ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Á Vestmannaeyjaflugvelli. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands skorar á stjórnvöld að draga til baka boðaðar breytingar á Loftbrú og hefja raunverulegt samráð við íbúa, sveitarfélög og hagsmunasamtök á landsbyggðinni um framtíð kerfisins. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ.

Í ályktuninni segir að Loftbrú hafi verið komið á til að jafna aðstöðumun eftir búsetu og bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu. Innanlandsflug sé fyrir stóran hluta landsins mikilvægur hluti almenningssamgangna og forsenda aðgengis að heilbrigðisþjónustu, námi, atvinnu, fjölskyldu og félagslegri þátttöku.

„Þessa þjónustu ber stjórnvöldum að tryggja,“ segir í ályktuninni.

Aukin áhætta færist yfir á farþega

Miðstjórn ASÍ telur að breyting úr hlutfallslegri niðurgreiðslu í fasta krónutölu færi aukna áhættu vegna hárra og hækkandi flugfargjalda yfir á farþegana. Þeir sem þurfi að ferðast með skömmum fyrirvara, þegar fargjöld séu gjarnan hæst, verði sérstaklega berskjaldaðir.

Boðuð hækkun á föstum styrk leysi ekki þann grundvallarvanda, að mati miðstjórnar. Þegar stuðningurinn sé ákveðin krónutala minnki hlutfallslegur stuðningur eftir því sem flugið verði dýrara. Þeir sem standi frammi fyrir hæstu fargjöldunum beri þannig mestan viðbótarkostnað.

Miðstjórnin tekur jafnframt undir gagnrýni sveitarfélaga og landshlutasamtaka og bendir á að Loftbrú sé viðbragð við pólitískum ákvörðunum um að færa þjónustu úr heimabyggð.

Leggja til samninga um farmiða á föstu verði

Í ályktuninni er gagnrýnt að stjórnvöld leiti ekki eftir samningum við flugrekendur um kaup á tilteknum fjölda farmiða á föstu verði, til dæmis á ári hverju. Með því megi tryggja fyrirsjáanleika í ríkisfjármálum og sinna um leið skyldu ríkisvaldsins til að halda uppi samgöngum og fara vel með almannafé.

„Fyrirsjáanleika í ríkisfjármálum verður ekki náð með því að gera ferðakostnað og aðgengi að nauðsynlegri þjónustu ófyrirsjáanlegra fyrir launafólk og fjölskyldur þess,“ segir í ályktuninni.

Miðstjórn ASÍ hvetur stjórnvöld að lokum til að falla frá breytingunum og hefja þegar í stað vinnu, í víðtæku samráði, við að byggja upp kerfi sem tryggi landsmönnum fjárhagslega viðráðanlegt aðgengi að samgöngum og miðlægri þjónustu.

 


Þessu tengt:

Þak sett á afslátt Loftbrúar

farþegar_ernir_2023_opf

Afsláttur vegna Loftbrúar verður föst krónutala frá næstu áramótum í stað 40 prósenta afsláttar af flugfargjaldi. Hann verður 7.000 krónur fyrir hvern fluglegg, eða 14.000 krónur fyrir ferð fram og til baka, samkvæmt tilkynningu innviðaráðuneytisins. Breytingin tekur gildi 1. janúar 2027. Réttur til að nýta afsláttinn helst óbreyttur og einstaklingar geta áfram notað afsláttarkóða fyrir […]

Nýjustu fréttir

ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.