Eyruglunni sleppt aftur

Eyruglu var bjargað í gær undan hrafnahópi og komið á Náttúrugripasafnið við Heiðarveg. Uglan var ágætlega á sig komin og fékk frelsi að nýju síðdegis í dag. Talið er að uglan hafi haft viðdvöl í Eyjum í nokkrar vikur ásamt öðrum stærri fugli sömu tegundar. Eyruglan var varla komin úr búrinu þegar hrafnarnir skoðuðu hana […]

Herjólfur siglir samkvæmt áætlun á morgun

Herjólfur mun sigla samkvæmt áætlun á morgun, sunnudag og verður fyrr ferð dagsins farin frá Eyjum klukkan 8:00. Bilun í stýrisbúnaði olli því að skipið sigldi ekkert í dag, laugardag á meðan unnið var að bráðabirgðarviðgerð. Viðgerð lauk undir kvöld og var farið í prufusiglingu sem gekk vel. (meira…)

�?riðja tap ÍBV í fjórum leikjum

Karlalið ÍBV í handbolta tapaði þriðja af síðustu fjórum leikjum sínum í deild og bikar, þegar liðið tapaði gegn Víkingum á útivelli í dag. Lokatölur urðu 25:18 en staðan í hálfleik var 13:8, Víkingum í vil. Eins og sjá má á þessum tölum var sóknarleikur ÍBV-liðsins arfaslakur og varð það liðinu að falli í dag. […]

Seinni ferð Herjólfs í dag einnig felld niður

Nú er unnið að bráðabirgða viðgerð á stýrisbúnaði Herjólfs sem bilað á leiðinni til Eyja í gærkvöldi. Ljóst er að sú viðgerð mun ekki klárast fyrr en í kvöld. Af þeim sökum falla báðar ferðir skipsins í dag, til Þorlákshafnar niður. All kapp er lagt í að klára viðgerð, þannig að skipið geti siglt á […]

Eyjamenn úr leik

Eyjamenn lutu í lægra haldi í viðureign sinni gegn Snæfellsbæ í spurningaþættinum Útsvari í Ríkissjónvarpinu. Viðureignin var æsispennandi og réðust úrslitin á síðustu spurningunni en Snæfellsbær hafði betur 84:80 eftir að hafa svarað 5 stiga spurningu rétt. (meira…)

Dýpkunaraðferðir taki mið af raunverulegum aðstæðum en ekki spám sem ekki hafa gengið eftir

Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu mála í Landeyjahöfn og þar með á þjóðveginum til Vestmannaeyja. Sérstaklega er tekið undir það mat samráðshóps um Landeyjahöfn að staða dýpkunarmála er langt frá því að vera í ásættanlegum farvegi. Bæjarstjórn Vestmannaeyja tekur undir það mat samráðhópsins að tafarlaust þurfi að yfirfara sandburða- og efnisburðaútreikninga af […]

Kveikt á jólatrénu í dag

Kveikt verður á jólatrénu á Stakkagerðistúni í dag, föstudag kl. 17.00 á Stakkagerðistúni. Þar mun Lúðrasveit Vestmanna­eyja leika undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Ávarp flytur Páley Borgþórs­dóttir, formaður bæjarráðs, Stúlknakór Védísar mun syngja undir stjórn Védísar Guðmundsdóttur. Ronja ræningjadóttir tendrar ljós jólatrésins, helgistund verður í umsjón séra Kristjáns Björns­sonar og félagar í Leikfélagi Vestmannaeyja og jólasveinarnir […]

Risa handboltamót í Eyjum um helgina

Um helgina fer fram risa handboltamót í Vestmannaeyjum. Þá verður keppt í Íslandsmótinu hjá 5. flokki, bæði karla og kvenna. Árni Stefánsson, hjá ÍBV-íþróttafélagi, segir að skipulagning mótsins hafi gengið vel. „Í það heila eru þetta um 600 manns sem við erum að taka á móti, keppendur, þjálfarar og fararstjórar. Alls verða leiknir 118 leikir […]

Forsala á Afann hefst í dag

Forsala á einleikinn Afinn hefst í dag, föstudag klukkan 13:00 í verslun Axel Ó. Einleikurinn hefur fengið mjög góða dóma en það er grínleikarinn góðkunni Siggi Sigurjóns sem fer með eina hlutverkið í leikritinu. Sjálf sýningin verður svo í Kiwanishúsinu 11. febrúar en aðeins eru 200 miðar í boði, þannig að áhugasamir verða að hafa […]

Eyjamenn mæta Snæfellsbæ í kvöld

Í kvöld mun lið Vestmannaeyja mæta liðið Snæfellsbæjar í spurningaþættinum Útsvari. Þetta er annað árið í röð sem Eyjamenn komast í 2. umferð en í fyrra komst liðið áfram sem eitt af stigahæstu tapliðunum. Í ár unnu þeir hins vegar Skagafjörð 69:70 og eru því komnir í 16-liða úrslit á ný. (meira…)

Tími á að prófa eitthvað nýtt

Fyrirliði ÍBV í kvennaknattspyrn­unni síðustu ár, Þórhildur Ólafsdóttir, er gengin í raðir Þórs/KA. Hún skrifaði undir tveggja ára samning hjá Akur­eyrar­liðinu í síðustu viku en Þórhildur var talsvert mikið frá vegna meiðsla síðasta sumar. Hún náði þó að leika 13 leiki og skora í þeim eitt mark en Þórhildur meiddist einmitt í heimaleik gegn Þór/KA. […]

Ábyrgð-alúð-umhyggja

Þetta eru upphafsorð siðareglna sjúkraliða. Í starfi sjúkraliða felst að veita umönnun, aðstoð og endurhæfingu þeim sem vegna sjúkdóma, öldrunar eða fötlunar eru ekki færir um að framkvæma athafnir daglegs lífs. Sjúkraliði ver meginhluta starfstíma síns í návist skjólstæðinga sinna og hefur hagsmuni þeirra ávallt að leiðarljósi. Þann 26. nóvember næstkomandi er alþjóðlegur dagur sjúkraliða. […]

Jóla- og áramótaáætlun Herjólfs tilbúin

Frá og með deginum í dag verður hægt að bóka í ferðir Herjólfs yfir jól og áramót eða á tímabilinu 21. desember til 31. janúar. Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip verður þó ekki hægt að opna fyrir sölu í allar ferðir, þar sem óvissa ríkir með Landeyjahöfn. Þess vegna er aðeins búið að opnað fyrir „öruggar“ […]

Töfrar Eyjalaganna

Ég skelliti mér á Eyjakvöld með Obbósííí og félögum í Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn. Ég var að fara í þriðja skipti og vissi hverju ég gekk að, eða það hélt ég. Þegar ég mætti á svæðið vopnaður myndavél þá stóðu flestir af hljómsveitarmeðlimum í andyrinu og var mér heilsað og ég faðmaður. Þegar ég gekk inn […]

Fólskulegt brot í leik ÍBV og Selfoss

Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi var sagt frá fólskulegu broti Davíðs Þórs Óskarssonar, leikmanns ÍBV í handbolta en svo virðist sem hann hafi gefið leikmanni Selfyssinga á lúðurinn í leik liðanna um síðustu helgi. Brotið fór framhjá dómarapari leiksins, og reyndar mörgum öðrum en brotið lítur ekki vel út á myndbandsupptöku, sem má sjá […]

Stúka fyrir 46 milljónir

ÍBV-íþróttafélag hefur ákveðið að ráðast í byggingu á nýrri stúku við Hásteinsvöll. Stúkan hefur tekið nokkrum breytingum frá þeirri hugmynd sem félagið kynnti í haust. Henni er skipt í fimm bil og á að byggja þrjú í fyrsta áfanga. Kostn­aður er um 46 milljónir en ÍBV-íþróttafélag byggir stúkuna með framlagi fyrirtækja, Vestmannaeyja­bæjar og Knattspyrnusambands Íslands […]

Ekki gott útlit í Landeyjahöfn

Herjólfur hefur siglt til Þorlákshafnar frá því 8. nóvember og hefur verið gefið út að ekki verði fært í Landeyjahöfn út mánuðinn a.m.k. Samkvæmt mælingu á föstudaginn eru horfur ekki góðar því mikið af sandi hefur safnast fyrir framan og á milli garðanna. Fer dýpið upp á 3,1 metra við austurgarðinn en er í kringum […]

Finnur fer vegna fjölskylduaðstæðna

Finnur Ólafsson, knattspyrnumaður og knattspyrnudeild ÍBV hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem fram kemur að viðskilnaður Finns við félagið sé unnin í sátt og samráði. Finnur fór þess á leit við félagið að fá leyfi til að ræða við félög á höfuðborgarsvæðinu vegna fjölskylduaðstæðna en Finnur vill koma á framfæri þakklæti til stuðningsmanna […]

Eyjamenn fá �?ór Akureyri í heimsókn

Á dögunum var dregið í 32-liða úrslitum Poweradebikarkeppninnar í körfubolta. Eyjamenn komust auðveldu leiðina í gegnum 64-liða úrslitin því ÍBV sat hjá. Í 32-liða úrslitum fá Eyjamenn hins vegar Þór frá Akureyri í heimsókn en Þórsarar eru sem stendur í neðsta sæti 1. deildarinnar. Áætlað er að 32-liða úrslit fari fram dagana 9.-12. desember. (meira…)

Opið erindi um sýkingu í íslensku sumargotsíldinni

Á morgun, fimmtudaginn 24. nóvember klukkan 12:00 verður opið erindi um sýkingu í íslensku sumargotssíldinni í sal Sagnaheima. Erindið flytur Guðmundur Jóhann Óskarsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnuninni. Í erindinu verður m.a. fjallað um lífsferil Ichthyophonus sýkilsins og bæði umfang og breytileika í yfirstandandi sýkingarfaraldri í íslensku sumargotssíldinni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.