Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Eyjasýn ehf. sem gefur út Eyjafréttir og heldur úti Eyjafréttir.is var meðal þeirra sem fengu styrk.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur úthlutað samtals 15 milljónum króna til níu útgefenda einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Hver útgefandi fær um 1,67 milljónir króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins. Þar segir að markmið styrkjanna sé að efla staðbundna fjölmiðla á landsbyggðinni og styðja við aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál, lýðræðisþátttöku og menningarstarf.

Alls bárust tíu umsóknir en níu þeirra uppfylltu skilyrði reglna nr. 833/2026 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla.

Af heildarfjárhæðinni koma 12,5 milljónir króna frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og 2,5 milljónir frá innviðaráðuneytinu vegna aðgerðarinnar Efling fjölmiðlunar í héraði í byggðaáætlun. Fjárhæðinni er skipt jafnt milli þeirra umsækjenda sem uppfylltu skilyrðin.

Eftirfarandi útgefendur hljóta styrk:

  • Eigin herra ehf., sem gefur út Akureyri.net.
  • Útgáfufélag Austurlands ehf., sem gefur út Austurgluggann og Austurfrett.is.
  • Prentsmiðjan Steinprent ehf., sem gefur út Bæjarblaðið Jökul.
  • Prentmet Oddi ehf., sem gefur út Dagskrána – Fréttablað Suðurlands og DFS.is.
  • Eyjasýn ehf., sem gefur út Eyjafréttir og Eyjafrettir.is.
  • Kaffið fjölmiðill ehf., sem gefur út Kaffið.is.
  • Skessuhorn ehf., sem gefur út Skessuhorn og Skessuhorn.is.
  • Útgáfufélagið ehf., sem gefur út Vikublaðið og Vikubladid.is.
  • Víkurfréttir ehf., sem gefur út Víkurfréttir og Vf.is.

Nýjustu fréttir

Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Ræða stöðu ferðaþjónustunnar við þingmenn Suðurkjördæmis
Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.