Sjávarútvegsráðherra mun ráðstafa tvö þúsund tonnum af nýútgefnum síldarkvóta. Kvótinn er svipaður og í fyrra en í ár verður einungis leyft að veiða síld við vestanvert landið vegna sýkingar í stofninum. Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í óslægðum botnfiski, humri og íslenskri sumargotssíld á nýju fiskveiðiári.