ÍBV vann KA/Þór örugglega í uppgjöri landsbyggðarliðanna tveggja í N1 deild kvenna en liðin mættust í Eyjum í dag. Lokatölur urðu 39:23 en sigur ÍBV var öruggur, svo ekki sé dýpra tekið í árinni. Í hálfleik var staðan 22:9 en mestur varð munurinn nítján mörk, 38:19 en gestirnir náðu aðeins að laga stöðuna fyrir leikslok. Florentina Stanciu var sem fyrr í miklu stuði í markinu hjá ÍBV og Ester Óskarsdóttir fór illa með sína fyrrum félaga frá Akureyri.