Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum

Dýpi í Landeyjahöfn var mælt fyrr í kvöld og samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. um siglingar vantar enn töluvert upp á að hægt sé að sigla þangað nema við kjöraðstæður. Aðstæður til siglinga gætu þó skapast í fyrramálið. Ákveðið hefur verið að gefa út tilkynningu klukkan 06:00 um hvort siglt verði til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar […]
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára

Alanys Alvarez Medina hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við handknattleiksdeild ÍBV og gildir samningurinn til tveggja ára. ÍBV greindi frá samfélagsmiðlum sínum. Í tilkynningu handknattleiksdeildar segir: ,,Alanys flutti til Íslands frá Portúgal fyrir fimm árum, þá 13 ára gömul. Hún hafði ekki æft handbolta áður en hún hóf æfingar hjá ÍBV. Alanys er afar […]
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn

Eyjafréttir sýna beint frá fundinum Mótvindi á Hótel Selfossi í dag, fimmtudaginn 15. október. Fundurinn hefst kl. 17 og stendur til kl. 19. Staða og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi verður í brennidepli. Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness standa að fundinum. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni hér í fréttinni. Kynna greiningu á skatta- […]
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt fyrir sitt leyti uppfærða deiliskipulagstillögu vegna uppbyggingar við Strandveg 44 og lagt til að bæjarstjórn staðfesti hana. Málið var afgreitt á fundi ráðsins 12. október. Eyjafréttir fjölluðu í ágúst um breytingar sem ráðið hafði óskað eftir í kjölfar athugasemda við áformin. Þær fólu meðal annars í sér færri íbúðir, […]
Skjöldur í þriðja sinn

Karlaráðstefnan Skjöldur verður haldin í þriðja sinn hér í Eyjum laugardaginn 17. október. Dagskráin hefst í Sagnheimum klukkan 14 þar sem Bergur Ebbi, Sveppi og Jónas Sigurðsson stíga á svið og munu þeir koma hver með sína áherslu og erindi. Bergur Ebbi mun fjalla um mennskuna á tímum gervigreindar og setja hana í samhengi við […]
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?

Það er full ástæða til að hafa áhyggjur af þeirri stefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Samkvæmt samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga er gert ráð fyrir að skattabreytingar auki skattheimtu á fólk og fyrirtæki um rúma 34 milljarða króna. Á sama tíma er dregið úr framlögum til samgöngumála, byggðamála og nýsköpunar. Það vekur […]
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var

Norski jarðgangasérfræðingurinn Eivind Grøv telur niðurstöður kjarnaborana á Heimaey og í Landeyjasandi lofa góðu fyrir áframhaldandi rannsóknir á Eyjagöngum. Enn er unnið að úrvinnslu hafsbotnsrannsókna sem eiga að varpa frekara ljósi á jarðlög á gangaleiðinni. Borkjarnar á því dýpi sem fyrirhugað er að Eyjagöng liggi á eru mun betri en norski jarðgangasérfræðingurinn Eivind Grøv hafði […]
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands

Hafrannsóknastofnun leggur til vernd Suður-landgrunnshlíða, þar sem stór hluti lifandi kóralrifa við Ísland er að finna. Verndin myndi útiloka veiðar sem snerta botn innan svæðisins. Tillagan tengist víðtækara markmiði um að vernda að minnsta kosti 30 prósent lands og hafs fyrir árið 2030. Undir yfirborði sjávar sunnan Íslands liggja kóralrif sem hafa byggst upp á […]