Milljónatjón þegar kveikt var í síldarnót

Rétt rúmlega tíu í kvöld var allt slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að netaverkstæði Ísnet, sem er reyndar aðeins nokkra tugi metra frá sjálfri slökkvistöðinni. Ástæða útkallsins var að eldur logaði í síldarnót á plani norðan við verkstæðið. Slökkvistarfið gekk vel en slökkvibíll flugvallarins í Vestmannaeyjum var líka kallað á staðinn. (meira…)
Herjólfur næstu tvo daga til �?orlákshafnar

Herjólfur mun sigla síðdegis í dag, þriðjudag til Þorlákshafnar og verður brottför klukkan 15:30 frá Eyjum og 19:15 frá Þorlákshöfn. Skipið mun jafnframt sigla til Þorlákshafnar næstu tvo daga, miðvikudaginn 9. nóvember og fimmtudaginn þann 10. Farið verður frá Eyjum klukkan 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn 11:45 og 19:15. Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip, þá […]
Bókun Fjölskyldu- og tómstundaráðs dæmalaus og villandi

Aðalstjórn ÍBV-Íþróttafélags harmar þá bókun sem fram kemur í fundargerð Fjölskyldu- og tómstundaráðs vegna framangreinds máls. Aðalstjórn ÍBV-Íþróttafélags harmar sérstaklega að Fjölskyldu- og tómstundaráð hafi talið það nauðsynlegt vegna málsins að birta efnislega bókun með þeim hætti sem gert var á opinberri heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Hæglega hefði verið nægjanlegt að bóka bréfið inn og fela t.d. […]
Kemur landsliðsþjálfarinn á leik B-liðsins?

Heyrst hefur að Guðmundur Guðmundsson landsliðþjálfari Íslands í handbolta, muni koma til Eyja um helgina að skoða leikmenn ÍBV B. Mikið er um meiðsli hjá landsliðinu og vill Guðmundur fá þunga og reynslu inn í A lið Íslands. Mun Guðmundur vera skoða Björgvin Rúnarsson, Harald Hannesson og Simma Helga. (meira…)
Fermingarbörn safna fyrir brunni í Afríku

Það er orðinn árlegur þáttur í fermingarfræðslu Landakirkju að fermingarbörnin standa fyrir söfnun á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta verkefni er kallað vatnsverkefni fermingarbarna því safnað er fyrir vatnsbrunnum fyrir grunnvatn og söfnunartönkum fyrir rigningarvatn. Víða er mikill skortur á hreinu vatni en það hefur valdið sjúkdómum og lakri heilsu milljóna manna. (meira…)
VÍS húfurnar rjúka út

„Það er óhætt að segja að húfurnar hafi verið rifnar úr höndum okkar,“ segir Egill Arnar Arngrímsson þjónustustjóri VÍS í Vestmannaeyjum og vísar til húfa sem viðskiptavinum með F plús tryggingu stendur til boða. Hátt í 200 húfur hafa glatt unga Eyjamenn eins og flestir ættu að hafa orðið varir við á götum úti undanfarnar […]
Ráðherra ráðstafar hluta kvótans

Sjávarútvegsráðherra mun ráðstafa tvö þúsund tonnum af nýútgefnum síldarkvóta. Kvótinn er svipaður og í fyrra en í ár verður einungis leyft að veiða síld við vestanvert landið vegna sýkingar í stofninum. Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í óslægðum botnfiski, humri og íslenskri sumargotssíld á nýju fiskveiðiári. (meira…)
Fyrri ferð Herjólfs hefur verið felld niður vegna veðurs

Fyrri ferð Herjólfs hefur verið felld niður vegna veðurs í dag, þriðjudag. Ölduhæð er 8,6m en athugun verður með seinni ferð Herjólfs sem á að vera 15:30, verði 14:00. Farþegar eru beðnir um að fylgjast með fréttum á heimasíðu Herjólfs, www.herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi RÚV. (meira…)