Frekar samstarf en sameiningu

Gunnar Kr. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, vildi lítið tjá sig um greinargerðina og benti á þetta væru tillögur til ráðherra en ekki hans tillögur. „Ég átti samtal við ráðherra í gær [þriðjudag] og skildist mér á honum að þessar sameiningartillögur væru ekki á döfinni á allra næstu dögum. Eftir að Suðurland var sett í eitt […]
Sjúkrahúsið lagt niður

Greinargerð til velferðarráðherra um heilbrigðisstofnanir og sjúkrahús vegna fjárlaga 2012 hefur verið sett fram en þar koma fram tillögur varðandi breytingar á fjárlögum. Framlög til sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana í landinu eru hækkuð um 390 milljónir. Lagt er til að Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja (HV) verði sameinuð Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HS) og viðræður verði hafnar við Vestmannaeyjabæ um fyrirkomulag […]
Upptökin rakin til þurrkara

Eldsupptökin í Hótel Eyjum, sem stórskemmdist í bruna í nótt, voru í þurrkara á 2. hæð hússins, að því er rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós. Í þessum hluta hússins eru timburgólf, að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Eldurinn kviknaði um klukkan þrjú í nótt og síðan aftur í morgunsárið. (meira…)
Ný Vestmannaeyjaferja eigi síðar en 2015

Fulltrúar innanríkisráðuneytis, Siglingastofnunar, Vegagerðar og Vestmannaeyjabæjar ræddu um siglingar milli lands og Eyja á fundi í ráðuneytinu í dag. Leitað er framtíðarlausnar á þessum siglingum til að tryggja öruggar ferðir milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. (meira…)
Stefna að því að opna Eymundsson að nýju eftir helgi

Erla Halldórsdóttir, verslunarstjóri í Eymundsson, sagði að aðkoman um nóttina hefði verið hræðileg. „Í mínum huga skiptir mestu að allir sluppu ómeiddir frá þessum bruna. Ég er auðvitað búin að vera þarna meira og minna allt síðastliðið ár og þetta er nánast búið að vera mitt annað heimili. Mér sýnist að norðurhluti verslunarinnar hafi sloppið […]
Geisli selur einnig Apple vörur

Vegna fréttar í Eyjafréttum í gær, um sölusamning Skakkaturns og Upprisu Tölvunar, vill Skakkiturn ehf., umboðsaðili Apple á Íslandi taka fram, að í Vestmannaeyjum sér Geisli Faxi á Hilmisgötu einnig um sölu á Apple vörum. Engin breyting er fyrirhuguð á því samstarfi, sem hefur gengið með ágætum undanfarin tvö ár. (meira…)
Aftur kviknað í Drífanda

Klukkan sjö í morgun var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að nýju að húsinu Drífanda í miðbæ Vestmannaeyja en þar hafði eldur blossað upp að nýju. Eldur kviknaði í húsinu í nótt en slökkvistarf þá tók um klukkustund. Húsið var vaktað af lögreglu og slökkviliðsmönnum en allt tiltækt slökkvilið var kallað á ný á staðinn til […]
Mikill eldur í Drífanda

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út rétt rúmlega þrjú í nótt en eldur hafði blossað upp í húsinu Drífandi við Strandveg. Í húsinu, sem er að hluta á fjórum hæðum, er rekið hótel, Hótel Eyjar en á jarðhæð hefur verslunin Eymundsson aðstöðu. Gríðarmikill reykur var þegar slökkvilið Vestmannaeyja kom að en stuttu síðar gusu eldtungurnar […]
Apple vörur í Tölvun

Í dag var skrifað undir samstarfssamning um sölu og þjónustu á Apple vörum í Vestmannaeyjum. Frá og með 1. desember verður hægt að nálgast hinar vinsælu Apple vörur hjá Tölvun, Strandvegi 51. Í fréttatilkynningu kemur fram að báðir aðilar vænti góðs af samstarfinu en lögð verður áhersla á að þjónusta bæði fyrirtæki og einstaklinga í […]
�?ingmenn Suðurkjördæmis vilja nýja ferju

Þingmenn Suðurkjördæmis lögðu fram tillögu til þingsályktunar í dag þess efnis að ríkisstjórnin hefji nú þegar undirbúning að alútboði um smíði og rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju, sem verði tilbúin til siglinga milli lands og Eyja 2013. Samkvæmt tillögunni á skipið að hafa að minnsta kosti 15 mílna ganghraða, taka 475 farþega, 80 bíla og að djúprista […]
Ekkert annað en ÍBV í spilunum

Tryggvi Guðmundsson verður að öllu óbreyttu áfram leikmaður ÍBV í Pepsi-deildinni í knattspyrnu næsta sumar. Tryggvi, sem á eitt ár eftir af þriggja ára samningi, sagði ekkert annað í spilunum eins og staðan væri í dag þrátt fyrir orðróm um brotthvarf hans frá Eyjaliðinu. (meira…)
Herjólfur siglir 15:30

Viðgerð á stýrisbúnaði Herjólfs gengur vel og er stefnt að því að skipið sigli síðari ferð samkvæmt áætlun í dag. Brottför er þá 15:30 frá Vestmannaeyjum og 19:15 frá Þorlákshöfn. Samkvæmt nýjustu tilkynningu frá rekstraraðila ferjunnar, þá verður viðgerð lokið á tilsettum tíma og mun Herjólfur því sigla síðari ferð eins og áætlað var. (meira…)
Vill setja dælubúnað í Landeyjahöfn

Hægt er að fá dælubúnað sem getur dælt sandi úr Landeyjahöfn fyrir 250-300 milljónir. Þennan búnað þarf að setja upp sem allra fyrst. Þetta sagði Árni Johnsen alþingismaður á Alþingi í dag. Árni sagði að því hefði verið haldið fram að þessi búnaður kostaði milljarð, en það væri ekki rétt. Hann sagði að búnaður af […]
Nýir, gamlir leikmenn æfa með ÍBV

Karlalið ÍBV í knattspyrnu kom saman til æfinga í Eyjum um helgina. Leikmannahópurinn er, eins og undanfarin ár, tvískiptur þar sem einn hluti hópsins er í Eyjum en hinn á höfuðborgarsvæðinu. Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV stjórnar æfingu í borginni en aðstoðarmaður hans Dragan Kazic stjórnar æfingum í Eyjum. Nokkrir gamlir leikmenn eru byrjaðir á ný […]
Eyjamaðurinn Valur Heiðar með sína fyrstu sólóplötu

Eyjamaðurinn Valur Heiðar Sævarsson er þessa dagana að gefa út sína fyrstu sólóplötu. Platan, Íslenska konan, verður til sölu í Blómastofu Vestmannaeyja við Vestmannabraut og í Eymundsson. Platan er þemaplata þar sem umfjöllunarefnið er, eins og nafnið gefur til kynna, íslenska konan. (meira…)
�?tluðu að stela peru úr jólatrénu

Síðdegis í gær, sunnudaginn 27. nóvember, var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt um að tveir ungir drengir væru að príla í jólatrénu á Stakkagerðistúninu. Kveikt var á trénu síðastliðinn föstudag en talið er að drengirnir hafi ætlað að losa perur úr seríunni. Það tókst þeim þó ekki þar sem vökull vegfarandi stóð þá að verki. Þetta […]
Fyrri ferð morgundagsins aflýst

Herjólfur siglir ekki fyrri ferðina á morgun, þriðjudag. Viðgerð á stýribúnaði mun taka lengri tíma en fyrst var ráðgert en skipið mun ekki sigla síðari ferðina í dag, mánudag. Eimskip mun senda út tilkynningu um framvindu viðgerðarinnar um leið og nýjar fréttir berast. (meira…)
�?trúlegt að verða vitni að þessu

Íslenskir framleiðendur á þurrkuðum fiskafurðum eru stærstu styrktaraðilar verkefnisins MISSION FOR VISION í Calabar í Nígeríu. Á dögunum var því fagnað að 22 þúsund augnaðgerðir hafa verið framkvæmdar í verkefninu en það hófst árið 2003. Augnaðgerðaverkefnið hefur frá upphafi miðað að því að gefa blindu og sjónskertu, fátæku fólki í Nígeríu sýn á ný en […]
Síðari ferð morgundagsins aflýst

Síðari ferð Herjólfs á morgun, mánudag, fellur niður. Ástæðan er að þá verður unnið að varanlegri viðgerð á stýrisbúnaði og því verður að fella ferðina niður. Hugsanlega þarf einnig að fella niður fyrri ferð skipsins á þriðjudaginn en það verður tilkynnt síðar ef til þess kemur. (meira…)
Árlegt aðventukaffi

Kvenfélag Landakirkju heldur sitt árlega aðventukaffi 1. sunnudag í aðventu strax að lokinni guðsþjónustu kl.14:00. Auk þess er hlutavelta og basar. Á basarnum í ár er lögð áhersla á heimagerð jólakort, smákökur, brauð, kökubotna og heita brauðrétti. Einnig verðum við með til sölu ljóðabók með ljóðum sr. Þorsteins Lúthers og margt fleira. (meira…)