Milljónatjón þegar kveikt var í síldarnót

Rétt rúmlega tíu í kvöld var allt slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að netaverkstæði Ísnet, sem er reyndar aðeins nokkra tugi metra frá sjálfri slökkvistöðinni. Ástæða útkallsins var að eldur logaði í síldarnót á plani norðan við verkstæðið. Slökkvistarfið gekk vel en slökkvibíll flugvallarins í Vestmannaeyjum var líka kallað á staðinn. (meira…)

Herjólfur næstu tvo daga til �?orlákshafnar

Herjólfur mun sigla síðdegis í dag, þriðjudag til Þorlákshafnar og verður brottför klukkan 15:30 frá Eyjum og 19:15 frá Þorlákshöfn. Skipið mun jafnframt sigla til Þorlákshafnar næstu tvo daga, miðvikudaginn 9. nóvember og fimmtudaginn þann 10. Farið verður frá Eyjum klukkan 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn 11:45 og 19:15. Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip, þá […]

Bókun Fjölskyldu- og tómstundaráðs dæmalaus og villandi

Aðalstjórn ÍBV-Íþróttafélags harmar þá bókun sem fram kemur í fundargerð Fjölskyldu- og tómstundaráðs vegna framangreinds máls. Aðalstjórn ÍBV-Íþróttafélags harmar sérstaklega að Fjölskyldu- og tómstundaráð hafi talið það nauðsynlegt vegna málsins að birta efnislega bókun með þeim hætti sem gert var á opinberri heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Hæglega hefði verið nægjanlegt að bóka bréfið inn og fela t.d. […]

Kemur landsliðsþjálfarinn á leik B-liðsins?

Heyrst hefur að Guðmundur Guðmundsson landsliðþjálfari Íslands í handbolta, muni koma til Eyja um helgina að skoða leikmenn ÍBV B. Mikið er um meiðsli hjá landsliðinu og vill Guðmundur fá þunga og reynslu inn í A lið Íslands. Mun Guðmundur vera skoða Björgvin Rúnarsson, Harald Hannesson og Simma Helga. (meira…)

Fermingarbörn safna fyrir brunni í Afríku

Það er orðinn árlegur þáttur í fermingarfræðslu Landakirkju að fermingarbörnin standa fyrir söfnun á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta verkefni er kallað vatnsverkefni fermingarbarna því safnað er fyrir vatnsbrunnum fyrir grunnvatn og söfnunartönkum fyrir rigningarvatn. Víða er mikill skortur á hreinu vatni en það hefur valdið sjúkdómum og lakri heilsu milljóna manna. (meira…)

VÍS húfurnar rjúka út

„Það er óhætt að segja að húfurnar hafi verið rifnar úr höndum okkar,“ segir Egill Arnar Arngrímsson þjónustustjóri VÍS í Vestmannaeyjum og vísar til húfa sem viðskiptavinum með F plús tryggingu stendur til boða. Hátt í 200 húfur hafa glatt unga Eyjamenn eins og flestir ættu að hafa orðið varir við á götum úti undanfarnar […]

Ráðherra ráðstafar hluta kvótans

Sjávarútvegsráðherra mun ráðstafa tvö þúsund tonnum af nýútgefnum síldarkvóta. Kvótinn er svipaður og í fyrra en í ár verður einungis leyft að veiða síld við vestanvert landið vegna sýkingar í stofninum. Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í óslægðum botnfiski, humri og íslenskri sumargotssíld á nýju fiskveiðiári. (meira…)

Fyrri ferð Herjólfs hefur verið felld niður vegna veðurs

Fyrri ferð Herjólfs hefur verið felld niður vegna veðurs í dag, þriðjudag. Ölduhæð er 8,6m en athugun verður með seinni ferð Herjólfs sem á að vera 15:30, verði 14:00. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með fréttum á heimasíðu Herjólfs, www.herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi RÚV. (meira…)

Einn ógnaði fólki með hnífi og þrjár líkamsárásir

Þrjár líkamsárásir komu inn á borð hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Í einni árásinni var maður sleginn í andlitið þannig að tvær tennur losnuðu auk þess sem gómur brotnaði. Annar maður nefbrotnaði eftir hnefahögg. Aðfaranótt sunnudagsins 6. nóvember var ráðist á stúlku á nítjánda ári á Hásteinsveginum, hún áreitt kynferðislega en stúlkan taldi mennina tvo sem […]

Aaron Spear vill spila aftur með ÍBV næsta sumar

Enski framherjinn Aaron Spear hefur áhuga á að leika aftur með ÍBV næsta sumar en hins vegar er óvíst hvort hann muni semja við félagið. Þetta kemur fram á Fótbolta.net. Spear kom til liðs við ÍBV á miðju sumri en þessi öflugi sóknarmaður er 18 ára gamall og skoraði fimm mörk í ellefu leikjum fyrir […]

Kvikmyndin Eldfjall í Bæjarleikhúsinu í dag

Í dag, mánudag, lýkur Safnahelginni í Bæjarleikhúsinu þegar kvikmyndin Eldfjall verður sýnd. Um er að ræða tvær sýningar, klukkan 17:00 og 20:00 og verður leikstjórinn, Rúnar Rúnarsson á staðnum. Myndin tengist Vestmannaeyjum þannig að Heimaeyjargosið hrindir af stað atburðarrás myndarinnar, sem hefur nú þegar hlotið fjölda verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. (meira…)

Daði Páls í fjölmiðlabann fyrir laugardaginn

Á fundi B-liðs ÍBV á föstudaginn var ákveðið að Daði Pálsson yrði settur í fjölmiðlabann fram yfir leikinn á laugardaginn. Þá tekur B-liðið á móti HK2 í stórleika vetrarins í Eimskipsbikarnum en leikurinn fer fram klukkan 13:00 í gamla sal íþróttamiðstöðvarinnar, sem er vel við hæfi þegar B-liðið er annars vegar, enda ekkert nema gamlingjar. […]

Herjólfur siglir þriðju og síðustu ferð dagsins til Landeyjahafnar

Ákveðið hefur verið að sigla þriðju og síðustu ferð Herjólfs frá Eyjum kl 15:30 til Landeyjahafnar. Áætluð brottför frá Landeyjahöfn er kl. 19:00 í kvöld. Við biðjum farþega okkar afsökunar á þessari breytingu en vonum að skilningur og ánægja sé með hana. (meira…)

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Suðurkjördæmi

Í nýlegum þjóðarpúlsi Gallup, kemur fram að í Suðurkjördæmi nýtur Sjálfstæðisflokkurinn yfirburðafylgis og enginn flokkur í öðrum kjördæmum nýtur viðlíka fylgis. 42% segjast mundu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði nú. Framsóknarflokkurinn hefur næst mest fylgi i Suðurkjördæmi, 20%. (meira…)

�?gnaði fólki með hnífi

Ungur maður gistir nú fangageymslur lögreglunnar eftir að hafa ógnað fólki með hnífi á veitingastað í Vestmannaeyjum á sjötta tímanum í morgun. Að sögn lögreglunnar var maðurinn, sem er rétt rúmlega tvítugur, talsvert ölvaður og taldi sig eiga óuppgerðar sakir við nokkra á veitingastaðnum. (meira…)

Góður árangur Eyjamanna á Evrópumóti WBFF í gær

Í gær fór fram Evrópumót WBFF í líkamsrækt en keppnin fór bæði fram í Hörpunni og í Laugardalshöll. Nokkrir Eyjamenn tóku þátt í keppninni og stóðu þeir sig að sjálfsögðu frábærlega. Anna María Halldórsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði í einum keppnisflokkinum, svokölluðum Female Bikini Model” lægri. Þá endaði Smári Harðarson í öðru sæti […]

Frábær fjölskylduskemmtun í Bæjarleikhúsinu

Í gær, laugardag, var leikritið um Ronju Ræningjadóttur frumsýnt í troðfullum sal Bæjarleikhússins. Söguna kannast allir við en hún er eftir sænska rithöfundin Astrid Lindgren, sem hefur samið nokkrar af frægustu barnasögum veraldar. Höfundur hefði verið stoltur af uppfærslu Leikfélags Vestmannaeyja því hún er bæði metnaðarfull og skemmtileg, og óhætt að mæla með heimsókn í […]

�?vílíkur sigur hjá stelpunum

Florentina Stanciu, markvörður ÍBV var í banastuði í dag þegar ÍBV tók á móti FH í N1 deild kvenna. Flora, eins og hún er kölluð, varði alls 26 skot í leiknum enda fór það svo að FH skoraði aðeins tíu mörk í leiknum öllum, þar af fjögur í síðari hálfleik. ÍBV vann því með fjórtán […]

Herjólfur í Landeyjahöfn

Reynt verður að sigla Herjólfi í Landeyjahöfn á morgun, sunnudag. Fyrstu ferð skipsins hefur verið frestað um klukkutíma til að auka líkurnar á að hægt verði að sigla í Landeyjahöfn. Þetta er gert til að ná lengri tíma frá háflóði, sem er fyrir klukkan átta í fyrramálið. Áætluð brottför, ef þetta gengur eftir, er frá […]

Fjórar skrifuðu undir í dag

Fjórir leikmenn kvennaliðs ÍBV í fótbolta skrifuðu í dag undir áframhaldandi samning hjá félaginu. Þetta eru þær Kristín Erna Sigurlásdóttir, Elísa Viðarsdóttir, Hlíf Hauksdóttir og Sædís Magnúsdóttir. Allar framlengdu þær samningnum um tvö ár. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.