Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Bensínstöðin við Strandveg 44 og fjölbýlishúsið við Tangagötu 10. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt breytta skipulagstillögu vegna uppbyggingar á bensínstöðvarlóðinni og vísað henni til bæjarstjórnar til staðfestingar. Skjáskot úr myndbandi Halldórs B. Halldórssonar.

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt fyrir sitt leyti uppfærða deiliskipulagstillögu vegna uppbyggingar við Strandveg 44 og lagt til að bæjarstjórn staðfesti hana.

Málið var afgreitt á fundi ráðsins 12. október. Eyjafréttir fjölluðu í ágúst um breytingar sem ráðið hafði óskað eftir í kjölfar athugasemda við áformin. Þær fólu meðal annars í sér færri íbúðir, minna byggingarmagn og aukna fjarlægð frá fjölbýlishúsinu við Tangagötu 10.

Lóðarhafi hefur nú lagt fram uppfærð gögn sem ráðið telur samræmast þeim breytingum sem kallað var eftir.

Í bókun ráðsins segir að brugðist hafi verið við athugasemdum eins og kostur sé. Tillagan, með þeim breytingum sem gerðar hafi verið, feli í sér málefnalegt jafnvægi milli sjónarmiða og hagsmuna sem fram hafi komið í skipulagsferlinu.

Áformin gera áfram ráð fyrir fjögurra hæða húsi með bílakjallara, verslun og þjónustu á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum.

 


Þessu tengt:

Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja leggur til að heimiluðum íbúðum í fyrirhugaðri nýbyggingu við Strandveg 44 verði fækkað úr 12–14 í 8–12. Jafnframt verði dregið úr byggingarmagni og byggingarreiturinn færður fjær fjölbýlishúsinu við Tangagötu 10. Tillaga að breyttu deiliskipulagi vegna uppbyggingar við Strandveg 44 var auglýst í annað sinn frá 15. desember 2025 til 4. febrúar […]

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.