Rétt rúmlega tíu í kvöld var allt slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að netaverkstæði Ísnet, sem er reyndar aðeins nokkra tugi metra frá sjálfri slökkvistöðinni. Ástæða útkallsins var að eldur logaði í síldarnót á plani norðan við verkstæðið. Slökkvistarfið gekk vel en slökkvibíll flugvallarins í Vestmannaeyjum var líka kallað á staðinn.