Bjartmar Guðlaugsson ætlar að halda sögustund og tónleika í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum laugardagskvöldið 19. nóvember. Aðspurður segir Bjartmar alltaf vera mjög spenntur að spila í Eyjum, það sé eins og að spila á heimavelli. Efnisskráin verður sambland af hans bestu lögum í bland við ný og verða ýmsar sögur rifjaðar upp.