Þak sett á afslátt Loftbrúar
farþegar_ernir_2023_opf
Afsláttur Loftbrúar verður 7.000 krónur á fluglegg frá næstu áramótum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Afsláttur vegna Loftbrúar verður föst krónutala frá næstu áramótum í stað 40 prósenta afsláttar af flugfargjaldi. Hann verður 7.000 krónur fyrir hvern fluglegg, eða 14.000 krónur fyrir ferð fram og til baka, samkvæmt tilkynningu innviðaráðuneytisins.

Breytingin tekur gildi 1. janúar 2027. Réttur til að nýta afsláttinn helst óbreyttur og einstaklingar geta áfram notað afsláttarkóða fyrir samtals sex flugleggi.

Nýja fyrirkomulagið þýðir að afsláttur verður meiri en áður af fargjöldum undir 17.500 krónum á fluglegg, en minni af dýrari fargjöldum. Við 17.500 króna fargjald verður afslátturinn sá sami og samkvæmt núverandi kerfi.

Útgjöld fóru 140 milljónir fram úr áætlun

Ráðuneytið segir breytinguna gerða til að nýta fjárveitingar ríkisins sem best eftir að kostnaður við Loftbrú fór fram úr áætlunum undanfarin ár.

Um 600 milljónir króna hafa verið áætlaðar til verkefnisins árlega og stendur sú fjárheimild óbreytt. Kostnaður var hins vegar meiri á árunum 2023 til 2025 og var því mætt með aukafjárveitingum. Árið 2025 fóru heildarútgjöld um 140 milljónum króna fram úr áætlun.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir markmiðið að tryggja áfram ávinning Loftbrúar fyrir íbúa landsbyggðarinnar og gera kostnað fyrirsjáanlegri.

„Við viljum á sama tíma búa svo um hnúta að kostnaður verði fyrirsjáanlegri og innan ramma fjárlaga,“ segir ráðherra í tilkynningunni.

Hann telur fastan afslátt einnig geta dregið úr hvata til hækkunar flugfargjalda, þar sem niðurgreiðsla ríkisins hækki ekki lengur samhliða verði miðans.

Um 62 þúsund eiga rétt á afslætti

Loftbrú var komið á fót árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu. Um 62 þúsund íbúar eiga kost á að nýta úrræðið.

Samkvæmt ráðuneytinu hafa um eða yfir 80 þúsund ferðir verið keyptar með afsláttarkóðum Loftbrúar á ári undanfarin ár. Meðalniðurgreiðsla hefur verið frá sex þúsund krónum upp í rúmlega níu þúsund krónur.

Nýjustu fréttir

Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Spennandi vetur hjá fimleikafélaginu Rán
Eyjamenn sækja Val heim í mikilvægum leik
Eyjakonur geta tryggt þriðja sætið á Hásteinsvelli
Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.