Finnur á leið í Fylki

Finnur Ólafsson, miðjumaðurinn öflugi er á leið í Fylki samkvæmt Fótbolta.net. Þar segir að einungis eigi eftir að ganga frá smáatriðum áður en leikmaðurinn skrifi undir í Árbænum. Finnur á eitt ár eftir af samningi sínum hjá ÍBV en þessi 27 ára gamli leikmaður hefur verið einn besti leikmaður ÍBV liðsins síðustu tvö ár. (meira…)

Vélstjórar hætta við verkfall

Samkomulag náðist við vélstjóra á Herjólfi varðandi launakröfur þeirra og þar með falla þeir frá vinnustöðvun sem boðuðu var dagana 25., 26. og 27. nómvember 2011. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip, rekstraraðila Herjólfs. Vinnustöðvun átti auk þess að vera um hverja helgi í desember, fram að jólum. (meira…)

Herjólfur til �?orlákshafnar út nóvember

Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar út nóvembermánuð eða fram til miðvikudagsins 30. nóvember. Ástæðan er dýpi í Landeyjahöfn og óhagstæð ölduspá næstu viku, eftir því sem kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip. Herjólfur hefur meira og minna siglt til Þorlákshafnar í mánuðinum, nema í upphafi mánaðarins þegar skipið fór nokkrar ferðir í Landeyjahöfn. (meira…)

Stelpurnar unnu Aftureldingu

Kvennalið ÍBV í fótbolta lagði Aftureldingu um síðustu helgi í æfingaleik liðanna. Lokatölur urðu 2:0 en þær Svava Tara og Bergrún. Þetta var þriðji leikur stelpnanna í haust en áður höfðu þær leikið gegn ÍA og tapað 5:6 og svo unnu þær KR daginn eftir 4:0. (meira…)

Afinn á leiðinni til Eyja

Einleikurinn Afinn, þar sem Siggi Sigurjóns fer á kostum, verður sýndur í Eyjum 11. febrúar 2012. Sýningin verður í Kiwanis en forsala miða hefst næstkomandi föstudag, 25. nóvember klukkan 13:00. Sýningin sló í gegn í Borgarleikhúsinu í upphafi árs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem má lesa hér að neðan. (meira…)

Verkfall gæti stöðvað Herjólf

Ferðir Herjólfs leggjast af í þrjá sólarhringa um helgina verði af fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum vélstjóra. Náist ekki samningar leggja vélstjórar niður störf allar helgar fram að áramótum, segir Guðmundur Ragnarsson, formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna. (meira…)

14 stúturinn tekinn um helgina

Lögreglan stöðvaði í vikunni ökumann vegna gruns um að hafa verið undir áhrifum áfengis en alls hefur lögreglan í Vestmannaeyjum stöðvað 14 vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Það er helmingsfjölgun frá því í fyrra því á sama tíma 2010 hafði lögreglan stöðvað 7 vegna gruns um sama brot. Árið 2009 voru þeir 11 […]

Strákarnir skoruðu mikið um helgina

Meistaraflokkur kom saman í Reykjavík um helgina og lék tvo leiki í Íslandsmótinu innanhús. Strákarnir eru þar í riðli með Sindra, Afríku og Leikni R. leikin er tvöföld umferð og kemst efsta liðið í úrslitakeppnina. Strákarnir spiluðu tvo leiki við Sindra og unnu þá báða, þann fyrri 13-6 og þann síðari 20-2 og tylltu sér […]

Bjarni og Guðrún Mary þakka fyrir

Kæru Eyjamenn og aðrir gestir Hörpu. Við hjónin viljum þakka ykkur fyrir frábæra mætingu síðastliðið miðvikudagskvöld, á afmælistónleika Oddgeirs Kristjánssonar, Bjartar vonir vakna, í Hörpu. Stemmningin þar var hreint frábær. Það er bæði mjög gefandi og sérlega gaman að fá þau viðbrögð frá ykkur eftir tónleikana sem við höfum upplifað. (meira…)

Nýti tækifærin ef þau koma

Anna María Halldórsdóttir,tók þátt í Evrópumóti WBFF í líkamsrækt á dögunum. Anna María hefur átt við veikindi að stríða síðustu ár en hún notar líkamsræktina til að halda sér gangandi. Sigurinn í Female Díva Bikini Model flokki, þriðja sæti í Female Díva Fitness model flokki keppninnar og Pro Card kom Önnu Maríu mjög á óvart […]

Eyjamenn sterkari í Suðurlandsslagnum

Eyjamenn höfðu betur í uppgjöri Suðurlandsliðanna tveggja ÍBV og Selfoss í 1. deild karla en liðið mættust í Eyjum í dag. Liðin höfðu mæst á Selfossi í haust en þá unnu Eyjamenn með þrettán mörkum. Leikurinn í dag var hins vegar ekki nærri eins auðveldur fyrir ÍBV, sem hafði sigur að lokum eftir jafnan og […]

Miklir yfirburðir ÍBV í uppgjöri landsbyggðarliðanna

ÍBV vann KA/Þór örugglega í uppgjöri landsbyggðarliðanna tveggja í N1 deild kvenna en liðin mættust í Eyjum í dag. Lokatölur urðu 39:23 en sigur ÍBV var öruggur, svo ekki sé dýpra tekið í árinni. Í hálfleik var staðan 22:9 en mestur varð munurinn nítján mörk, 38:19 en gestirnir náðu aðeins að laga stöðuna fyrir leikslok. […]

�?órhildur í �?ór/KA

Fyrirliði ÍBV í kvennaknattspyrnunni síðustu ár, Þórhildur Ólafsdóttir, er gengin í raðir Þórs/KA. Hún skrifaði undir hjá Akureyrarliðinu í dag en Þórhildur var talsvert mikið frá vegna meiðsla síðasta sumar en náði þó að leika 13 leiki og skora í þeim eitt mark. Þórhildur meiddist einmitt í leik gegn Þór/KA á Hásteinsvellinum. Þórhildur hefur verið […]

Herjólfur áfram til �?orlákshafnar

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fram til miðvikudagsins 23. nóvember. Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip er dýpi ekki nægjanlegt í Landeyjahöfn og þá er ölduspá óhagstæð næstu viku. Aðastæður geta þó breyst hratt og við þeim verður brugðist með því að senda tilkynningar á heimasíðu Herjólfs, www.herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 á Textavarpinu. (meira…)

Stella Hauks á Varmó

Stella Hauksdóttir, stórtrúbador verður með gítarinn með sér á Café Varmó í kvöld. Fyrir réttu ári var hún með stórtónleika í Alþýðuhúsinu og sló þá rækilega í gegn. Þá hafði Stella með sér nokkra aðstoðarmenn, en kvöld verður hún ein á sviði og þá munu gestir kvöldsins á Varmó verða hennar aðstoðarmenn. (meira…)

Kærar þakkir, Bjarni og Guðrún

Glæsilegir tónleikar í Hörpu í minningu 100 ára ártíðar Oddgeirs Kristjánssonar eru nýafstaðnir. Tónleikar sem settu brjóstkassann vel framávið á viðstöddum Vestmannaeyingum, sem stoltir og ánægðir í hjarta sínu gengu úr Hörpu þetta kvöld. Og öll erum við stolt af þessum frábæru lögum sem við syngjum við öll tækifæri. (meira…)

Fiskur á fati

Moren! Nú eru nokkrir að landa. Þórunn er með 110 tonn og Vídalín með eitthvað svipað. Dala-Rafn og Smáey með sitthvor 30 tonnin. Álsey er rétt ókomin með 800 tonn af síld. Lítið eftir af síldinni og klárast líklega í næstu viku. Nú hafa vélstjórar á Herjólfi boðað verkföll um helgar allan desember. Ekki er […]

Rúmar 274 milljónir til Eyja

Heildarúthlutun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna lækkunar tekna sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2012 nemur 2.847 milljónum króna. Af þeirri upphæð koma 3.87% í hlut Vestmannaeyjabæjar eða rúmar 103 milljónir króna. Um 110 milljónir koma í hlut Vestmannaeyja vegna útgjaldajöfnunar. Jöfnunarsjóðurinn greiðir fyrirfram 60% af áætluðu framlagi sveitarfélaganna. (meira…)

Spennandi leikir á morgun

Boðið verður upp á handboltaveislu í Íþróttamiðstöðinni á morgun en bæði kvenna- og karlalið eiga heimaleik fyrir höndum. Stelpurnar taka á móti KA/Þór í N1 deild kvenna en með sigri, getur ÍBV nálgast HK, sem er fjórum stigum á undan ÍBV og situr í þriðja sæti. ÍBV er hins vegar í fimmta sæti en HK […]

Undirbúningstímabilið í fótboltanum hafið

Knattspyrnulið ÍBV er að hefja undirbúning fyrir sumarið 2012 en æfingar hófust í vikunni. Magnús Gylfason, nýr þjálfari liðsins, stýrir leikmannahópnum í Reykjavík en Dragan Kazic, aðstoðarþjálfari liðsins síðustu ár, stýrir hópnum í Vestmannaeyjum. Hópurinn nýtir svo helgarnar til að æfa saman, bæði í Reykjavík og í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.