Bilun í sjálfvirkum mælum í Eyjum

Sjálfvirkir mælar Veðurstofu Íslands sýndu 19 gráðu hita og 30 m/sek á Stórhöfða í Vestmannaeyjum í dag. Að sögn veðurfræðings á vakt er ekki um neina hitabylgju að ræða þar sem bilun virðist hafa komið upp í sjálfvirkum mælum Veðurstofunnar. Þetta kemur fram á Mbl.is. (meira…)

Olía lak niður Strembugötuna

Síðastliðinn fimmtudag fékk lögreglan í Vestmannaeyjum tilkynningu um að olía læki niður Strembugötuna frá bifreiðastæðinu við Höllina. Var slökkvilið Vestmannaeyja kallað á staðinn til að hreinsa olíuna. Ekki er vitað hvaðan þessi olía kom en þarna var um töluverða hættu að ræða þar sem gatan varð mjög hál en engin óhöpp urðu af völdum olíunnar. […]

Verðum að fá öflugri dýpkunartæki

Í dag, mánudag hefur Herjólfur siglt í viku samfleytt til Þorlákshafnar. Síðasta ferð Herjólfs í Landeyjahöfn var sunnudaginn 6. nóvember en síðan þá hefur veðurfar, ölduhæð og dýpi í höfninni komið í veg fyrir að hægt sé að nota höfnina. Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að dýpkunarskipin Skandia og Perlan séu í startholunum en enn hefur […]

Lionsmenn bjóða upp á blóðsykursmælingu í Lyf og heilsu

Lionsklúbbur Vestmannaeyja í samstarfi við hjúkrunarfræð­inga frá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og Lyf og Heilsu bjóða ókeypis blóðsykursmælingu í húsnæði Lyfja og Heilsu í dag, mánudaginn 14. nóvember milli kl. 14.00 og 16.00. (meira…)

Dósasöfnun skólalúðrasveitarinnar frestað

Skólalúðrasveit Grunnskóla Vestmannaeyja ætlaði að fara í hús að safna dósum og flöskum í dag en söfnunin er ein af fjáröflunum sveitarinnar. Allur ágóði söfnunarinnar fer í ferðasjóð sveitarinnar. Hins vegar eru veðurguðirnir ekki hliðhollir krökkunum í dag og líklega ekki næstu daga. Því hefur dósasöfnunin verið frestað um óákveðin tíma. (meira…)

Herjólfur til �?orlákshafnar út vikuna

Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar út þessa viku í það minnsta, eða til sunnudagsins 20. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en þar segir að ástæðan sé sem fyrr dýpi í Landeyjahöfn og öldugangur, sem gerir það að verkum að ekki hefur verið hægt að mæla dýpið né vinna við dýpkun. (meira…)

Eyjablikk með D-vottun

Síðustu 6 mánuðu hefur Eyjablikk í samstarfi við Samtök Iðnaðarins (SI) unnið að innleiðingu gæðakerfis samtakanna við rekstur og stjórnun fyrirtækisins. Vottunin er liður í stefnumótun fyrirtækisins en Eyjablikk hóf að vinna eftir því í ágúst og er unnið eftir sér sniðinni gæðahandbók í dag. (meira…)

Hátíðartónleikum Oddgeirs Kristjánssonar; Bjartar vonir vakna í Eyjum aflýst

Okkur þykir afar leitt að tilkynna að fyrirhugaðir hátíðartónleikar, Bjartar vonir vakna, sem áttu að fara fram í Höllinni næstkomandi sunnudag, hafa verið slegnir af. Ástæðan er afar dræm forsala. Það var einlæg von okkar að við gætum haldið þessa glæsilegu tónleika, Oddgeiri til heiðurs, í heimabæ hans. Við þökkum öllum þeim sem þegar hafa […]

Stelpurnar líka komnar áfram

Kvennalið ÍBV er komið í 8-liða úrslit í Eimskipsbikarnum en stelpurnar lögðu Aftureldingu að velli á föstudag. ÍBV hafði mikla yfirburði í leiknum en staðan í hálfleik var 4:19. Lokatölur urðu 18:31 en ÍBV gaf aðeins eftir í síðari hálfleik, án þess þó að sigurinn væri nokkurn tímann í hættu. Svavar Vignisson, þjálfari ÍBV sagði […]

Bikarleikurinn á morgun, þriðjudag

A-lið ÍBV í karlahandboltanum á stórleik fyrir höndum þegar efsta lið efstu deildar kemur í heimsókn og leikur gegn ÍBV, sem er í efsta sæti næst efstu deildar. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í kvöld, en hefur verið færður yfir á þriðjudag þar sem Haukar voru í vandræðum með að komast til Vestmannaeyja. (meira…)

5 ferðir flognar í dag til að mæta eftirspurn

Undanfarna daga hefur flugfélagið Ernir flogið mjög mikið af aukaflugum til Vestmannaeyja og virðist ekkert lát þar á. Til að mynda verða fimm áætlunarflug til Eyja í dag, sunnudag og nú þegar búið að setja upp fimm flug á þriðjudaginn næst komandi. (meira…)

Tóti og Unnur Sólveig syngja

Listavina­félagið stendur fyrir tónleikum til minningar um Oddgeir Kristjánsson, tónskáld kl. fimm eftir hádegi í dag, sunnudag. Þar koma fram Stórsveit Tónlistar­skólans umdir stjórn Eggerts Björgvinssonar og Tríó Reynis Sigurðssonar. (meira…)

B-liðið komið í átta liða úrslit

Sigmar Þröstur Óskarsson, handknattleiksmarkvörður sýndi að hann hefur engu gleymt þegar B-lið ÍBV tók á móti HK 2 í 16 liða úrslitum Eimskipsbikar karla. Simmi gerði sér lítið fyrir og varði 22 skot, þar af fjögur vítaskot hjá HK. Þegar upp var staðið, var það fyrst og fremst markvarslan sem skildi liðin að en Eyjamenn […]

Er mikill heiður fyrir mig

Páll Marvin Jónsson var á laugar­daginn sæmdur hinni Konunglegu riddaraorðu sem hans hátign Har­aldur V Noregskonungur veitir þeim sem hafa unnið framúrskar­andi störf fyrir Noreg. Er hún veitt bæði Norðmönnum og útlendingum og fær Páll hana fyrir störf sín sem ræðismaður í Vestmannaeyjum síð­ustu tíu árin. Það var sendiherra Noregs á Íslandi, Dag Wernö Holter, […]

Brynjar Gauti, Guðmundur �?órarins og �?órarinn Ingi æfa með Crewe

Þrír leikmenn ÍBV, þeir Brynjar Gauti Guðjónsson, Guðmundur Þórarinsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson æfa þessa dagana með enska félaginu Crewe Alexandra. Þetta kemur fram á www.fotbolti.net. Guðmundur og Þórarinn Ingi voru í leikmannahópi Íslands sem lék gegn enska landsliðinu á dögunum en komu ekki við sögu í leiknum. Brynjar Gauti hefur verið viðloðandi hópinn en […]

Ekki í þessu til að tapa fyrir einhverjum B-liðum

Í dag, laugardag, klukkan 13:00 tekur B-lið ÍBV á móti HK2 í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Margir fyrrum leikmenn ÍBV, sem telja sig ennþá vera algjöra snill­inga, leika með B-liðinu en meðal þeirra sem hafa verið kenndir við liðið má nefna þá Guðfinn Krist­mannsson, Erling Richardsson og Gunnar Sigurðsson, sem koma allir úr höfuðborginni til […]

�?trúleg skemmdarverk á mikilvægu öryggistæki

Óskar Elías Óskarsson, íbúi í Vestmannaeyjum var ekki ánægður þegar hann kom að vitanum Hringskersgarðinum á Skanssvæðinu sunnudaginn 6. nóvember síðastliðinn. Óskar segir að svo virðist sem að bjarghringur hafi verið rifinn af vitanum og hent á jörðina stuttu frá. Bjarghringar sem þessi, eru mikilvæg öryggistæki sem full þörf er á víðast hvar ef neyðin […]

Tap gegn ÍR

ÍBV sótti ÍR heim fyrr í kvöld. Þetta var fyrsti leikurinn í 2.umferð en ÍBV voru taplausir fyrir leikinn. ÍR hafði yfirhöndina allan tímann. Í fyrri hálfleik varð mestur munur 10-6, en leikmenn ÍBV náðu að jafna í 12-12. Staðan í hálfleik var 17-14 ÍR í vil en lokatölur urðu 36:31. (meira…)

�?etta líka fína kast

Við erum á leið til Eyja í kapp við bræluspá með þennan líka fína afla eða 1000 tonn, fengið í einu kasti auk þess sem þeir á Vilhelm Þorsteinssyni fengu líka 400 tonn úr pokanum. Þetta er því risa kast eða samtals 1400 tonn. Takk fyrir og góða nótt…………….. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.