Ýmsu ábótavant í mengunarvörnum

Á fundi framkvæmdaráðs á mánudaginn lá fyrir bréf frá Umhverfisstofnun þar sem fram kom að dagsektir, sem lagðar voru á Sorporkustöð Vestmannaeyja frá 1 júlí sl., hafa verið felldar niður frá 6. júlí í framhaldi af niðurstöðum mælinga vegna ryks í útblæstri. Ráðið fagnaði niðurstöðunni en Vestmannaeyjabær hefur frá upphafi mótmælt dagsektunum. Ekki er þó […]
Frábærir Oddgeirstónleikar í gær

Í gærkvöldi voru haldnir stórtónleikar með lögum Oddgeirs Kristjánssonar í Eldborgarsalnum í tónlistarhúsinu Hörpu. Tónleikarnir voru haldnir í tilefni þess að 100 ár voru frá fæðingu tónskáldsins. Fullt var á tónleikunum, 1500 manns og komust færri að en vildu. Tónleikarnir voru frábærir enda valinn maður í hverju rúmi þegar kom að flutningi tónlistar Oddgeirs. (meira…)
Kári sterkur gegn Kiel

Kári Kristján Kristjánsson var sterkur í leik Wetzlar gegn meistaraefnunum í Kiel sem Alfreð Gíslason stýrir. Kiel hafði betur 24:28, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik 11:13 en Kári stóð heldur betur fyrir sínu, var markahæstur í liði Wetzlar með fimm mörk. Kári var einnig markahæstur gegn öðru toppliði á dögunum, Rhein-Neckar […]
�?jóðvegurinn!

Fimmtudaginn 10. nóvember 2011 átti ég pantað með Herjólfi til Vestmannaeyja frá Landeyjahöfn kl 13:00. Ég legg af stað kl 10:00 frá Reykjavík og er komin í Landeyjarhöfn 11:45. Þar sem ég átti ekki pantað fyrir bílinn minn ákvað ég að vera snemma í því til að vera fyrst á biðlista (eins og afgreiðslustúlkan sagði […]
�?að amaði ekkert að konunni

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti síðdegis á mánudaginn til Vestmannaeyja konu sem var komin að því að fæða en vegna svartaþoku var ekki hægt að lenda flugvél í Eyjum. Allt gekk að óskum og eru foreldrarnir komnir heim til Eyja með myndardreng sem fæddist á Landspítalanum sex mínútur yfir miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins. (meira…)
Haukar höfðu betur

Haukar eru komnir í 8-liða úrslit Eimskipsbikarnum eftir nauman sigur á 1. deildarliði ÍBV í Eyjum í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og undir lokin gat leikurin í raun farið hvernig sem var. En það voru Haukar sem höfðu eilitla heppni með sér auk þess sem Eyjamenn voru klaufar á lokakaflanum. Lokatölur […]
Á vöktum í síld

Við erum á fullu í síld, fyrsta aflanum var landað á mánudag og verið að vinna síld í rúma viku. Þetta er fínasta síld, hún er öll flökuð og fryst og unnið á tólf tíma vöktum í húsinu,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar þegar rætt var við hann. Kap VE og Sighvatur VE voru […]
Vélstjórar á Herjólfi boða verkfall

Samningar við vélstjóra og skipstjóra og stýrimenn á Herjólfi hafa verið lausir lengi. Samningaviðræður hafa ekki borið árangur og hafa vélstjórar boðað verkfall. Fyrsta verkfallið verður helgina 25., 26. og 27. nóvember náist samningar ekki. Og svo allar helgar í desember. Þetta kemur fram í vikublaðinu Fréttum sem nú er að koma út. (meira…)
Sjávarútvegur ein af undirstöðum atvinnulífsins

Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrum borgarstjóri í Reykjavík býður sig fram í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi sem hefst í Laugardalshöll á morgun, fimmtudag. Hanna Birna heimsótti Eyjarnar á föstudag í síðustu viku þar sem hún kynnti sig og sín málefni í komandi formannskjöri. Eyjafréttir.is sendu nokkrar spurningar á Hönnu Birnu en svörin má sjá hér að […]
Hvað gerir Erlingur?

Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslit Eimskipsbikar karla og kvenna en þrjú lið frá Eyjum voru í pottinum. A-lið ÍBV mætir Haukum í kvöld í 16-liða úrslitum en sigurvegari viðureignarinnar mætir Val í 8-liða úrslitum. B-lið karlanna mætir HK, en þjálfari Kópavogsliðsins er Erlingur Richardsson, leikmaður B-liðsins. Það er því spurning hvort hann spili […]
Stefnir allt í bikarleik í kvöld

Eins og staðan er núna, stefnir allt í að bikarleikur ÍBV og Hauka fari fram í kvöld en leikurinn hefst klukkan 18:30 og verður honum lýst beint hér á Eyjafréttum. Mikil tengsl eru á milli félaganna tveggja en þjálfarar beggja liða, hafa spilað með báðum liðum. Þannig var Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV, fyrirliði Hauka og […]
100 ár frá fæðingu Oddgeirs Kristjánssonar

Í dag, miðvikudaginn 16. nóvember eru 100 ár liðin frá fæðingu Oddgeirs Kristjánssonar, tónskálds og tónlistarkennara í Vestmannaeyjum. Oddgeir samdi á sínum tíma nokkur af dáðustu dægurlögum þjóðarinnar en í kvöld verða lögin flutt á stórtónleikum í Hörpunni í Reykjavík. Með Fréttum fylgir svo ítarlega umfjöllun um Oddgeir, en lesendur vikublaðsins völdu hann m.a. Eyjamann […]
Bikarleik ÍBV og Hauka frestað til morguns

Vegna skýja sem liggja mjög lágt í Eyjum í dag, hefur leik ÍBV og Hauka í Eimskipsbikarnum verið frestað til morguns, miðvikudags og verður leikurinn kl. 18.30. (meira…)
Umhverfisstofnun fellur frá dagsektum

Umhverfisstofnun hefur fallið frá dagsektum, sem lagðar höfðu verið á Sorporkustöð Vestmannaeyja frá 6. júlí sl. Þetta kom fram á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í gærdag. Er þetta gert í framhaldi af niðurstöðum mælinga vegna ryks frá útblæstri stöðvarinnar, sem reyndust eftir allt ekki eins slæmar og stofnunin sagði. (meira…)
�?tlitið svart

Eins og áður hefur komið fram, munu ÍBV og Haukar mætast í kvöld í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leiknum verður lýst í textalýsingu hér á Eyjafréttum en leikurinn hefst klukkan 19:00. Reyndar er nú svarta þoka í Vestmannaeyjum eins og er en Haukar og dómarapar leiksins ætluðu að fljúga til Eyja. (meira…)
�?etta verður leikur sem á eftir að fara í sögubækurnar

Eyjamaðurinn sterki, Kári Kristján Kristjánsson hefur leikið bæði með ÍBV og Haukum en línumaðurinn knái leikur í dag í þýsku úrvalsdeildinni með Wetzlar. Kári var fenginn til að spá í spilin fyrir leik liðanna í Eimskipsbikarnum í kvöld en hann er á því að þetta verði leikur sem muni fara í sögubækurnar. (meira…)
Erum að mæta besta liði Íslands

ÍBV tekur í kvöld á móti Haukum í 16 liða úrslitum Eimskipsbikar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:00 í Íþróttamiðstöðinni í Eyjum en þarna mætast toppliðin í deildunum tveimur. ÍBV er í efsta sæti 1. deildar og hefur tapað einum leik. Sömu sögu er að segja af Haukum, þeir eru í 1. – 2. sæti og […]
Sóttu konu í barnsnauð
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti seinnipart dags konu í barnsnauð til Vestmannaeyja en vegna svartaþoku var ekki hægt að lenda flugvél í Eyjum. Við komuna til Reykjavíkur var konan flutt á Landspítala með sjúkrabifreið. (meira…)
�?g er mjög spenntur

Bjartmar Guðlaugsson ætlar að halda sögustund og tónleika í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum laugardagskvöldið 19. nóvember. Aðspurður segir Bjartmar alltaf vera mjög spenntur að spila í Eyjum, það sé eins og að spila á heimavelli. Efnisskráin verður sambland af hans bestu lögum í bland við ný og verða ýmsar sögur rifjaðar upp. (meira…)
Fylkir gerir tilboð í Finn �?lafsson

Fylkir hefur lagt fram tilboð í Finn Ólafsson miðjumann ÍBV en þetta staðfesti Óskar Örn Ólafsson formaður knattspyrnudeildar ÍBV í samtali við Fótbolta.net í dag. Eyjamenn eru að skoða tilboðið en þeir eiga eftir að ákveða hvort það verði samþykkt eða ekki. (meira…)