Opin æfing hjá B-liðinu í kvöld

Það hefur varla farið framhjá landsmönnum að B-lið ÍBV í handbolta spilar á morgun, laugardag, gegn HK2 í Eimskipsbikarnum. Leikurinn hefst klukkan 13:00 en nú þegar er búið að selja um 400 miða á leikinn og stefnir allt í að það verði uppselt á leikinn. Til að mæta eftirspurn, hafa liðsmenn B-liðsins ákveðið að hafa […]

Í næstu viku söfnum við fyrir fátæka, ekki andskotans rónana

Nýr prestur var við sína fyrstu messu og var svo hræddur að hann gat varla komið upp orði. Eftir messuna spurði hann biskupinn hvernig sér hefði gengið? Biskupinn sagði að honum hefði farnast ágætlega en bætti síðan við að það gæti hjálpað honum með næstu messu að setja örlítið vodka út í vatnsglasið sitt, gamli […]

Blanda af nýjum og gömlum lögum

Lay Low, Lovísa Elísabet Sigrúnar­dóttir, verður með tónleika á Pró­fastinum næsta laugardagskvöld. Lay Low hefur nýlega gefið út plötuna „Brostnir strengir“ sem hefur fengið mikið lof gagnrýn­enda. Lay Low kemur hingað ásamt sex manna hljómsveit og verður með nýtt og eldra efni í bland og því má búast við hörku tónleikum sem eru þeir fyrstu […]

Ekki fæddur á réttum stað á réttum tíma

Eftir að hafa búið 32 ár úti á landsbyggðinni þá liggur mér þetta mjög heitt á hjarta!Fyrirtæki og allt annað megnugt fólk úti í hinni dreifðu landsbyggð stofni stjóð til að byggja námsmannaíbúðir fyrir unga fólkið sem það sjálft hefur alið upp í sinni heimabyggð. (meira…)

Aðild að Evrópusambandinu til umræðu á laugardagsfundi

Frosti Sigurjónsson hagfræðingur verður gestur Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum á laugardagsfundi, laugardaginn 12. nóvember. Fundurinn verður haldinn í Ásgarði og hefst kl. 11.00. Frosti mun vera með stutta framsögu um Evrópusambandið og í framhaldi svara spurningum gesta, en Frosti er ötull talsmaður þess að aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði lögð til hliðar og stendur ásamt fleirum fyrir […]

Tapað/fundið

Eiginkonur B-liðs ÍBV auglýsa eftir eiginmönnum sínum. Þeir hafa ekki sést heimavið undanfarnar vikur vegna æfinga. Menn á þessum aldri, og í þessu ásigkomulagi, ættu frekar að vera í minigolfi, fara út að ganga með hundinn eða sinna fjölskyldunni. Eiginkonur þeirra hafa lagt á sig ómælda vinnu við að sauma nógu stóra búninga sem veita […]

Kaflaskiptur leikur gegn Fram

Kvennalið ÍBV tapaði í kvöld 30:26 fyrir Fram á útivelli í N1 deild kvenna. Staðan í hálfleik var 17:12 en með sigrinum komst Fram upp í efsta sæti deildarinnar. ÍBV er hins vegar sem fyrr í fjórða sæti, fjórum stigum á eftir HK og Val sem eru í öðru og þriðja sæti. Með sigri í […]

Ný ferja kynnt til sögunnar

Eyjamenn kynntu í dag nýja ferju sem unnið hefur verið að í samráði við rússneska sendiráðið á Íslandi en kynningin fór fram á samráðsfundi um samgöngumál Vestmannaeyja. Ferjan er ekki ósvipuð og sú ferja sem Grímur Gíslason og Bárður Hafsteinsson kynntu á dögunum en Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að ekki liggi fyrir kostnaður við smíðina. […]

Nýtt kvótakerfi?

Ég hef oft fjallað um kvótakerfið enda starfað í eigin útgerð í 24 ár og er í dag það sem er oftast kallað leiguliði. Staðan í dag hér í Eyjum er þannig, að í vetur eru aðeins 2 bátar á línu og er ég sá yngri og engin er að fara að byrja í útgerð, […]

Orkan áfram stærsti styrktaraðili knattspyrnudeildar karla

Orkan hefur síðastliðin tvö ár verið stærsti styrktaraðili deildarinnar og hefur samstarfið gengið vel. Stuðningsmenn ÍBV hafa notið góðs af samstarfinu með góðum afslætti af bensínlítranum með því að tryggja sér Orkulykil ÍBV. Núverandi samkomulag er til þriggja ára er það von félagsins að samstarfið verði áfram farsælt og gott (meira…)

Sjónvarpsnotendur endurstilli myndlyklana

Notendur Digital Ísland í Vestmannaeyjum þurfa að endurstilla myndlyklana sína, eftir að sjónvarpssendir af nýjustu og bestu gerð var settur upp á Klifi. Innan fárra daga verður gamli sendirinn tekinn niður og þeir sem ekki uppfæra myndlykilinn fyrir þann tíma munu þá missa sjónvarpsmerkið sitt. (meira…)

Herjólfur siglir til �?orlákshafnar um helgina

Herjólfur mun sigla áfram til Þorlákshafnar um helgina, frá og með föstudeginum 11. nóvember og út sunnudaginn 13. nóvember. Brottför verður samkvæmt áætlun, frá Eyjum klukkan 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn 11:45 og 19:15. Ástæðan er bæði slæm ölduspá og einnig er dýpi í Landeyjahöfn ekki talið nægjanlegt. Mælingamenn urðu frá að hverfa vegna […]

Að gefnu tilefni

Í tilefni að bréfi sem ÍBV-íþróttafélag ritar til fjölskyldu- og tómstundaráðs og birt er á heimasíðu Frétta vill framkvæmdastjóri fjölskyldu- og tómstundaráðs koma eftirfarandi á framfæri. Erindi það sem ÍBV-íþróttafélag sendi til Vestmannaeyjabæjar þann 25. október sl. var tekið til meðhöndlunar og afgreiðslu eins og öll önnur erindi sem berast sveitarfélaginu. Erindi þau sem berast […]

Á þetta reyndi um helgina

Fyrsta höfn Herjólfs er Landeyja­höfn, það sýndi sig um helgina. Þá gerði ölduspá ráð fyrir að höfnin yrði ófær og því var gefin út áætlun til Þorlákshafnar. Á laugardag var skipið á leið til Þorlákshafnar þegar ljóst var að Landeyjahöfn var fær og skipinu þá, í samráði við farþega, stefnt þangað. Sama var uppi á […]

�?rjár á landsliðsæfingum

Þrjár ungar stúlkur úr ÍBV taka þátt í æfingum yngri landsliða Íslands í knattspyrnu. Þær Svava Tara Ólafsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir munu æfa með U-19 ára landsliðinu en báðar eru þær á yngra ári í landsliðinu. Þá var Sóley Guðmundsdóttir einnig í hópnum en hún þurfti að draga sig úr honum vegna meiðsla. (meira…)

Staðan á sjúkraflugi á Íslandi er dauðans alvara!

Íslendingar eru duglegir að bera sig saman við vestrænar þjóðir í hæfni og gæðum þjónustu og menntunar. Við segjum stolt frá því að við teljum okkur vera á pari við Norðurlandaþjóðirnar með að virða réttindi og þjónusta þegna landsins. Að fenginni faglegri og persónulegri reynslu finn ég mig knúinn til að leggja mitt mat á […]

Ágæt útkoma í fjórða og sjöunda bekk

Nú liggja fyrir niðurstöður sam­ræmdra könnunarprófa í fjórða, sjöunda og tíunda bekk grunn­skólanna haustið 2011. Nemendur í fjórðu og sjöundu bekkjum Grunn­skóla Vestmannaeyja (GRV) koma ágætlega út en í tíunda bekk er með­aleinkunn nemenda undir lands­meðaltali í öllum greinum. Þetta upplýsti Fanney Ásgeirs­dóttir, skólastjóri GRV. Nemendur fjórða bekkjar GRV eru fyrir ofan landsmeðaltal í íslensku, […]

Ekkert bendir til þess að árásin hafi átt sér stað á Hásteinsvegi

Við rannsókn lögreglunnar í Vestmanneyjum á meintri árás tveggja erlendra karlmanna á stúlku um tvítugt á Hásteinsvegi að morgni sunnudagsins 6. nóvember sl. hefur komið í ljós að þessi árás á ekki við rök að styðjast. Ekkert bendir til þess að árásin hafi átt sér stað á Hásteinsvegi né að þarna hafi verið um að […]

Lögregla óskar eftir upplýsingum

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir upplýsingum frá almenningi varðandi meinta íkveikju í nót við netagerðina Ísnet. Tilkynning um eld í nótinni kom til lögreglu laust eftir kl. 22:00 í gærkvöldi og óskar lögreglan eftir því að þeir sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir á svæðinu við Ísnet í gærkvöldi hafi samband við lögreglu. Einnig beinir […]

Steini Gunn í HK

Eyjamaðurinn Þorsteinn Gunnarsson hefur söðlað um og er nú orðinn aðstoðarþjálfari hjá HK í Kópavogi. Þorsteinn var hjá Grindavík þar til fyrir skömmu að hann hætti sem formaður knattspyrnudeildar félagsins og um leið sem markmannsþjálfari Grindvíkinga. Þetta kemur fram á mbl.is í dag. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.