Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, og Eivind Grøv, norskur jarðgangasérfræðingur, við borkjarnana úr rannsóknarborunum vegna fyrirhugaðra Eyjaganga. Mynd/aðsend.

Norski jarðgangasérfræðingurinn Eivind Grøv telur niðurstöður kjarnaborana á Heimaey og í Landeyjasandi lofa góðu fyrir áframhaldandi rannsóknir á Eyjagöngum. Enn er unnið að úrvinnslu hafsbotnsrannsókna sem eiga að varpa frekara ljósi á jarðlög á gangaleiðinni.

Borkjarnar á því dýpi sem fyrirhugað er að Eyjagöng liggi á eru mun betri en norski jarðgangasérfræðingurinn Eivind Grøv hafði búist við. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eyjagöngum ehf. Grøv skoðaði kjarnana úr rannsóknarholum á Heimaey og í Landeyjasandi í heimsókn sinni til Íslands á dögunum.

Rannsóknarholan á Heimaey náði 234 metra dýpi en holan í Landeyjasandi 291,5 metrum. Samkvæmt tilkynningunni reyndust kjarnarnir í báðum holum mjög góðir frá 160 metra dýpi og neðar. Fyrirhugað er að göngin liggi að stærstum hluta á um 220 metra dýpi.

„Kjarnarnir eru mun betri en ég hafði búist við og það lofar góðu. Þegar niðurstöður hafsbotnsrannsóknanna liggja fyrir fáum við heildstæðari mynd af berginu á allri gangaleiðinni,“ segir Grøv í tilkynningunni.

Unnið að úrvinnslu hafsbotnsrannsókna

Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, framkvæmdu hafsbotnsrannsóknir á fyrirhugaðri gangaleið í sumar. Notaður var svokallaður sparker-endurkastmælir til að kortleggja efstu jarðlögin undir hafsbotni. Eyjagöng vinna nú með ÍSOR að úrvinnslu gagnanna.

Þegar niðurstöðurnar liggja fyrir er fyrirhugað að vinna tvö sjálfstæð fýsileikamöt á verkefninu, annað af innlendum sérfræðingum og hitt af norskum. Þau munu byggja á niðurstöðum hafsbotnsrannsóknanna og greiningu borkjarnanna.

Grøv er einn helsti ráðgjafi Eyjaganga við undirbúning verkefnisins. Hann var yfirvísindamaður hjá norsku rannsóknastofnuninni SINTEF og prófessor við norska tækni- og vísindaháskólann NTNU. Hann er jafnframt fyrrverandi varaforseti Alþjóðasamtaka um jarðgangagerð, ITA, og hefur veitt ráðgjöf við verkefni í yfir 20 löndum.

Fýsileikamöt verði grunnur að næstu skrefum

Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf., segir jákvætt mat Grøvs skipta félagið miklu máli.

„Það skiptir okkur miklu máli að einn reyndasti jarðgangasérfræðingur Noregs hafi skoðað kjarnana sjálfur og að mat hans sé svo jákvætt. Tvö sjálfstæð fýsileikamöt, unnin af innlendum og norskum sérfræðingum, munu leggja traustan grunn að ákvörðunum um næstu skref,“ segir Haraldur.

Nýjustu fréttir

Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.