsagt rétta úr kútnum. ÍBV er sem stendur í 2. sæti, tveimur stigum á eftir ÍR, sem lagði Víkinga að velli í gærkvöldi. Stjarnan […]
�??Nú meikarðu það Gústi�??

Í kvöld verður Gústakvöld á Café Varmó kl. 21.00. Jóhannes Ágúst Stefánsson lést langt um aldur fram fyrr á þessu ári og nú ætla vinir hans að minnast hans í kvöld með minningardagskrá. Páll Scheving heldur tölu ásamt fleirum, og frábært tónlistafólk tekur lagið, og ljóð Gústa lesin. (meira…)
Eitt fárra skipa sem ræður við verkefnið

Jón Þórir Frantzson, forstjóri Íslenska Gámafélagsins, segir ómögulegt að segja til um hvenær siglingar geti hafist aftur um Landeyjahöfn en Íslenska Gámafélagið á og rekur dýpkunarskipið Skandia. (meira…)
Aaron Spear snýr aftur til ÍBV

Enski framherjinn Aaron Spear mun snúa aftur til ÍBV og leika með liðinu næsta sumar. Spear kom til ÍBV í lok júlí og var lengi í gang en undir lok Íslandsmótsins sýndi hann hvað í sér býr og var drjúgur fyrir Eyjaliðið. Spear lék 11 leiki í deild, skoraði í þeim 5 mörk og var […]
Dagur Arnarsson valin í U-16

Eyjapeyinn Dagur Arnarsson hefur verið valinn í 14 manna landsliðshóp Íslands, skipað leikmönnum 16 ára og yngri. Liðið leikur tvo leiki gegn Frökkum dagana 17. og 19. desember. Fram að því mun liðið æfa þrisvar sinnum á Reykjavíkursvæðinu en þjálfari liðsins er Einar Guðmundsson. Dagur á ekki langt að sækja handboltahæfileikana en faðir hans er […]
Er þessi ferja kannski lausnin?

Vandræðin með Landeyjahöfn halda áfram, dýpi ekki nægjanlegt, hvorki fyrir Herjólf eða Baldur. Grínsamir lesendur eyjafretta sendu okkur mynd af ferju, sem hugsanlega gæti sinnt þessu hlutverki, að sigla inn í Landeyjahöfn. (meira…)
Jólasælgæti Kiwanis pakkað á methraða

Í gærkvöldi var handagangur í öskjunni í Kiwanis, svo til í orðsins fyllstu merkingu því þá komu félagar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli saman með börnum og barnabörnum til að pakka niður hinu geysivinsæla jólasælgæti. Litlu vinnumennirnir unnu ótrúlega hratt og örugglega en pakkað var í á annað þúsund öskjur á rétt rúmlega hálftíma. Kiwanismenn munu svo […]
�?ingmenn Suðurlands – Hver er tilgangurinn með þessu?

Það vakti verulega athygli mína að lesa greinargerð með þingsályktunartillögu allra þingmanna Suðurkjördæmis um að ríkisstjórnin hefji nú þegar undirbúning að alútboði um smíði og rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju. (meira…)
Ekki leyst yfir kaffibolla

Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hjá Siglingastofnun, sagði sjólag undanfarið sjaldan hafa hentað til dýpkunarstarfa en unnið verði að dýpkun í Landeyjahöfn þegar veður leyfi. „Það er alfarið undir veðri komið hvenær gera má ráð fyrir að dýpi verði nægjanlegt fyrir Herjólf,“ sagði hann þegar spurt var hvenær siglingar gætu hafist aftur í Landeyjahöfn. (meira…)
Eyjakvöld í kvöld

Í kvöld verður Eyjakvöld á Kaffi Kró en Eyjakvöldin hafa sannarlega slegið í gegn hjá Eyjamönnum, og fleirum. Tónlistarmenn úr Eyjum í hljómsveitinni Obbosí, ásamt nokkrum aukamönnum, koma þá saman og syngja Eyjalögin vinsælu. Snilldin í þessari uppákomu felst einnig í því að textunum er varpað upp á tjald þannig að allir geta sungið með. […]
Fyrsta skóflustunga að nýrri stúku tekin á laugardag

Fyrsta skóflustungan að nýrri stúku við Hásteinsvöll, verður tekin næstkomandi laugardag klukkan 13:30. ÍBV-íþróttafélag býður Eyjamönnum að vera viðstödd athöfnina og skella sér svo í kjölfarið á leik ÍBV og Stjörnunnar í 1. deild karla í handbolta. (meira…)