Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Ákveðið hefur verið að flýta seinni ferð Herjólfs í dag vegna versnandi veðurspár þegar líður á kvöldið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu.

Brottför frá Vestmannaeyjum verður kl. 15:00 í stað kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 18:30 í stað kl. 19:45.

Í tilkynningunni segir að ákvörðunin sé tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga, í von um að siglingin verði þægilegri fyrir alla. Skipafélagið óskar eftir skilningi farþega á breytingunni.

Áfram siglt til Þorlákshafnar

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar þar til annað verður tilkynnt. Samkvæmt almennri áætlun eru brottfarir frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45. Seinni brottför hefur þannig verið færð frá kl. 17:00 í Vestmannaeyjum og frá kl. 20:45 í Þorlákshöfn. Í dag gilda þó fyrri brottfarartímarnir, kl. 15:00 og 18:30.

Þá segir í tilkynningunni að dýpið í Landeyjahöfn hafi minnkað töluvert undanfarna daga og aðeins sé hægt að sigla til og frá höfninni við kjöraðstæður.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af nýjustu dýptarmælingu við Landeyjahöfn.

Nýjasta dýptarmæling við Landeyjahöfn. Tölurnar á myndinni sýna mælt dýpi á einstökum stöðum í og við hafnarmynnið.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.