Fimmtudaginn 10. nóvember 2011 átti ég pantað með Herjólfi til Vestmannaeyja frá Landeyjahöfn kl 13:00. Ég legg af stað kl 10:00 frá Reykjavík og er komin í Landeyjarhöfn 11:45. Þar sem ég átti ekki pantað fyrir bílinn minn ákvað ég að vera snemma í því til að vera fyrst á biðlista (eins og afgreiðslustúlkan sagði hjá Eimskip fyrstur kemur fyrstur fær). Þegar í Landeyjahöfn var komið tilkynnti stúlkan í afgreiðslunni mér það að það yrði smá seinkun, Herjólfur færi frá Vestmannaeyjum 12:30 og þá ekki fyrr en kl 14:00 frá Landeyjahöfn. Ég hugsaði með mér allt í lagi, ekkert mál ég bíð bara róleg.