Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna

Rafrettur og nikótínpúðar hafa breytt landslaginu á undanförnum árum og stöndum við frammi fyrir nýrri og annarskonar lýðheilsuáskorun þegar kemur að þeim efnum. Fyrirliggjandi upplýsingar sýna að notkun hefur aukist meðal þeirra sem yngstir eru og þessi þróun ógnar bæði líkamlegum og andlegum þroska ungs fólks á mikilvægu mótunarskeiði. Á sama tíma blasir við okkur […]
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs

Ákveðið hefur verið að flýta seinni ferð Herjólfs í dag vegna versnandi veðurspár þegar líður á kvöldið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu. Brottför frá Vestmannaeyjum verður kl. 15:00 í stað kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 18:30 í stað kl. 19:45. Í tilkynningunni segir að ákvörðunin sé tekin með hagsmuni farþega og áhafnar […]
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur úthlutað samtals 15 milljónum króna til níu útgefenda einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Hver útgefandi fær um 1,67 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins. Þar segir að markmið styrkjanna sé að efla staðbundna fjölmiðla á landsbyggðinni og styðja við aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál, lýðræðisþátttöku […]
Óveðrið í myndum

Óveður gekk yfir Vestmannaeyjar í morgun með miklum vindi og úrkomu. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var á ferðinni og fangaði stemninguna í bænum í veðrinu. Vindur jókst hratt í nótt og undir morgun og mældust vindhviður á Stórhöfða allt að 51 metri á sekúndu. Appelsínugul viðvörun var í gildi fyrir Suðurland vegna veðursins. Björgunarfélag […]
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum

Eyjahjónin Eyþór Viðarsson og Hem Brewster standa að 48 þátta hlaðvarpsseríu sem tekin var upp í heimastúdíói þeirra í Vestmannaeyjum. Fyrsti þátturinn kom út 1. október og síðan verður nýr þáttur birtur daglega fram í miðjan nóvember. Nýtt íslenskt uppvakningaævintýri lítur dagsins ljós í haust þegar hlaðvarpsserían Varúð: Dead Ísland hefst. Sagan gerist á Íslandi […]
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða

Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út skömmu fyrir klukkan 8 í morgun vegna þakplötu sem var byrjuð að losna af einbýlishúsi í efribyggð. Vindhviður á Stórhöfða náðu 51 metra á sekúndu samkvæmt mælingu klukkan 8. Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, staðfestir í svari við fyrirspurn Eyjafrétta að björgunarfélagið hafi verið ræst út vegna þakplötunnar. […]
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs

Grunnskóli Vestmannaeyja hefur ákveðið að formlegt skólahald hefjist klukkan 9:00 í morgunsárið vegna mikils hvassviðris. Skólarnir verða opnir, en samkvæmt tilkynningu skólans hefst formlegt skólahald klukkan 9 eins og staðan er núna. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fylgjast með frekari uppfærslum frá skólanum. (meira…)
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða

Austanvindur mældist 37 metrar á sekúndu á Stórhöfða klukkan 6 í morgun og mesta vindhviða 45 metrar á sekúndu. Vindur hefur aukist hratt á síðustu klukkustundum. Klukkan 4 í nótt mældist vindur 25 m/s og hviður 31 m/s. Klukkustund síðar var vindurinn kominn í 29 m/s og hviður í 37 m/s, samkvæmt veðurathugunum Veðurstofu Íslands. […]
Ræða stöðu ferðaþjónustunnar við þingmenn Suðurkjördæmis

Staða og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi verður til umræðu á opnum fundi á Hótel Selfossi fimmtudaginn 15. október. Fundurinn stendur frá kl. 17 til 19 og verður jafnframt streymt á vef Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness standa að fundinum, sem er hluti af fundarröðinni Mótvindur. Þar verður fjallað um rekstrarskilyrði greinarinnar […]