Herjólfur mun sigla síðdegis í dag, þriðjudag til Þorlákshafnar og verður brottför klukkan 15:30 frá Eyjum og 19:15 frá Þorlákshöfn. Skipið mun jafnframt sigla til Þorlákshafnar næstu tvo daga, miðvikudaginn 9. nóvember og fimmtudaginn þann 10. Farið verður frá Eyjum klukkan 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn 11:45 og 19:15. Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip, þá er ölduspá óhagstæð fyrir siglingar í Landeyjahöfn.