Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út skömmu fyrir klukkan 8 í morgun vegna þakplötu sem var byrjuð að losna af einbýlishúsi í efribyggð. Vindhviður á Stórhöfða náðu 51 metra á sekúndu samkvæmt mælingu klukkan 8.
Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, staðfestir í svari við fyrirspurn Eyjafrétta að björgunarfélagið hafi verið ræst út vegna þakplötunnar. Aðrar tilkynningar hafi ekki borist þegar hann svaraði.
Stefán segir lögreglumenn á ferð í nótt hafa hugað að lausamunum, meðal annars ruslatunnum, og komið þeim aftur á sinn stað.
Fyrr í morgun hafði Arnór Arnórsson hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja greint Eyjafréttum frá því að engin útköll hefðu þá borist. Hann minnti jafnframt á að beiðnir um aðstoð skuli fara í gegnum 112.
Samkvæmt veðurathugunum Veðurstofu Íslands mældist austanvindur 39 m/s á Stórhöfða klukkan 8. Mesti vindur var 42 m/s og mesta hviða 51 m/s.
Klukkan 7 mældist vindur 42 m/s og mesta hviða 50 m/s. Hitinn klukkan 8 var 5,5 stig og úrkoma síðustu klukkustundar mældist 5,4 millimetrar.
Formlegu skólahaldi í Grunnskóla Vestmannaeyja hefur verið seinkað til klukkan 9 í morgun vegna veðurs. Skólarnir eru opnir.
Stefán hvetur foreldra skólabarna til að fylgjast með upplýsingagjöf frá stjórnendum skólanna.
Appelsínugul viðvörun fyrir Suðurland gildir til klukkan 10 í morgun. Veðurstofan segir ekkert ferðaveður og varar við því að lausamunir geti fokið.