Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Tilkynnt verður klukkan 06:00 í fyrramálið, 16. október, til hvorrar hafnarinnar verður siglt fyrir hádegi :: Nýjustu dýptarmælingar sýna að siglingar til Landeyjahafnar eru enn háðar kjöraðstæðum
Lóðsinn við mælingar í Landeyjahöfn. Dýpi í Landeyjahöfn var mælt fyrr í kvöld. Niðurstöðurnar sýna að enn vantar töluvert upp á að hægt sé að sigla þangað nema við kjöraðstæður. Eyjafréttir/ÓPF

Dýpi í Landeyjahöfn var mælt fyrr í kvöld og samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. um siglingar vantar enn töluvert upp á að hægt sé að sigla þangað nema við kjöraðstæður.

Aðstæður til siglinga gætu þó skapast í fyrramálið. Ákveðið hefur verið að gefa út tilkynningu klukkan 06:00 um hvort siglt verði til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar fyrir hádegi á morgun.

Í tilkynningunni er áréttað að ávallt verði siglt til Landeyjahafnar þegar aðstæður leyfa.

Myndin sýnir nýjustu dýptarmælingu í Landeyjahöfn.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.