Eyjamaðurinn sterki, Kári Kristján Kristjánsson hefur leikið bæði með ÍBV og Haukum en línumaðurinn knái leikur í dag í þýsku úrvalsdeildinni með Wetzlar. Kári var fenginn til að spá í spilin fyrir leik liðanna í Eimskipsbikarnum í kvöld en hann er á því að þetta verði leikur sem muni fara í sögubækurnar.